Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dularfullt bænabréf í Skálholtskirkju – Biskup lýsir dónaskap og öskrum

Dularfullt bænabréf í Skálholtskirkju – Biskup lýsir dónaskap og öskrum

Dul­ar­fullt bæna­bréf til bisk­ups var lengi fyrir augum gesta og gang­andi í Skál­holts­kirkju.  Þar er for­dæmd sú ákvörðun yfir­stjórnar Þjóð­kirkj­unnar að inn­heimta aðgangs­eyri af gestum kirkj­unnar. Bréfið hvarf seinna jafn skyndi­lega og það birt­ist en þá hafði fjöldi manns lesið það. Bréfinu virð­ist hafa verið stungið undir stól.

Það nýmæli var tekið upp í Skál­holts­kirkju í sum­ar­byrjun 2019 að rukka kirkju­gesti fyrir aðgang að kirkj­unni. Vígslu­bisk­up­inn fyr­ir­skip­aði gjald­tök­una í umboði kirkju­ráðs en gegn vilja starfs­manna og sókn­ar­prests­ins í Skál­holti. Aðgangur að guðs­húsum á land­inu hafði fram að þessu verið ókeypis og þekk­ist ekki nema hvað varðar turn­inn á Hall­gríms­kirkju.

Mikil óánægja var í Skál­holti með inn­heimt­una sem nemur 500 krónum á mann eða 750 krónum á hverja bif­reið en að öðru leyti mis­jafnt eftir stærð hópa. Það sjón­ar­mið kom fram að þetta væri í senn ósið­legt og synd­sam­legt af kirkj­unni að rukka þá sem vildu njóta friðar í kirkj­unni eða sækja sér huggun og frið frá amstri lífs­ins. Vígslu­biskup var aftur á móti ósveigj­an­legur hvað inn­heimt­una varðar.

Mál þetta komst í hámæli þegar starfs­maður Skál­holts­kirkju rit­aði vígslu­bisk­upi umrætt bæna­bréf og skyldi eftir þar sem vígslu­biskup var venju­lega við morg­un­bænir í kór Skál­holts­kirkju, hægra megin í svo­kall­aðri Mar­íuka­pellu, hlið­ar­ka­pellu kirkj­unnar, þar sem vígslu­biskup er vanur að sitja. Þarna skilja túristar stundum eftir kveðjur eða bæn­ar­efni, sem þeir vilja koma til skila. Bréf starfs­manns­ins var einmitt hugsað sem bæn­ar­efni og per­sónu­legt bréf til bisk­ups. Það lá lengi vel á glám­bekk, fyrir augum þeirra sem heim­sóttu kirkj­una. Nokkur fjöldi manns las bréfið sem byggði á harðri gagn­rýni á fram­ferði yfir­valda kirkj­unnar og mark­aðs­setn­ingu guðs­húss­ins, með til­vís­unum í Biblíuna.

Starfs­mað­ur­inn, sem um ræðir, er hættur störfum í Skál­holti. Hann hefur lýst því að það hafi verið í senn rangt og sárs­auka­fullt að þurfa að inn­heimta aðgangs­eyri af þeim sem komu í kirkj­una.

Kristján Björns­son, vígslu­biskup í Skál­holti.

Kristján Björns­son vígslu­biskup stað­festir tivist bréfs­ins og að hann hafi það undir höndum. Hann vísar ábyrgð­inni yfir á stjórn kirkj­unnar. „Jú hún stílar á mig og ávarpar mig í þessu bréfi. Hún lýsti því yfir að hún væri ósátt við að taka við greiðslu komu­gjalds og tengir það ein­hvern veg­inn mér. Er það ekki hin venju­lega íslenska aðferð? Hún var ósátt við þá ákvörðun sem var ekki mín ákvörðun. Því miður var eng­inn kontakt gef­inn upp í bréf­inu þannig að ég gat ekki haft sam­band við hana og því voru mér allar bjargir bann­aðar með að svara fyrir þetta. Hún var heldur ekki að óska eftir því í bréf­inu. Mér þótti það mjög leið­in­legt hvað hún var ósátt,“ segir Kristján í sam­tali við Mannlíf.

Hann segir að gestir hafi í ein­hverjum til­vikum reiðst og verið með dóna­skap og jafn­vel öskrað þegar þeir voru rukk­aðir um aðgangs­eyr­inn.

„Ég veit að kirkju­verðir okkar fengu yfir sig gusur vegna inn­heimt­unnar. Íslend­ing­arnir voru mjög erf­iðir með það, í mörgum til­fellum mjög ósvífið og mjög dóna­legt, og ég er viss um að það hafi farið illa í starfs­fólkið að vera öskrað á það. Það þykir mér sár­ast. Ég ætla ekki að gera lítið úr upp­lifun­inni sem við­kom­andi lýsir í bréf­inu sem þving­andi en ég get illa metið hennar upp­lifun á nær­veru minni. Hvort hún hafi upp­lifað það ógn veit ég ekki því ég reyni ávallt að sýna mann­virð­ingu og hlýju, vera kurt­eis og skýr. Að taka þetta gjald er ekki mín ákvörðun og starfs­manna­hald er ekki á minni hendi. Mér þótti leið­in­legt að við­kom­andi sagði mér aldrei frá óánægju sinni og gaf ekk­ert í skyn um það. Þar af leið­andi gat ég aldrei brugð­ist við því en mér þykir mjög leitt ef henni leið illa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina