Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bjarnheiður fordæmir verkfall Eflingarfólks á hótelum: „Áróðursvélar Eflingar hamast linnulaust“

Samninganefnd Eflingar fagnar.
Samn­inga­nefnd Eflingar fagnar.

„Fólkið sem rekur ferða­þjónustu­fyrirtækin er kallað öllum illum nöfnum og stillt upp sem ótýndum glæpa­mönnum, sérstak­lega ef fyrir­tækin hafa náð að skila einhverjum arði – sem auðvitað er harðbannað og svívirðilegt í augum Eflingar,“ skrifar Bjarnheiður Halls­dóttir, formaður Samtaka í ferða­þjónustu, um verkfalls­aðgerðir Eflingar gegn hótelum á höfuð­borgar­svæðinu. Grein hennar ber yfir­skriftina, Nú er nóg komið.

Bjarnheiður fordæmir framgöngu Eflingar­fólks í aðsendri grein á Vísi.

„Áróðurs­vélar Eflingar hamast linnulaust – bæði nafnlaust og undir nafni – við að mála ferða­þjónustu upp sem þræla­kistu þar sem ekki er hugsað um neitt annað en að maka krókinn á kostnað þeirra lægst launuðu,“ skrifar hún.

Bjarnheiður bendir á að svo virðist sem verkalýðs­félagið telji við hæfi að ráðast á atvinnu­grein sem sé nánast á hnjánum eftir að hafa gengið í gegnum tveggja ára barning vegna Covid.

„Nú, á meðan greinin er enn á hnjánum eftir heims­faraldur, finnst Verkalýðs­félaginu Eflingu það frábær hugmynd að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og höggva í ferða­þjónustu, smátt og smátt, þar til að hún lamast algjör­lega,“ skrifar Bjarnheiður.

Grein Bjarnheiðar í heild sinni á Vísi.

Nú er rétt ár liðið frá því að síðustu sótt­varnar­aðgerðum var aflétt á landa­mærum Íslands, eftir tveggja ára barning og ólýsanlega erfið­leika allra í ferða­þjónustu. Endur­reisn og viðspyrna greinarinnar hefur síðan verið öllum vonum framar, sem betur fer fyrir alla Íslendinga. Gatið sem tekjur af ferða­mönnum skildi eftir sig í ríkis­sjóði var það stórt að endurkoma ferða­manna varð mikil­vægasta breytan í öllum hagspám á Íslandi.

En Adam var ekki lengi í Paradís. Hinn nýi (eða öllu heldur gamli) skóli verkalýðs­leiðtoga þessa lands virðist leggja sérstaka fæð á ferða­þjónustu. Nú, á meðan greinin er enn á hnjánum eftir heims­faraldur, finnst Verkalýðs­félaginu Eflingu það frábær hugmynd að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og höggva í ferða­þjónustu, smátt og smátt, þar til að hún lamast algjör­lega.

Áróðurs­vélar Eflingar hamast linnulaust – bæði nafnlaust og undir nafni – við að mála ferða­þjónustu upp sem þræla­kistu þar sem ekki er hugsað um neitt annað en að maka krókinn á kostnað þeirra lægst launuðu. Fólkið sem rekur ferða­þjónustu­fyrirtækin er kallað öllum illum nöfnum og stillt upp sem ótýndum glæpa­mönnum, sérstak­lega ef fyrir­tækin hafa náð að skila einhverjum arði – sem auðvitað er harðbannað og svívirðilegt í augum Eflingar. Það væri auðvitað miklu betra fyrir starfs­menn að fyrir­tækin væru öll á hausnum. Í þessu samhengi er rétt að minna á það enn einu sinni, að langflest ferða­þjónustu­fyrirtæki á Íslandi eru lítil eða meðalstór og rekin af venjulegu fjölskyldu­fólki.

Nái fyrir­ætlanir og verkfalls­boðanir Eflingar fram að ganga, þá líður ekki á löngu, þar til ferða­þjónusta á öllu landinu lamast. Ferða­þjónusta byggir á samvinnu margra ólíkra fyrir­tækja, sem starfa í nokkurs konar keðju – ef einn hlekkurinn slitnar, þá er voðinn vís. Erlendir ferðamenn munu afbóka ferðir sínar til landsins, gjaldeyris­tekjurnar hætta að streyma til landsins, fólk missir vinnuna, verð­bólgan mun halda áfram að aukast og orðspor áfanga­staðarins mun bíða hnekki. Er það það sem við viljum að gerist? Ætlum við að leyfa því að gerast?

Verkföll eru skilgreind sem ein af höfuðógunum ferða­þjónustu – við hliðina á nátt­úrhamförum, stríðs­rekstri, farsóttum og hryðjuverkaógn. Við höfum á allra síðustu árum þurft að kljást við ýmsar ógnanir og þurfum á þessum tíma­punkti alls ekki á heima­gerðum hamförum í boði Eflingar að halda.

Höfundur er formaður Samtaka ferða­þjónustunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim