Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Pétur biskupsritari lítt hrifinn af sósíalisma: „Aldrei verið raunverulegur vilji til samninga“

Pétur Georg Markan biskupsritari verður bæjarstjóri í Hveragerði.
Pétur Georg Markan bisk­ups­rit­ari verður bæj­ar­stjóri í Hvera­gerði.

Pétur Georg Markan biskups­ritari og fyrrum marka­skorari í fótbolta, ritar grein er hefst svona:

„Það þarf ekki að rífast yfir því að lægstu taxtar endur­spegla engan veginn vinnu­framlag, álag og mikilvægi starfs­fólksins sem fær greitt samkvæmt þeim.“

Bætir við:

„Það er sannarlegt samfélagslegt mein að fólk geti illa dregið fram lífið á kaupi sem því er samnings­bundið greitt eftir. Og í framhaldi af því er það á ábyrgð okkar allra, hver svo sem staða okkar er, að vinna þeim málum framgang sem auka velferð, jöfnuð og frelsi þessa hóps sem við þessi kjör búa.“

Pétur veit hvernig best er að tækla málið:

„Slíkt raun­gerist einungis með samhentu átaki, hugrökkum haglausnum og virðingu fyrir grunn­þörfum til lífs og frelsis, innan þess kerfis og ramma sem samfélags­gerð okkar gerir ráð fyrir. Samfélags­gerð sem hefur, þrátt fyrir allt, þróað mestu lífsgæði og velsæld mannkyns­sögunnar.“

Heldur áfram:

„Hér er augljóst að benda á ógnar­áskoranir samtímans eins og fátækt og umhverfismál, en þau verða aldrei leyst nema með bestu mögulegu stjórn­tækjum sem fyrir­finnast einungis innan sömu samfélags­gerðar. Hér kemur kannski að helsta verkefni landans í dag; strönduðum kjara­viðræðum.“

Pétur virðist hafa illan bifur á sósíalisma og bein­tengir hann við byltingu eða byltingar:

„Þar virðist manni að tónninn í forystu launþega sé að umbylta samfélags­gerðinni í sósíalíska veröld. Af þeim sökum hafi aldrei verið raun­verulegur vilji til samninga – byltingin hafi alltaf verið fyrsti kostur. Það breytir engin samfélags­gerð í kjara­viðræðum – þar ræður hagfræði og samfélags­sáttmáli þess kerfis sem búið er við ferðinni.

Samfélags­gerð og breytingar þar á eiga heima á vettvangi stjórn­málanna í umboði almennings. Það er krefjandi verkefni okkar allra að lægstu laun endur­spegli vinnu­framlag og álag, veiti mann­sæmandi aðstæður, frelsi og frið.

Innan okkar samfélags­gerðar er það vel mögulegt. Ólíkt sósíalisma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim