Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Brottreknir starfsmenn í máli við Þjóðkirkjuna – Agnes er sökuð um óráðssíu og einelti

Brottreknir starfsmenn í máli við Þjóðkirkjuna – Agnes er sökuð um óráðssíu og einelti
Mynd/sam­sett

Aðal­með­ferð í máli Magn­hildar Sig­ur­björns­dóttur gegn Þjóð­kirkj­unni fer fram þann 27. októ­ber næst­kom­andi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Magn­hildur er fyrr­ver­andi starfs­maður Þjóð­kirkj­unnar, sem vann náið með Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur bisk­upi. Hún var í kirkju­ráði og starf­aði á Bisk­ups­stofu sem verk­efn­is­stjóri fjár­mála­deildar. Hún var einnig fram­kvæmda­stjóri leik­manna­stefn­unnar.

Magn­hildur er ekki fyrsti fyrr­ver­andi starfs­maður Þjóð­kirkj­unnar sem leggur til atlögu við stofn­un­ina.

Áður hafði séra Skírnir Garð­ars­son höfðað mál, þó ekki gegn Þjóð­kirkj­unni heldur Agnesi bisk­upi. Málið höfð­aði hann vegna meintra brota í hans garð, en Skírni var vikið úr starfi í apríl árið 2020 fyrir brot á trún­að­ar­skyldu presta og starfs- og siða­reglum þeirra.

Skírnir taldi að brott­rekstur hans hefði verið ólög­mætur.

Mál hans á sér þann aðdrag­anda að í lok árs 2015 var honum vikið frá störfum í Lága­fells­sókn, þar sem hann var sókn­ar­prestur, vegna máls sem rekja má til sam­skipta hans og konu sem seinna var sökuð um skjala­fals í bak­varð­ar­sveit á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík.

Konan hafði þegið fjár­hags­að­stoð úr líkn­ar­sjóði Lága­fells­kirkju árið 2013 þegar Skírnir var prestur í sókn­inni. Hann grun­aði að konan hefði falsað papp­íra í umsókn sinni og ræddi við félags­mála­stjóra Mos­fells­bæjar um að sjá gögn sem sneru að henni.

Konan kærði Skírni ásamt starfs­manni Mos­fells­bæjar fyrir brot á per­sónu­vernd­ar­lögum, eftir að Skírnir lét kanna hvort konan hefði sagt satt og rétt frá.

Skírnir var í kjöl­far þessa gerður að hér­aðs­presti á Suð­ur­landi.

Eftir að mál „bak­varð­ar­ins“ komst í hámæli í upp­hafi Covid-far­ald­urs­ins, sagði Skírnir frá sam­skiptum sínum við kon­una og greindi frá mál­inu sem olli brott­rekstri hans úr Lága­fells­sókn í við­tali við Vísi.

Skírnir hafði þá séð kon­una í sjón­varp­inu og sak­aði hana í við­tal­inu um að hafa beitt svikum til þess að fá fjár­hags­að­stoð úr líkn­ar­sjóði Lága­fells­kirkju árið 2013. Hann sagð­ist hafa séð hana í bak­varð­ar­sveit­inni eftir að sýnt var frá þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar flytja bak­verði til Bol­ung­ar­víkur.

Skírnir hringdi í kjöl­farið í for­stjóra Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða og var­aði við kon­unni.

Eftir það var séra Skírni sagt upp hjá Þjóð­kirkj­unni.

Bisk­ups­stofa gaf frá sér yfir­lýs­ingu í lok apríl 2020 og vís­aði því algjör­lega á bug að brotið hefði verið á Skírni með upp­sögn hans.

Skírnir hefur síðar sakað Agnesi biskup um ein­elti. Í sam­tali við Mannlíf í vor vildi Skírnir ekki tjá sig efn­is­lega um málið, en sagð­ist þó undr­ast að biskup skyldi ekki víkja úr starfi meðan á mála­rekstr­inum stæði. „Það hefði verið heið­ar­leg­ast,“ sagði hann í mars.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er nokkur titr­ingur innan Þjóð­kirkj­unnar vegna beggja mála­ferl­anna.

Magn­hildur Sig­ur­björndóttir er sögð hafa verið vel lið­inn starfs­maður innan Þjóð­kirkj­unnar og upp­sögn hennar kom mörgum í opna skjöldu. Því er nú meðal ann­ars velt upp hvort mál hennar snúi að ein­elti á vinnu­staðnum og erf­iðu starfs­um­hverfi, auk þess að snerta svip­lega upp­sögn hennar.

Innan Þjóð­kirkj­unnar standa spjót á Agnesi vegna meintrar óráðsíu í fjár­málum og eyðslu hennar. Ljóst er að kostn­að­ur­inn við mála­ferlin ein og sér verður umtals­verður fyrir stofn­un­ina. Eins og áður sagði starf­aði Magn­hildur í fjár­mála­deild Bisk­ups­stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina