Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Uppljóstranir Gunnars Hrafns: Synir Jóhönnu fjarlægðu verk Hannesar Hólmsteins úr ráðherrabústaðnum

Gunnar Hrafn Jónsson segir frá spaugilegri bústaða­ferð með móður sinni og konu hennar, Jóhönnu Sigurðar­dóttur í glænýju viðtali Mannlífs.

Jónína Leós­dóttir rithöfundur og móðir Gunnars Hrafns Jónssonar, fjölmiðla­manns, fyrrum þingmanns og fyrrum fyndnasta manns Íslands, er gift Jóhönnu Sigurðar­dóttur, fyrrum forsætis­ráðherra landsins. Í spánýju viðtali Mannlífs segir Gunnar Hrafn frá tveimur fyndnum sögum úr ráðherra­bústaðnum á Þing­völlum.

Dorrit niðurlægir Ólaf Ragnar

„Bústaðurinn á Þing­völlum er mjög skemmtilegur staður. Þar sem var áður bara kirkja en núna er meira en helmingurinn af þessu bústaður fyrir forsætis­ráðherra til að bjóða þjóð­höfðingjum og svona. Þetta var allt markerað af valdatíð Davíðs Oddssonar. Það hafði mjög litlu verið breytt síðan. Það hengu þar uppi einhver plögg, viðurkenningar­plögg um hann og alls staðar, í öllum stærstu hillunum og þar sem maður tók mest eftir, voru doðrantar eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. Og synir Jóhönnu, mega eiga það að þeir eru skemmtilegri en hún. Þeir fóru að ganga um húsið og leita uppi þessar bækur og földu inn í einhverri geymslu. Þeir sóttu svo sínar eigin bækur um sósíalisma og settu upp til að fylla í götin. Síðan koma Dorrit og Ólafur Ragnar í heimsókn en ég var nú ekki viðstaddur þá heimsókn. Og Dorrit elskar pleisið, finnst þetta bara það fallegasta sem hún hefur séð, svona sveita­setur. En þau töluðust varla við á þessum tíma, Ólafur og Jóhanna. En þetta var svona formleg heimsókn. Þá segir Dorrit þessi gullnu orð: „Ólafur, þetta er svo flottur staður, af hverju þú aldrei takast vera forsætis­ráðherra?“ Og svipurinn sem kom á Ólaf Ragnar, hafandi alla ævi verið að reyna að verða forsætis­ráðherra, var bara „nothing to talk about Dorrit,“ sagði Gunnar Hrafn hlæjandi.

Dalai Lama bankar á dyrnar

En þetta er ekki eina gaman­sagan úr ráðherrabúð­staðnum á Þing­völlum.

Dalai Lama, aðal­leiðtogi tíbetskra búddista og forsvars­maður tíbetsku útlaga­stjórnarinnar í Dharamsala, var eitt sinn staddur á Íslandi en Jóhanna Sigurðar­dóttir, þáverandi forsætis­ráðherra átti erfitt með að hitta hann vegna andstöðu kínverskra yfirvalda við heim­sókninni. „Kínverjarnir bara strækuðu á það. Þannig að hún og mamma fara á Þingvelli. Þing­vellir eru reyndar ekki mest prívat staður í heimi því túristar eru sífellt að banka og biðja um að fá að fara á klósettið. Og það er ekkert annað klósett þarna. Mamma öskraði alltaf á eftir mér þegar ég kom inn „Læstu hurðinni, annars koma túristarnir inn!“, af því að klósettið er við dyrnar. Og menn opnuðu bara dyrnar og fóru inn og út af klósettinu. Þarna var engin öryggis­gæsla. Þannig að Jóhanna bað um að sett yrði upp grindverk. Þá var sett upp ekki nema metershá keðja sem ég gat klofað yfir. Þá birtist frétt að ég held í DV þar sem stóð „Búið er að víggirða ráðherra­bústaðinn á Þing­völlum,“ sagði Gunnar Helgi og hló. En aftur að Dalai Lama hinum fjórtánda.

„Það sem gerist er að þær telja sig vera alveg safe,“ segir Gunnar Hrafn og á þá við að þær hafi farið í sveitina til að forðast Dalai Lama. „Og þær eru bara þar að slappa af, með girt fyrir glugga svo það sjáist ekki að einhver sé heima. En svo bara „bank, bank“ og gert ráð fyrir að þetta sé bara enn einn túristinn sem þurfi að pissa. Og mamma fer fram og dregur glugga­tjöldin frá og sér eitthvað um 20 appelsínu­gula klædda munka í lögreglu­fylgd, með íslensku lögreglunni. Og þeir eru að banka og banka og mamma er fljót að loka aftur og snýr sér að Jóhönnu og segir þessi fleygu orð sem hefur verið sagt frá reyndar áður í fjöl­miðlum: „Holy shit, Dalai Lama er kominn!“, sem er yfirleitt ekki viðbrögð fólks þegar Dalai Lama bankar á dyrnar.“

Viðtalið mun birtast í heild sinni klukkan 20 í kvöld á vef Mannlífs en þar lætur Gunnar Hrafn allt flakka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim