Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ólgan í kringum biskup: Kirkjan neitar ítrekað að svara fyrir ávirðingar

Agnes M. Sigurðardóttir biskup.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup.

Þjóð­kirkjan neitar að svara fyrir þau deilumál sem finna má innan kirkjunnar. Um nokkurt skeið hefur Mannlíf leitað viðbragða hjá tals­mönnum hennar vegna ýmissa mála en án árangurs.

Pétur Georg Markan, samskipta­stjóri Biskups­stofu, virðist ekki vilja ræða viðkvæm málefni sem að kirkjunni snúa. Um nokkurt skeið hafa hrannast upp ósvaraðar fyrir­spurnir vegna mála sem snúa að einelti og deilum innan Þjóð­kirkjunnar. Hvorki Pétur né Agnes biskup hafa séð sóma sinn í að svara fyrir þau.

Frá því í apríl síðastliðnum hefur Mannlíf óskað eftir viðtali við biskup. Þá hafði Agnes rekið séra Skírni Garðarsson úr embætti. Þá neitaði biskup að ræða málið við Mannlíf og taldi nóg að ræða við fjölmiðla í gegnum frétta­tilkynningu.

Síðan birti Pétur hina umdeildu mynd af trans-Jesú með brjóst. Mannlíf leitaði aftur viðbrigða hjá biskups­stofu vegna mynd­birtingarinnar og óskaði jafnframt eftir viðtali við Agnesi. Engin svör bárust.

Þá greindi Mannlíf frá lykla­stríði presta á Eskifirði. Davíð Baldursson, fráfar­andi sóknar­prestur á Eskifirði, virðist eiga erfitt með að láta eftir brauðið til arftaka sinna. Að minnsta kosti er hann enn með lykla­völdin að presta­skrif­stofunni og hleypur enn til verka sem prestur í bænum. Prestarnir sem tóku við af honum fyrir tæpu ári síðan fengu nóg og kvörtuðu til biskups. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrir­spurnir svaraði Pétur engu.

Næst í röðinni var kærumál fyrrum kirkju­varðar og útfarar­stjóra í Borgarnesi sem kvartar undan einelti og hefur ekki fengið lausn sinna mála þrátt fyrir umleitanir hjá sóknar­presti, nefnd sóknarinnar né biskupi. Mannlíf leitaði viðbragða Agnesar en engin slík fást.

Að endingu flutti Mannlíf fréttir af óánægju vegna umdeildrar innheimtu aðgangs­eyris kirkjunnar í Skálholti. Bæði starfs­fólk kirkjunnar, sem orðið hefur fyrir verulegum óþægindum frá kirkju­gestum vegna innheimtunnar, og sóknar­prestur hennar eru ósátt við gjald­heimtuna. Fyrrum kirkju­vörður segir gjald­heimtuna synduga.

Pétur Georg Markan, sam­skipta­stjóri Þjóð­kirkj­unnar.

Þegar allt er tekið saman hefur Mannlíf þurft að ganga á eftir svörum Péturs samskipta­stjóra svo mánuðum skiptir og aldrei fæst Agnes biskup til að tjá sig um þessi málefni og ólguna sem ríkir. Það var svo loks í síðustu viku að þau sögulegu tíðindi urðu að samskipta­stjórinn svaraði loksins uppsöfnuðum fyrir­spurnum sem á borði hans eru. Svarið var stutt og ekki í þeim anda sem hann hafði áður lofað.

„Biskups­stofa veitir ekki viðbragð vegna þessara frétta hjá ykkur. Gangi þér og ykkur vel,“ segir Pétur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim