Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Óshlíðarmálið opnað aftur: „Þeir sem hafa skoðað málið segja allir að bíllinn hafi ekki oltið“

Ríkis­saksóknari hefur lagt fyrir lögreglu­stjórann á Vestfjörðum að taka afstöðu til nýrra gagna í hinu svokallaða Óshlíðar­máli.

Hefur því ríkis­saksóknari fellt úr gildi ákvörðun lögreglu­stjórans á Vestfjörðum þess efnis að hætta rannsókn á andláti Kristins Hauks Jóhannessonar, í Óshlíð fyrir rúmum 50 árum.

Kristinn Haukur.

Segir ríkis­saksóknari um ákvörðun sína að í ljósi upplýsinga sem komi fram í hinum nýju gögnum er varða málið telji embættið sér ekki annað fært en að fella ákvörðun lögreglu­stjórans úr gildi.

Því er lagt fyrir lögreglu­stjórann að taka afstöðu til nýju gagnanna; meta á grund­velli þeirra hvort efni séu til að fram fari frekari rann­sóknir í málinu.

Mun þetta vera í annað skipti sem ríkis­saksóknari gerir lögreglu­stjóranum á Vestfjörðum að rannsaka málið frekar.

Eins og fjallað hefur verið um þá snýst málið um andlát Kristins Hauks Jóhannessonar, sem lést í Óshlíð árið 1973, er hann var einungis 19 ára gamall.

Sonur Kristins og bróðir hafa barist hart fyrir því að lögreglan rann­sakaði hvort andlát Kristins hafi borið að með saknæmum hætti, en Kristinn var sagður hafa látist er bíll sem hann var farþegi í valt niður í Óshlíð og endaði í flæða­málinu.

Voru tveir aðrir einstaklingar í bílnum sem sluppu báðir með minni­háttar meiðsl, og er fólkið á lífi í dag.

Lögreglan stöðvaði rannsókn málsins í október síðastliðnum eftir að hafa grafið upp líkams­leifar Kristins og fengið réttar­lækni til að leggja mat sitt á áverka Kristins; taldi réttar­læknirinn ekkert benda til annars en að Kristinn hefði látist í umferðar­slysi.

Þórólfur Hilbert Jóhannesson er bróðir Kristins.

Hann sagði í samtali við ruv.is að gögnin nýju er ríkis­saksóknari vísi til í ákvörðun sinni vera ljós­myndir sem hann fann í sumar af bílnum í fjörunni; segir hann niður­stöðu ríkis­saksóknara vera skömm í hattinn fyrir lögreglu­stjórann á Vestfjörðum, sem hafi haft takmarkaðan áhuga á að rannsaka málið til hlítar:

„Svona á ekki viðgangast. Þeir sem hafa skoðað þetta mál með mér segja allir að þessi bíll hafi ekki oltið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim