Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hneykslismál skekja þjóðkirkjuna: Biskupinn svarar ekki spurningum

Pétur Markan og Agnes biskup hafa enn ekki séð ástæðu til að svara fyrirspurnum Mannlífs um málefni Þjóðkirkjunnar.
Pétur Markan og Agnes biskup hafa enn ekki séð ástæðu til að svara fyr­ir­spurnum Mannlífs um mál­efni Þjóð­kirkj­unnar.

Hvað er eiginlega að gerast hjá Þjóð­kirkjunni?

Þjóð­kirkjan er í mikilli kreppu – æ færri kjósa að vera innan raða hennar og stjórnar­hættir þar minna lítið á kærleikann sem Kristur boðaði.

Hneykslismál hafa með reglulegu millibili komið upp og eðlilega ratað í fjölmiðla; stærsta dæmið er að sjálfsögðu tengt Ólafi heitnum Skúlasyni biskup, sem var sakaður um kynferðis­brot af ýmsum toga – margir þekkja þá sögu vel.

Fjölmörg önnur mál hafa komið upp sem hafa ekki bætt ímynd stofnunarinnar – of langt mál væri að telja þau öll upp; en Þjóð­kirkjan hefur vissulega ekki borið þess bætur. Stöðug fækkun er staðreynd og ekkert sem bendir til þess að þeirri þróun verði snúið við á næstunni.

Í stað þess að takast á við þau hneykslismál sem komið hafa upp innan Þjóð­kirkjunnar hefur Agnes M. Sigurðar­dóttir biskup frekar kosið að reyna allt hvað hún getur til að þagga niður öll erfið mál er tengjast stofnuninni; sópa þeim undir teppið.

Nú er svo komið að Agnes biskup og hennar hjörð svarar engum fyrir­spurnum sem þykja óþægilegar, nema frá fjöl­miðlum sem eru henni þóknanlegir, og velja að spyrja ekki óþægilegra spurninga.

Mannlíf hefur síðan í september fjallað um mál er varðar séra Gunnar Björnsson, sem er sestur í helgan stein. Óskað var eftir því að séra Gunnar fengi að jarð­syngja konu í Hvera­gerðis­kirkju, en ósk konunnar látnu og fjöl­skyldu hennar var virt að vettugi án þess að nokkrar haldbærar skýringar fengjust frá Agnesi og Þjóð­kirkjunni.

Mannlíf hefur ítrekað reynt að fá viðbrögð frá Þjóð­kirkjunni en án árangurs. Þjóð­kirkjan reynir gamal­kunnuga aðferð, sem mögulega hefur reynst henni vel hingað til; að hunsa einfald­lega þá sem spyrja erfiðra spurninga.

Pétur Georg Markan bisk­ups­rit­ari.

Mannlíf sendi þann 8. september síðastliðinn tölvupóst til Péturs Markans biskups­ritara, sem var afar einfaldur og stuttur:

„Komdu sæll og blessaður Pétur, og afsakaðu ónæðið. Svanur Már Snorrason heiti ég og er blaða­maður á Mannlífi.

Ég er með fyrir­spurn.

Þegar prestar komast á „aldur“ – 67 til 70 ára, mega þeir samt sem áður sjá um til dæmis brúðkaup, skírnir og jarðar­farir? Eða hætta þeir einfald­lega allri þjónustu á vegum Kirkjunnar eftir að eftirlauna­aldri er náð?

Með kærri kveðju og von um góð viðbrögð,

Svanur“

Ekkert svar hefur borist við þessari fyrir­spurn.Þann 7. október sendi Mannlíf tölvupóst með ítarlegum spurningum er varða mál séra Gunnars Björns­sonar:

Ég undir­ritaður sendi ykkur þessar spurningar með tilvísun í upplýsingalög nr. 140/2012. 

Með áður­nefndri tilvísun í upplýsingalög er þess krafist að Þjóð­kirkjan svari eftir­farandi spurningum er varða mál séra Gunnars Björns­sonar, sem neitað var um að jarð­syngja Sigríði Erlu Ragnars­dóttur í Hvera­gerðis­kirkju 5. september sl.

Mannlíf hefur leitað eftir svörum Þjóð­kirkjunnar vegna þess að prestinum var meinað um að starfa í kirkjunni. Engin svör hafa borist. Pétur Markan biskups­ritari hefur fengið fyrir­spurn í tölvu­skeyti en hunsað það. Þá virðist sem biskup eða kirkju­yfirvöld hafi sagt syrgjendum ósatt í misvísandi svörum. 

1. Hver ákvað að séra Gunnar Björnsson mætti ekki sjá um útför frá Hvera­gerðis­kirkju þann 5. september sl? 

2. Hvers vegna var ákveðið að meina séra Gunnari að sjá um útförina?

3. Eru önnur dæmi um að prestum sé meinað að þjónusta fyrir Þjóð­kirkjuna séu þeir komnir á eftirlaun?

4. Er algengt að prestum með hreina sakaskrá  sé meinað að þjónusta fyrir Þjóð­kirkjuna, burtśéð frá aldri þeirra?

5. Hvaða prestum öðrum en séra Gunnari Björns­syni hefur verið meinað að þjónusta fyrir Þjóð­kirkjuna frá árinu 2012? Ef svo. Hverjar voru þær ástæður og um hvaða presta ræðir?

6. Er að mati stjórn­enda Þjóð­kirkjunnar, löglegt eða verjandi að meina presti á eftir­launum sem er með hreint saka­vottorð og hefur aldrei verið uppvís að glæp að þjónusta fyrir Þjóð­kirkjuna?

7. Gilda siða­reglur Þjóð­kirkjunnar fyrir presta og alla aðra er koma að starfi Þjóð­kirkjunnar, þ.m.t biskup, biskups­ritara, aðra starfs­menn Biskups­stofu og stjórn Þjóð­kirkjunnar? Hefur þetta mál komið til Siða­nefndar kirkjunnar eða sannleiks­gildi stað­hæfinga biskups og prests verið til skoðunnar á vettvangi Þjóð­kirkjunnar? 

8.  Í gögnum er Mannlíf hefur undir höndum koma fram misvísandi svör til syrgjenda. Biskup segir séra Ninnu Sif Svavars­dóttur ábyrga fyrir ákvörðuninni um að neita séra Gunnari Björns­syni að sjá um útförina marg­nefndu, en séra Ninna Sif varpar ábyrgðinni á biskup. Miðað við gögn Mannlífs er ljóst að önnur hvor, Agnes biskup eða séra Ninna Sif eru að segja ósatt. Hvert er hið rétta í málinu?

9. Vinsamlegað afhendið okkur minnis­blöð eða önnur gögn varðandi mál þetta. 

10. Hverjum hjá Þjóð­kirkjunni er falið það starf að sinna upplýsinga­skyldu við fjölmiðla sem og allan almenning í landinu? Hvers vegna hefur biskups­ritari ekki svarað fyrir­spurn Mannlífs frá 8. september? 

Mannlíf áskilur sér rétt til þess að birta spurningarnar að hluta eða öllu leyti ásamt svörum. 

Ekkert svar hefur borist frá kirkjunnar þjónum.

Hins vegar hefur Þjóð­kirkjan tjáð sig um áðurnefnt mál séra Gunnars Björns­sonar við Stundina, í grein sem blaða­maðurinn Freyr Rögnvaldson ritar; virðist sem sú grein sé eins konar varnar­grein fyrir Þjóðkirkuna og Agnesi biskup.

Í það minnsta hefur biskups­ritari svarað spurningum Stundarinnar vegna málsins, og í áður­nefndri grein miðilsins segir meðal annars:

„Biskup Íslands hefur haft skýra afstöðu gegn því að sr. Gunnar Björnsson athafni í kirkjum þjóð­kirkjunnar“ (úr svari Péturs Georgs Markan biskups­ritara).

Einnig:

Í skriflegu svari Péturs Georgs Markans biskups­ritara við fyrir­spurn Stundarinnar vegna málefna Gunnars segir að í samþykktum um innri málefni þjóð­kirkjunnar sé skýrt kveðið á um að það sé ákvörðun sóknar­presta í hverri kirkju að veita öðrum leyfi til athafna í þeim kirkjum.

Hins vegar hafi séra Agnes M. Sigurðar­dóttir, biskup Íslands, í sinni biskupstíð tekið „skýra afstöðu með þolendum og hefur hafnað öllu ofbeldi innan kirkjunnar og tekið ákveðið og fast á þeim ofbeldis­málum sem hafa komið upp.

Það er á þeim grund­velli sem biskup Íslands hefur haft skýra afstöðu gegn því að sr. Gunnar Björnsson athafni í kirkjum þjóð­kirkjunnar.

Biskup Íslands hefur gert sóknar­prestum þetta ljóst þegar það hafa komið upp tilfelli þar sem óskað hefur verið eftir að sr. Gunnar Björnsson sjái um athafnir. Um þetta hefur verið fullur samhugur á milli biskups og sóknar­prests hverju sinni, í öllum tilfellum.“

Þá stendur eftir þessi spurning: Hvers vegna svaraði Agnes biskup eða Pétur Markan biskups­ritari ekki fyrstu fyrir­spurn Mannlífs né þeirri annarri?

Sr. Ninna Sif Svav­ars­dóttir.

Mannlíf átti í samskiptum við séra Ninnu Sif Svavars­dóttur sem er prestur í Hvera­gerðis­kirkju, þar sem áðurnefnd kona var jarð­sungin. Séra Ninna Sif varpaði ábyrgðinni á máli séra Gunnars Björns­sonar yfir á Agnesi biskup, en Agnes kenndi hins vegar séra Ninnu Sif um.

Séra Ninna Sif sagði í smáskilaboðum til syrgjenda að Þjóð­kirkjan vildi ekki að séra Gunnar annaðist athafnir í kirkjunni. Bannið væri „ákvörðun“ Þjóð­kirkjunnar. „Ég er ekki að setja skilyrði heldur Þjóð­kirkjan,“ segir Ninna Sif í smáskilaboðunum.

Þegar Mannlíf leitaði eftir viðbrögðum hennar vegna málsins var svarið einfalt:

„Ég tjái mig ekki um það mál við fjölmiðla.“

Í svarbréfi til Guðmundar Jóns Sigurðs­sonar, sonar hinna látnu, segir Agnes ástæðu bannsins væntanlega vera framkomu Gunnars „sem rataði í fjölmiðla fyrir einhverjum árum meðan hann var enn embættis­maður þjóð­kirkjunnar.“

Það sem eftir stendur er að fjöl­skylda konunnar sem séra Gunnari Björns­syni var neitað um að jarð­syngja hefur fengið misvísandi svör frá þjónum Þjóð­kirkjunnar, og að Mannlíf hefur einfald­lega ekki fengið nein svör sem gætu varpað ljósi á málið.

Þessu til viðbótar er Þjóð­kirkjan í vanda vegna stjórn­leysis í fjármálum. Biskup fer sínu fram en gripið hefur verið fram fyrir hendur hans til að stöðva óráðssíu.

Mannlíf mun halda áfram að fjalla um málið þangað til svör frá æðstu stjórn­endum Þjóð­kirkjunnar hafa borist miðlinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim