Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sögð grýla sem hatar homma – Sigríður kennir Samtökunum 78 um verðbólguna

Á Twitter er fátt annað rætt í dag en gífurlega vanhugsað tíst Sigríðar Andersen, Sjálfstæðis­konu og fyrr­verandi innan­ríkis­ráðherra. Í gær skrifaði hún að ein ástæða fyrir verðbólgu undan farið væri styrk­veiting til Samtak­anna 78. Tístið má sjá hér fyrir neðan.

Fjölmargir hafa gagnrýnt þetta tíst hennar harðlega og hefur Sigríður svarað sumum. Ein kona skrifar: „þetta er eitt mikil­vægasta félag landsins og á vel skilið þetta fjármagn.“ Því svarar Sigríður: „Ég er sammál því að frjáls félaga­samtök eins og Samtökin78 hafa lagt margt og mikilvægt til og gera það vonandi áfram. Það breytir því ekki að í dag eru ekki til peningar fyrir nýjum útgjöldum. (Þetta er þráður um ríkis­fjármál.)“

Á öðrum stað gefur Sigríður í skyn að það sé haturs­orðræða að gagnrýna hana. Kona nokkur skrifar: „Ef þú ætlar að nota afkomu­kvíða almennings til að safna liði í hinsegin hatrið þá er alveg lágmarks kurteisi við vitsmuni pöpulsins að full­yrðingarnar séu nálægt því að vera sannar. Styrk­veitingar hins opinbera til manréttindasamtaka valda ekki verðbólgu, Sigríður.“

Því svarar Sigríður: „Útgjöld sem menn eiga ekki fyrir valda verðbólgu, líka útgjöld til hinna bestu mála. Er annars ekki bara upplagt fyrir alla að vera kurteisir og gefa haturs­orðræðu frí?“

Svo reynir Sigríður að láta sem hún hafi ekki sakað Samtökin 78 um valda verðbólgu.  Baráttu­konan Ugla Stefanía Kristjönu­dóttir Jóns­dóttir skrifar: „Einmitt, kennum samtökum sem hafa barist fyrir sjálfsögðum réttindum fólks í áratugi, og veita hinsegin fólk lífs­nauðsynlega þjónustu og stuðning – sem ríkið og sveitar­félög gera ekki – um verð­bólguna. Finnst þér svona málflutningur þér sæmandi?“

Þessu svarar Sigríður: „Ég veit ekki til þess að nokkur hafi sakað Samtökin 78 um að hafa valdið verðbólgu. Þetta tíst varðar ríkis­fjármál og peningamál. Kannski ekki nógu spennandi. Sry. Þú hefur annars verið málefnaleg og skelegg í þínu. Geturðu ekki bara verið það líka í umræðu um ríkis­fjármál?“

Tugir hafa svo vitnað í fyrstu færslu Sigríðar og bent á að ríkið hafi greitt mikið hærri upphæðir í margt annað, svo sem í hana sjálfa. Einn skrifar: „Ástæða verð­bólgunnar? Hér er ein: 13 til 16 milljóna árlegt framlag + 980 þús viðbót – til fordóma­fullrar og valda­gráðugrar grýlu úti í bæ með hunda­flautu og fals­fréttablæti.“

Hér fyrir neðan má sjá fleiri dæmi um fólk sem gagnrýnir Sigríði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim