Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Útfararstjóri kærir einelti og andlegt ofbeldi

Hveggviður Hreggviðsson, fyrr­verandi kirkju­vörður, meðhjálpari og útfarar­stjóri Borgar­neskirkju, neyðist til að leita til úrskurðar­nefndar Þjóð­kirkjunnar vegna þess sem hann kallar enn eitt eineltis­málið sem ekki er tekið á innan kirkjunnar. Lögmaður hans er með kæruna klára þar sem fjallað er meðal annars um aðkomu biskups að málinu.

Kirkjan í Borg­ar­nesi

Kæran er í mörgum liðum og snýr að vald­níðslu innan kirkjunnar þar sem Hreggviður hefur helgað líf sitt kirkjunni í Borgarnesi. Málið hefur þæfst á borði biskups um nokkurt skeið án þess að lausn hafi fundist. „Mál mitt snýr að alvarlegum umkvörtunum. Sóknar­presti og sóknar­nefnd hefur ekki tekist að bera klæði á vopnin. Biskup hlustaði á umkvörtun okkar hjóna og útvegaði sátta­semjara í málið. En mér skilst að aðstöðu sinnar vegna geti biskup ekki tekið öðruvísi á málinu og þess vegna er málið í þessum farvegi,“ segir Hreggviður.

„Fram­koman í okkar garð hefur ítrekað verið svo vond.“

Á endanum leitaði Hreggviður ásamt konu sinni til lögmanns til að kæra málið til úrskurðar­nefndar Þjóð­kirkjunnar. Deilu­efnið virðist vera langvinnar deilur hjónanna við organista. „Hvorki sóknar­nefndin né biskup hafa viljað hlusta á okkur eða aðhafast nokkuð. Úrskurðar­nefndin er því síðasta úrræðið og við þurftum á endanum að fá lögfræðing í málið. Það var ekkert annað að gera í stöðunni, það er sárt fyrir mig að stjórn kirkjunnar taki ekki á þessu,“ segir Hreggviður sem segir málið hafa farið með heilsu sína.

„Við hjónin höfum gefið allt okkar til kirkjunnar síðustu 20 ár. Framkoman í okkar garð, andlegt ofbeldi og einelti, hefur ítrekað verið svo vond að við gátum ekki lengur sætt okkur við það lengur. Það eru vissulega vonbrigði að biskup hafi ekki sinnt þessu betur og um það ríkir mikil óánægja vegna sífelldra eineltis­mála innan kirkjunnar sem ekki er unnið úr. Það kannast margir við getuleysi kirkjunnar til að taka á málum. Þetta er vandamál. Við höfum átt langt og farsælt starf innan kirkjunna og mér þykir mjög sárt að fá svona kaldar kveðjur í lokin frá hendi kirkjunnar. Þetta er mjög dapurlegt og verður seint, eða aldrei, fyrir­gefið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim