Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mál séra Gunnars heldur áfram: „Mér virðist því að siðanefnd geti ekki tekið erindi þitt fyrir“

Mál séra Gunnars heldur áfram: „Mér virðist því að siðanefnd geti ekki tekið erindi þitt fyrir“

Eins og Mannlíf hefur margoft fjallað um þá neit­aði Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup Íslands erindi fjöl­skyldu hér á landi þess efnis að séra Gunnar Björns­son myndi fá að jarð­syngja konu í Hvera­gerð­is­kirkju sem hafði sér­stak­lega óskað eftir því að séra Gunnar myndi sjá um útför­ina.

Kjarni máls­ins er þessi:

Séra Gunnari Björns­syni, fyrr­ver­andi sókn­ar­presti, var bannað að jarð­syngja konu í Hvera­gerði þrátt fyrir ein­dregna ósk fjöl­skyldu hinnar látnu. Um var að ræða mikla vin­áttu milli Gunnars og fjöl­skyld­unnar allt frá því hin látna og séra Gunnar bjuggu í Önund­ar­firði þar sem hann þjón­aði um ára­bil. Gunnar heim­sótti kon­una í tvígang á sjúkra­beð hennar og aðstoð­aði fjöl­skyld­una í hví­vetna fyrir and­látið. Guð­mundur Jón Sig­urðs­son, sonur hinnar látnu, segir málið vera allt hið und­ar­leg­asta og bera keim af hatri.

Engar útskýr­ingar hafa verið gefnar á synjun bisk­ups þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir frá bæði fjöl­skyldu kon­unnar sem og Mannlífi.

Agnes biskup vísar ábyrgð­inni á prest­inn í Hvera­gerð­is­kirkju, séra Ninnu Sif Svav­ars­dóttur, sem aftur á móti hefur vísað ábyrgð­inni á Agnesi biskup; mis­vísandi svör þeirra til fjöl­skyld­unnar hafa vakið undrun fjöl­margra og, hjá fjöl­skyldu kon­unnar, reiði.

Guð­mundur Jón Sig­urðs­son er sonur kon­unnar sem var jarð­sungin nýlega, og hann sendi fyr­ir­spurn á siða­nefnd Presta­fé­lags Íslands, sem var svohljóð­andi:

Heill og sæll Þor­grímur.

„Mér er sagt að þú sért for­maður siða­nefndar Presta­fé­lags Íslands og ég leita til þín sem slíks.

Mér leikur mjög hugur á að siða­nefndin skoði fram­komu séra Ninnu Sifjar Svav­ars­dóttur í garð fjöl­skyldu minnar. Fyrir skömmu lést móðir mín og við fjöl­skyldan leit­uðum til séra Gunnars Björns­sonar á Selfossi til að jarð­syngja hana.

Þar lok­uð­ust dyr því Gunnar var ekki vel­kom­inn í Hvera­gerð­is­kirkju. Ninna Sif sagði það ákvörðun Þjóð­kirkj­unnar sem síðar reynd­ist ósatt ef marka má orð bisk­ups. Agnes segir það alfarið ákvörðun prests og sókn­ar­nefndar að meina Gunnar að jarð­syngja í kirkj­unni.

Ég hef sent erindi til Ninnu Sifjar með afriti á for­mann  sókn­ar­nefndar en er bara hunds­aður. Kirkjan virð­ist ætla að þegja málið í hel. Andlát í fjöl­skyldu er auð­vitað alvöru­mál og því  óvið­un­andi og ekki síður óvið­eig­andi að sjálf kirkjan hagi sér með þessu hætti. Mér finnst við eiga rétt á skýr­ingum á því hvers vegna séra  Gunnari Björns­syni var meinað að fram­kvæma þessa athöfn.  Gunnar er fjöl­skyldu­vinur til ára­tuga og mjög sér­kenni­legt að  hann hafi ekki fengið að syngja yfir móður minni.  Óska þess að siða­nefnd presta­fé­lags­ins aðstoði mig við að fá svör við þessu. Einnig óska ég þess að siða­nefndin aðstoði þau sem að þess­ari höfnun stóðu við að biðja okkur fjöl­skyld­una og séra Gunnar afsök­unar og þessum und­ar­lega gjörn­ingi. Með kær­leiks­kveðjum,  Guð­mundur Jón Sig­urðs­son.“

Svarið sem Guð­mundur fékk frá for­manni siða­nefndar Presta­fé­lags Íslands, séra Þorgrími Dan­í­els­syni, var eft­ir­far­andi:

„Heill og sæll Guð­mundur. Það er rétt að ég er for­maður siða­nefndar PÍ (Presta­fé­lags Íslands). Eftir síð­ustu breyt­ingar á siða­reglum PÍ (2012) taka siða­reglur PÍ ein­ungis til sam­skipta presta sín á milli. Mér virð­ist því að siða­nefnd geti ekki tekið erindi þitt fyrir. Virð­ing­ar­fyllst. Þor­grímur.“

Enginn hjá Þjóð­kirkj­unni virð­ist ætla að svara fyrir það að séra Gunnari var bannað að jarð­syngja í Hvera­gerð­is­kirkju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi