Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Agnes biskup skellir skuldinni á séra Ninnu Sif: „Ég er ekki að setja skilyrði heldur Þjóðkirkjan“

Agnes biskup skellir skuldinni á séra Ninnu Sif: „Ég er ekki að setja skilyrði heldur Þjóðkirkjan“
Sr. Ninna Sif Svav­ars­dóttir.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, sver nú af sér aðkomu að máli séra Gunnars Björns­sonar sem var meinað að sjá um útför konu sem hann þekkti vel. Óskin um þjón­ustu séra Gunnars komin frá kon­unni og syrgj­andi fjöl­skyldu hennar.

Skilaboð séra Ninnu voru afdrátt­ar­laus.

Séra Ninna Sif Svav­ars­dóttir, sókn­ar­prestur í Hvera­gerð­is­kirkju, sagði í smá­skila­boðum til syrgj­enda að Þjóð­kirkjan vildi ekki að séra Gunnar ann­að­ist athafnir í kirkj­unni. Bannið væri „ákvörðun“ Þjóð­kirkj­unnar. „Ég er ekki að setja skil­yrði heldur Þjóð­kirkjan,“ segir Ninna Sif í smá­skila­boð­unum. Nú segir Agnes biskup allt annað og vísar á séra Ninnu.

Í svar­bréfi til Guð­mundar Jóns Sig­urðs­sonar, sonar hinna látnu, segir Agnes ástæðu banns­ins vænt­an­lega vera fram­komu Gunnars „sem rataði í fjöl­miðla fyrir ein­hverjum árum meðan hann var enn emb­ætt­is­maður þjóð­kirkj­unnar“. 

Gunnar er með hreina saka­skrá og það er ekk­ert sem segir að hann megi ekki þjóna, þegar þess er óskað.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup

Mannlíf hefur ítrekað reynt að fá svör vegna máls­ins frá æðstu ráða­mönnum Þjóð­kirkj­unnar – en þar hefur þögnin nú tekið yfir og engin svör að fá. Mannlíf setti sig í sam­band við séra Ninnu Sif, og spurði um ósam­ræmið í orðum hennar og bisk­ups.

„Ég tjái mig ekki um það mál við fjöl­miðla,“ sagði hún.

Ástæðan er vænt­an­lega fram­koma hans

Mannlíf hefur undir höndum tölvu­póst­sam­skipti milli bisk­ups og Guð­mundar Jóns er varða málið. Samkvæmt þeim vísar Agnes því á bug að það hafi verið hún sem bann­aði séra Gunnari Björns­syni að þjóna við útför­ina áður­nefndu:

„Sæll Ég votta þér sam­úðar vegna frá­falls móður þinnar. Varðandi erindi þitt þá fól ég starfs­manni að svara því og komst að því áðan að svarið hafði ekki borist þér. Ábyrgð­ar­að­ilar sókn­ar­kirkna eru sókn­ar­nefnd­irnar. Hver sókn­ar­nefnd í sam­ráði við sókn­ar­prest­inn ræður umgengni í kirkj­unni og afnotum hennar. Sókn­ar­prest­ur­inn ber ábyrð á öllum athöfnum í kirkj­unni, líka þar sem aðrir prestar þjóna. Þessir aðilar hafa í umræddri kirkju ákveðið að sr. Gunnar athafn­aði ekki í kirkj­unni. Ástæðan er vænt­an­lega fram­koma hans sem rataði í fjöl­miðla fyrir ein­hverjum árum meðan hann var enn emb­ætt­is­maður þjóð­kirkj­unnar. Kv. Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir“

Séra Gunnar Björns­son

Samkvæmt þessu er Agnes biskup að segja að ákvörð­unin hafi verið hjá þeim sem stjórna í Hvera­gerð­is­kirkju og að Gunnar sé snið­geng­inn vegna mála sem hann var sýkn­aður af.

Mannlíf hefur sent fyr­ir­spurn um málið til Bisk­ups­stofu, en þar er það sama uppi á ten­ingnum – engin svör um fram­kom­una við syrgj­end­urna og séra Gunnar. Guð­mundur Jón segir að mál­inu sé fjarri því lokið.

„Ég vil fá það á hreint hver er að segja ósatt og fá skýr­ingu á fram­kom­unni við prest­inn. Þá vil ég að við fjöl­skyldan og séra Gunnar fáum afdrátt­ar­lausa afsök­un­ar­beiðni frá þessu fólki,“ segir Guð­mundur Jón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ