InnlentÓshlíðarmálið opnað aftur: „Þeir sem hafa skoðað málið segja allir að bíllinn hafi ekki oltið“ Ríkissaksóknari hefur lagt fyrir lögreglustjórann á Vestfjörðum að taka afstöðu til nýrra gagna í hinu svokallaða Óshlíðarmáli. Hefur því ríkissaksóknari fellt úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum þess efnis að hætta rannsókn á andláti Kristins Hauks Jóhannessonar, í Óshlíð fyrir rúmum 50 árum. Kristinn Haukur.Mynd: Lubbi Segir ríkissaksóknari um ákvörðun sína að í ljósi upplýsinga sem komi fram í hinum...
InnlentSigursteinn Másson tjáir sig: „Það er ábyrgðarhlutur að þagga þetta mikla hagsmunamál áfram niður“ Sigursteinn Másson vill að Íslendingar gangi í ESB og tjáir sig um málið í samfélagsmiðla-hópnum Já Ísland sem er sameiginlegur vettvangur Evrópusinna á Íslandi, sem telja að framtíð Íslands sé mun betur borgið innan samfélags þjóðanna innan Evrópusambandsins: „Nú verður að gefa í með þetta mál! Þeir sem tala fyrir mikilvægi samstöðu í Evrópu gegn einræði og yfirgangi hljóta allir...
InnlentÁstráður Haraldsson settur sem ríkissáttasemjari í vinnudeilu Eflingar og SA Héraðsdómari Ástráður Haraldsson hefur verið settur sem ríkissáttasemjari í yfirstandandi vinnudeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Hefur stjórn dómstólasýslunnar samþykkt að veita Ástráði leyfi frá dómarastörfum, en þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins. Kemur fram að með erindi til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, dags. 13. febrúar 2023, óskaði Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari eftir því að víkja í yfirstandandi kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins...
InnlentPétur biskupsritari lítt hrifinn af sósíalisma: „Aldrei verið raunverulegur vilji til samninga“ Pétur Georg Markan biskupsritari og fyrrum markaskorari í fótbolta, ritar grein er hefst svona: „Það þarf ekki að rífast yfir því að lægstu taxtar endurspegla engan veginn vinnuframlag, álag og mikilvægi starfsfólksins sem fær greitt samkvæmt þeim.“ Bætir við: „Það er sannarlegt samfélagslegt mein að fólk geti illa dregið fram lífið á kaupi sem því er samningsbundið greitt eftir. Og...
InnlentLögreglan lagði hald á mikið magn fíkniefna – Fimm handteknir í umfangsmikilli aðgerð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á mikið magn fíkniefna við húsleitir í umdæminum í síðustu viku. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni er um að ræða sjö kíló af amfetamíni og um 40 kíló af marijúana, auk annarra fíkniefna sem og frammistöðubætandi efna. Í þessum aðgerðum gegn skipulagri glæpastarfsemi, voru fimm einstaklingar handteknir og fjögur þeirra úrskurðuð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gæsluvarðhald...
InnlentMiklar breytingar í lífi Fjallsins: „Ég á tvö börn og eiginkonu og vil vera til staðar fyrir þau“ Hafþór Júlíus Björnsson – Fjallið – gaf það út í tilkynningu á YouTube-rásinni sinni að hann ætli sér að snúa aftur í heim kraftlyftinganna. Ljóst er að Hafþór ætlar sér stóra hluti; stefnir á að bæta heimsmetið. Hafþór hefur lagt boxhanskana á hilluna, en að eigin sögn fann hann sig aldrei nægilega í þeirri íþrótt, og eftir viðræður við fjölskyldu...
InnlentSegir IMF ætíð skila ársreikningum: „Hafi svo ekki verið þá fáum við örugglega útskýringar frá PWC“ Jón Kaldal segir Icelandic Wildlife Fund ætíð hafa skilað ársreikningi og hægt sé að sjá þá á heimasíðu sjóðsins. Bæjarins besta skrifaði frétt í dag þar sem kemur fram að umhvefissjóðurinn Icelandic Wildlife Fund hafi ekki skilað ársreikningi til Ríkisendurskoðunar frá stofnun sjóðsins árið 2017. Segir fréttavefurinn að þetta megi sjá á skýrslu embættisins frá því í janúar á þessu...
InnlentÖrvæntingafullir ökuþórar við bensínstöðvar: „Fólk er farið að setja eldsneyti í allskonar ílát“ „Þetta lítur ekki vel út, þetta er spurning um nokkra daga. Fólk er farið að setja eldsneyti í allskonar ílát,“ segir Arnar Jónsson í þjónustuveri Olís um horfurnar varðandi eldsneyti til viðskiptavina. Verkfall er í aðsigi. Rakel Björg Guðmundsdóttir, markaðs og þjónustustjóri hjá Atlantsolíu, tekur í sama streng. „Okkar áætlanir gera ráð fyrir að eldsneyti á bensínstöðvum okkar dugi fram...
InnlentLætur stuðningsmenn Halldórs Benjamíns heyra það: „Þið eruð að drekkja ykkur í snobbi“ Atli Þór Fanndal segir þá sem styðja Halldór Benjamín hjá Samtökum atvinnulífsins í kjarabaráttu Eflingar, séu að „drekkja“ sér „í snobbi“. Fjölmiðlamaðurinn fyrrverandi og núverandi framkvæmdarstjóri Íslandsdeildar Transparancy International, Atli Þór Fanndal er þekktur fyrir að hafa munninn fyrir neðan nefið. Í nýrri færslu á Facebook skín sú staðreynd í gegn en þar blandar hann sér í umræðuna um kjaradeilur...
InnlentBjarnheiður fordæmir verkfall Eflingarfólks á hótelum: „Áróðursvélar Eflingar hamast linnulaust“ „Fólkið sem rekur ferðaþjónustufyrirtækin er kallað öllum illum nöfnum og stillt upp sem ótýndum glæpamönnum, sérstaklega ef fyrirtækin hafa náð að skila einhverjum arði – sem auðvitað er harðbannað og svívirðilegt í augum Eflingar,“ skrifar Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka í ferðaþjónustu, um verkfallsaðgerðir Eflingar gegn hótelum á höfuðborgarsvæðinu. Grein hennar ber yfirskriftina, Nú er nóg komið. Bjarnheiður fordæmir framgöngu Eflingarfólks...
InnlentFurðulegt dýr lenti í Hveragerði – Húsdýragarðurinn neitaði að taka við því Haftyrðill sem fannst í Hveragerði vakti mikla athygli á Facebook í gær. Haftyrðill er einn af minnstu sjófuglunu og minnir á álku. Hann er þybbinn, hálsstuttur og afar kubbslegur í útliti. Haftyrðillinn flýgur með hröðum vængjatökum og er ekki ósvipaður lunda á flugi. Fuglinn í höndum bjargvættar Haftyrðillinn hafði villst af leið og endað í Hveragerði þar sem íbúi kom...
InnlentSprengingin á Olís: Bíllinn tókst á loft og maðurinn kastaðist í burtu Sprengingin sem varð á bensínstöð Olís við Álfheima í gær kom frá bíl sem var kyrrstæður við metandælu á stöðinni. Samkvæmt heimildum Mannlífs mun bílinn hafa tekist á loft við sprenginguna og ökumaðurinn sem stóð við dæluna kastast í burtu. Á Facebook-síðu Langholtshverfis segja íbúar sprenginguna hafa hljómað eins og jarðskjálfta og urðu margir hverjir skelkaðir við hvellinn. Þá kom...