Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Enn þegja Agnes biskup, Sr. Ninna og Pétur um mál séra Gunnars: „Ég tjái mig ekki um það mál“

Enn þegja Agnes biskup, Sr. Ninna og Pétur um mál séra Gunnars: „Ég tjái mig ekki um það mál“

Mannlíf hefur árang­urs­laust reynt að fá svör frá æðstu ráða­mönnum hinnar íslensku Þjóð­kirkju vegna máls séra Gunnars Björns­sonar, sem neitað var um að fá að jarð­setja góða vin­konu sína sem hafði farið þess á leit á hennar síð­ustu dögum að hann myndi sjá um útför hennar. Fjöl­skyldu kon­unnar var mjög brugðið vegna neit­un­ar­innar, og er hrein­lega í sárum.

Ninna Sif Svav­ars­dóttir bann­aði að séra Gunnar sæi um útför­ina.

Líkt og Mannlíf þá hefur fjöl­skyldan árang­urs­laust reynt að fá rök­studd svör frá Agnesi biskup, bisk­ups­rit­ara/sam­skipta­stjóra – Pétri Georgi Markan, og prest­inum í Hvera­gerð­is­kirkju, Sr. Ninnu Sif Svav­ars­dóttur.

Pétur Georg Markan er sam­skipta­stjóri/bisk­ups­rit­ari Þjóð­kirkj­unnar, en forð­ast hins vegar sam­skipti við Mannlíf vegna máls séra Gunnars Björns­sonar.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn um málið á bisk­ups­stofu, en bisk­ups­rit­ari/sam­skipta­stjóri Þjóð­kirkj­unnar, Pétur Georg Markan, hefur ekki svarað neinu.

Fyr­ir­spurnin var send til Péturs þann 8. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, og var ein­föld – nákvæm­lega svona:

Komdu sæll og bless­aður Pétur, og afsak­aðu ónæðið. Svanur Már Snorra­son heiti ég og er blaða­maður á Mannlífi. Ég er með fyr­ir­spurn. Þegar prestar kom­ast á „aldur“ – 67 til 70 ára, mega þeir samt sem áður sjá um til dæmis brúð­kaup, skírnir og jarð­ar­farir? Eða hætta þeir ein­fald­lega allri þjón­ustu á vegum Kirkj­unnar eftir að eft­ir­launa­aldri er náð? Með kærri kveðju og von um góð við­brögð, Svanur

Ekkert svar, ekk­ert hljóð.

Blaða­maður Mannlífs átti í sam­skiptum við Sr. Ninnu í Hvera­gerð­is­kirkju, sem sagði ein­fald­lega við blaða­mann Mannlífs:

„Ég tjái mig ekki um það mál við fjöl­miðla.“

Blaða­maður spurði á móti hvers vegna hún vildi ekki tjá sig um málið við fjöl­miðla, og hvort hún eða Þjóð­kirkjan hefðu eitt­hvað að fela:

Blm. Mannlífs:

„Hvers vegna ekki? Það er algjör þögn Þjóð­kirkj­unnar í þessu máli. Hafið þið eitt­hvað að fela? Veit ekki til ann­ars en að séra Gunnar Björns­son sé með hreina saka­skrá. Einhver er ástæðan eða ástæð­urnar fyrir þögn ykkar. Ég vísa aftur í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012, og ítreka spurn­ingar mínar.“

En þá heyrð­ist ekk­ert nema ærandi þögnin; sama þögnin og virð­ist vera orðin að ein­kenn­is­merki Þjóð­kirkj­unnar hér á landi; að reyna að þagga mál niður án nokk­urra svara eða útskýr­inga. Kallast ein­fald­lega þöggun, og er ekki til sóma og hrein­lega til skammar fyrir opin­bera og risa­stóra stofnun sem haldið er uppi með skattfé almenn­ings. Og það er ekki lítið fé.

Mannlíf hefur undir höndum mörg sam­skipti sonar kon­unnar sem jarð­sungin var í Hvera­gerð­is­kirkju og var neitað um að séra Gunnar Björns­son sæi um útför­ina.

Þar stendur ekki steinn yfir steini.

Vísa Agnes biskup og Sr. Ninna hvor á aðra varð­andi það hver það var sem átti síð­asta orðið varð­andi bann­fær­ingu séra Gunnars Björns­sonar. Agnes biskup segir að ákvörð­unin hafi verið tekin af Sr. Ninnu, en hún aftur á móti segir að Agnes biskup hafi haft síð­asta orðið.

En frá bisk­ups­rit­ar­anum/sam­skipta­stjór­anum Pétri Georg Markan hefur hins vegar hvorki heyrst hósti né stuna; þegir þunnu hljóði, sem er í hróp­andi and­stöðu við starf hans.

Mannlíf er hvergi nærri hætt að fjalla um málið, og á morgun verður sendur ítar­legur spurn­ing­ar­listi á æðstu stjórn­endur Þjóð­kirkj­unnar, sam­skipta­stjóra og Sr. Ninnu Sif Svav­ars­dóttur, og þá með vísan í upp­lýs­inga­lög.

Íslensku Þjóð­kirkj­unni ber að svara fyr­ir­spurnum frá fjöl­miðlum, hvort sem spurn­ing­arnar eða efnið er á jákvæðu nót­unum eður ei, þægi­legar eða óþægi­legar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ