Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Ég hefi aldrei fengið eina einustu krónu í arð frá Icelandair“

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Kristjáns­dóttir skemmtir lesendum daglega með dagbókinni sinni frá Tenerife, en í dag greinir hún frá því að hún hafi átt hlut í Icelandair frá árinu 2018. Aldrei hafi hún fengið arð frá félaginu. Hún segir að því hafi verið haldið fram í gær að félagið hafi greitt út milljarð í arðgreiðslur á sama tíma og félagið fékk talsverða styrki vegna COVID. Anna segir að athuga­semdir hennar þar sem hún benti á þetta hafi verið eytt.

Hér fyrir neðan má lesa pistil hennar í heild sinni.

Það er fátt tíðinda á laugardags­morgni. Kannski eðlilegt því ég afrekaði það í gær að gera ekki neitt. Ég hafði ætlað mér að fara í göngu, en nennti því ekki og því fær spikið að vera óátalið á mér næstu dagana. Reyndar fór talsverður tími í að bíða, annarsvegar eftir svari frá Greiðslu­stofu lífeyris­sjóða, hinsvegar frá Pensionsmyndigheten í Östersund, en hvorugt var búið að svara mér í gærkvöldi. Ég mun senda ítrekun á báða staði á mánudags­morguninn í þeirri von að þeir haldi ekki að um drauga­gang sé að ræða. Lífeyris­sjóðurinn Brú heldur mér hinsvegar upplýstri og er það vel. Þeirra er heiðurinn.

Það er svo ekki til að bæta ástandið að tveir aðilar sem ég þekki og eru staddir hér á eyjunni vildu hitta mig en ég frestaði öllum hittingi þar til um helgina. Verður fínt að hitta önnur hjónin í dag, en hin eftir pönnu­kökur og vatnsdeigs­bollu sunnu­dagsins, aðfanga­dags bolludags.

Það er eitthvað að byrja að hlýna hér og viðbúið að hitinn mjakist uppfyrir 20 gráðurnar næstu dagana og veitir ekki af eftir kulda­tímabilið að undan­förnu. Þessi kuldi dregur úr mér allan vilja til drykkju­skapar og er þá fokið í flest skjól.

Ég er enn að hugsa um hús í Playa Flamenca. Þetta endar með því að ég kaupi og flyt þangað eða ekki. Samt góð fjár­festing.

—–

Í gær birti einhver áróðurs­plagg sem sýnir Cóviðstyrki til hinna ýmsu fyrir­tækja í ferða­þjónustu annars vegar, en arðgreiðslur hinsvegar og þar sem Icelandair átti að hafa fengið milljarða en einnig greitt milljarða í arð. Ég svaraði þessu og benti á að ég hefi átt hluti í Icelandair frá 2018 og aldrei fengið eina einustu krónu í arð. Umrædd athugasemd var falin eða eydd af stjórn­anda síðunnar, enda virðist hún ekki hafa fallið að skoðunum viðkomandi aðila. Ég birti hana því hér núna. Hvað önnur fyrirtæki snertir sem nefnd eru á plagginu, þá get ég engu svarað um þau, en ítreka að ég hefi aldrei fengið eina einustu krónu í arð frá Icelandair.

Þar sem búið er að afskrifa mig af íslenskum vinnu­markaði vegna aldurs er þetta í reynd einasti möguleiki minn að taka þátt í íslensku atvinnu­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim