Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lyklastríð presta á Eskifirði: „Hann jarðar meira en við prestarnir“

Lyklastríð presta á Eskifirði: „Hann jarðar meira en við prestarnir“
Eski­fjarð­ar­kirkja. Mynd / East.is

Davíð Bald­urs­son, frá­far­andi sókn­ar­prestur á Eski­firði, virð­ist eiga erfitt með að láta eftir brauðið til arf­taka sinna. Að minnsta kosti er hann enn með lykla­völdin að presta­skrif­stof­unni og hleypur enn til flestra verka sem prestur í bænum. Prest­arnir sem tóku við af honum fyrir tæpu ári síðan hafa fengið nóg og kvartað til bisk­ups.

Í októ­ber í fyrra tóku þau Benjamín Hrafn Böðv­ars­son og Erla Björk Jóns­dóttir við sem sókn­ar­prestar er Davíð lét af emb­ætti vegna ald­urs. Nýju prest­unum var hins vegar til­kynnt að frá­far­andi prestur héldi prests­skrif­stof­unni. Benjamín og Erla kvört­uðu yfir því við sókn­ar­nefnd­ina sem lof­aði að þau fengju skrif­stof­una afhenta. Úr því hefur þó ekki enn orðið þrátt fyrir að næstum ár sér liðið frá presta­skipt­unum og deila sókn­ar­prest­arnir skrif­stofu með kirkju­verði og starfs­fólki menn­ing­ar­skrif­stofu Fjarð­ar­byggðar.

Þetta er hið leið­in­leg­asta mál og stórfurðu­legt

Benjamín bendir á að tækni­lega séð hafi þau aðgang að presta­skrif­stof­unni en það sé alveg ljóst að hún sé ekki þeirra heldur Davíðs. Aðspurður telur hann það aug­ljóst að sjálf prests­skrif­stofan eigi að vera fyrir núver­andi sókn­ar­presta. „Þegar við vorum sett inn í emb­ættið fengum við að vita það að frá­far­andi sókn­ar­prestur yrði áfram með skrif­stof­una. Þetta er hið leið­in­leg­asta mál og stórfurðu­legt. Á skrif­stof­unni er skrúð­inn og flest vinnu­tækin okkar. Þegar við héldum að þetta væri að leys­ast, eftir fram­kvæmdir sem stóðu yfir, þá breytt­ist ekk­ert því hann kom aftur inn með dótið sitt og búin til önnur skrif­stofa fyrir okkur sem við deilum með öðrum. Þetta hefur mér þótt afar leið­in­legt,“ segir Benjamín.

Benjamín Hrafn Böðv­ars­son prestur. Mynd / Þjóð­kirkjan
Erla Björk Jóns­dóttir prestur. Mynd / Þjóð­kirkjan

Benjamín ítrekar að fátt hafi breyst í stöð­unni þrátt fyrir kvart­anir til bæði sókn­ar­nefndar og bisk­ups. Öllu verra þykir honum þó að frá­far­andi sókn­ar­prest­ur­inn hlaupi enn til flestra emb­ætt­is­verka í bænum. „Staðan er því miður sú að hann jarðar meira en við prest­arnir. Við höfum reynt allt hvað við gátum til að leysa þetta með skrif­stof­una og nú er bolt­inn hjá Bisk­ups­stofu,“ segir Benjamín.

Davíð, frá­far­andi sókn­ar­prestur, við­ur­kennir aðspurður að hafa enn aðstöðu á sjálfri presta­skrif­stof­unni. Hann bendir á að það sé með leyfi sókn­ar­nefndar og að það sé ekk­ert rangt við að hann sinni prestemb­ættum áfram. „Það er bara þannig að allir emer­ítar hafa heim­ild til að emb­ætta. Í þeim til­vikum sem maður er á staðnum eða beð­inn um verkið þá hef ég það leyfi. Frá mínum bæj­ar­dyrum séð er ekk­ert sem varnar þeim að kom­ast inn á skrif­stof­una. Ég hef haft heim­ild sókn­ar­nefndar til að vera þarna og hafa aðgang að kirkj­unni ef ég er beð­inn um að þjón­usta eitt­hvað,“ segir Davíð.

Á end­anum verður það lík­lega Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups að leysa presta­deil­una á Eski­firði því málið er að minnsta kosti komið inn á hennar borð eftir að Benjamín og Erla sendu þangað inn erindi fyrir nokkrum vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina