Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Pétur Markan hjá Biskupsstofu svarar engu vegna séra Gunnars – Fjölskylda hinnar látnu krefst svara

Pétur Markan hjá Biskupsstofu svarar engu vegna séra Gunnars – Fjölskylda hinnar látnu krefst svara
Pétur Georg Markan bisk­ups­rit­ari verður bæj­ar­stjóri í Hvera­gerði.

Eftir að frétt Mannlífs í gær um að séra Gunnari Björns­syni hefði verið bannað að sjá um útför í Hvera­gerði fór í loftið, sendi blaða­maður Mannlífs ein­falda fyr­ir­spurn til Bisk­ups­stofu, nánar til­tekið á bisk­ups­rit­ara, Pétur Georg Markan, sam­skipta­stjóra Bisk­ups­stofu.

Fyr­ir­spurnin var svohljóð­andi:

Komdu sæll og bless­aður Pétur, og afsak­aðu ónæðið. Svanur Már Snorra­son heiti ég og er blaða­maður á Mannlífi. Ég er með fyr­ir­spurn. Þegar prestar kom­ast á „aldur“ – 67 til 70 ára, mega þeir samt sem áður sjá um til dæmis brúð­kaup, skírnir og jarð­ar­farir? Eða hætta þeir ein­fald­lega allri þjón­ustu á vegum Kirkj­unnar eftir að eft­ir­launa­aldri er náð?

Með kærri kveðju og von um góð við­brögð, Svanur

Í dag var svo fyr­ir­spurnin ítrekuð, enda ekk­ert svar borist frá Pétri eða öðrum á Bisk­ups­stofu við þess­ari ein­földu fyr­ir­spurn. Enn hefur ekk­ert svar borist hver svo sem ástæðan er.

Í áður­nefndri frétt Mannlífs um mál séra Gunnars kom fram að hann væri ekki vel­kom­inn til þjón­ustu í Hvera­gerði, en það sagði Sr. Ninna Sif Svav­ars­dóttir.

Sonur kon­unnar sem var jarð­sungin var ekki par sáttur við svarið frá Sr. Ninnu, og hafði sam­band við biskup Íslands, Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur, þann 29 ágúst síð­ast­lið­inn.

Sr. Ninna Sif Svav­ars­dóttir.

Erindi hans var svohljóð­andi:

„Heil og sæl frú Agnes. Freista þess að leita ásjár hjá þér í smá vand­ræðum. Móðir mín lést í vik­unni sem leið og við fjöl­skyldan ræddum við hina öldnu kempu, séra Gunnar Björns­son, um að syngja yfir henni. Hann tók því vel. Systir mín gekk í að fá inni í kirkj­unni í Hvera­gerði kom­andi mánu­dag og var í sam­bandi við prest­inn í Hvera­gerð­is­kirkju. Guð­mundur Jón Sig­urðs­son. Það komu smá­skila­boð frá séra Ninnu Sif um að Gunnar væri ekki leyfður í kirkj­unni, það væri ákvörðun Þjóð­kirkj­unnar. Nú þyk­ist ég vita að um ein­hvern mis­skiln­ing sé að ræða sem auð­velt ætti að vera að greiða úr. Því leita ég lið­sinnis hjá þér með þetta mál. Gunnar varð vinur okkar fjöl­skyld­unnar þegar við öll bjuggum vestur í Önund­ar­firði. Hann hefur sinnt for­eldrum mínum í veik­indum móður minnar nú í sumar, auk þess sem sam­band hefur verið eftir þau sett­ust öll að á Suð­ur­land­inu.“ 

Ekkert svar barst frá bisk­upi; en Brynja Dögg Guð­munds­dóttir Briem, sem er yfir­maður fast­eigna­sviðs Þjóð­kirkj­unnar, svar­aði erind­inu 9 dögum síðar; tveimur dögum eftir að jarð­ar­förin fór fram.

Brynja Dögg Guð­munds­dóttir Briem.

Þetta var svar Brynju:

„Ég bið þig inni­lega að afsaka hve seint ég svara erindi þínu og votta þér samúð mína. Því miður er séra Gunnar ekki lengur í þjón­ustu svo ekki er hægt að verða við beiðni þinni. Ég vona að þið finnið annan prest í presta­kall­inu sem reyn­ist ykkur vel.“

Fjöl­skylda kon­unnar sem var jarð­sungin í Hvera­gerði er í sárum eftir þessa fram­komu full­trúa Þjóð­kirkj­unnar. Hefur fjöl­skyldan nú þegar sent Bisk­ups­stofu bréf þar sem þess er kraf­ist að Agnes biskup og/eða hennar með­reið­ar­sveinar svari því skýrt og skor­in­ort hvers vegna séra Gunnar fékk ekki að jarð­syngja kon­una.

Mannlíf mun halda áfram að fjalla um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ