Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Séra Skírnir krefst réttlætis: Agnes biskup dregin fyrir dóm á fimmtudag

Séra Skírnir krefst réttlætis: Agnes biskup dregin fyrir dóm á fimmtudag
Agnes biskup og Séra Skírnir Garð­ars­son.

Agnes Sig­urð­ar­dóttir biskup verður dregin fyrir dóm á næst­unni vegna meintra brota gegn  Skírni Garð­ars­syni sem hrak­inn var úr starfi i tvígang. Skírnir telur brott­rekst­ur­inn vera ólög­mætan. Hann fer fram á háar bætur frá kirkj­unni, ann­ars vegar miska­bætur vegna æru­skaða og mein­gerðar á per­sónu hans upp á 4.5 millj­ónir króna og hins vegar skaða­bætur vegna þess tjóns sem prest­ur­inn telur sig hafa orðið fyrir upp á 5.3 millj­ónir króna.

Málið á sér ýmsar hliðar. Meðal ann­ars var brot­ist inn í tölvu­póst Skírnis af full­trúa Þjóð­kirkj­unnar þegar hann starf­aði sem sókn­ar­prestur í Lága­fells­kirkju. Hann var sak­aður um að hafa brugð­ist trún­aði við sókn­ar­barn sem bað um aðstoð. Þar var um að ræða ein­stak­ling sem seinna varð þekktur sem bak­vörður á Bol­ung­ar­vík. Skírnir var síðan hrak­inn úr starfi sínu þar og gerður að hér­aðs­presti á Suð­ur­landi. Hann hefur meðal ann­ars sakað biskup um ein­elti.

„Ég undr­ast að biskup skuli ekki víkja úr starfi“

Bak­vörð­ur­inn kom aftur við sögu í máli Skírnis nokkru síðar. Þá sá prest­ur­inn sjón­varps­frétt um að konan hefði hugs­an­lega farið til Bol­ung­ar­víkur sem bak­vörður á fölskum for­sendum. Séra Skírnir sagði frá þessu í við­tali við vef­mið­il­inn Vísi og var rek­inn öðru sinni úr starfi sem prestur.

Agnes biskup hefur ekki ljáð á því máls að semja um bætur eða rétta hlut prests­ins með nokkrum hætti. Séra Skírnir sagð­ist í sam­tali við Mannlíf ekki vilja tjá sig um efn­is­at­riði máls­ins.

„Ég get þó sagt að ég undr­ast að biskup skuli ekki víkja úr starfi á meðan þessi mála­rekstur stendur. Það hefði verið heið­ar­leg­ast,“ sagði Skírnir í morgun.

Mála­ferli hefj­ast á fimmtu­dag­inn 25 mars. Lögmaður Skírnis er Sigurður Kári Krist­jáns­son en Gestur Jónsson er til varnar fyrir Agnesi og Þjóð­kirkj­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina