InnlentSláandi verðmunur á kartöflum: 29 prósent dýrari í Krónunni en Bónus Eitt kíló af Þykkvabæjar rauðum kartöflum kostar nú 515 krónur í Krónunni en rauðar kartöflur frá SFG kosta 398 krónur í Bónus. Munurinn er 29 prósent. Eins er 25 prósent munur á einu kílói af Þykkvabæjar gullauga sem kostar 498 krónur í Krónunni. Gullauga frá SFG kostar 398 krónur í Bónus. Það má gera ráð fyrir því að kartöflur verði...
InnlentLilja Dögg Alfreðsdóttir: „Slík notkun samræmdist að mínum dómi á engan hátt íslenskum hagsmunum“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra segir sigri hrósandi: „Iceland er Íslands!“ Skýrir mál sitt: „Mér þótti það fjarstæðukennt á sínum tíma að einhver verslunarkeðja út í heimi tæki heiti landsins sem sitt eigið í viðskiptum og reyndi að þrengja að íslenskum fyrirtækjum sem vildu nota nafn landsins sér til framdráttar.“ Lilja Dögg er klár á því að „það var því rökrétt...
InnlentKatrín Jakobsdóttir biður Erlu Bolladóttur afsökunar: Erla fær 32 milljónir króna í miskabætur Nú er það ljóst að samkomulag hefur náðst milli ríkisins og Erlu Bolladóttur vegna gæsluvarðhalds sem hún sætti fyrir meinta aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar. Hún var sýknuð af þeim ákærum í Hæstarétti árið 1980, en mátti sæta frelsissviptingu í átta mánuði vegna málsins. Fram kemur að samkvæmt samkomulaginu greiðir ríkið Erlu miskabætur fyrir gæsluvarðhaldið, á nákvæmlega sama grundvelli og...
InnlentMengað hóstasaft varð 200 börnum að bana – WHO gefur út viðvörun til foreldra Viðvörun var gefin út til foreldra í Indonesíu eftir um 200 dauðsföll af völdum mengaðs hóstasafts. Flest þeirra látnu voru börn, yngri en sex ára. Dauðaorsök var í öllum tilfellum bráð nýrnabilun en einkenni hennar eru verkir í maga, uppköst, niðurgangur, höfuðverkur og minnkaður þvagútskilnaður. Staðfest hefur verið að 199 andlát séu að völdum hóstasaftsins en 206 tilfelli af bráðanýrnabilun...
InnlentVerðbólga komin upp í 9,6% Verðbólga hér á landi mælist nú 9,6% – hækkar úr 9,3% sem hún mældist í síðasta mánuði. Þá hækkar vísitala neysluverðs um 0,66% frá fyrra mánuði og mælist nú 564,6 stig; vísitala án húsnæðisverðs hækkar um 0,76% milli mánaða; er nú 466,8 stig, en ársverðbólga án húsnæðisliðarins mælist 7,5%. Þessar upplýsingar er að finna í tilkynningu frá Hagstofunni. Og þar...
InnlentSturla lætur Excel-liðið í borginni heyra það – Sturta snjónum hingað – Sjáðu myndbandið Sturla Jónsson, vörubílsstjóri og stjórnmálamaður, sýnir vel aulagang Reykjavíkurborgar hvað snjómokstur varðar í myndbandi sem hann birtir á Facebook. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan og er óhætt að segja að sjón sé sögu ríkari. Sturla tók myndbandið þar sem snjónum í borginni er sturtað í stað þess að einfaldlega sturta honum beint í sjóinn.
InnlentBrynjar: „Þá værum við ekki föst í snjósköflum dögum saman eða í mygluðu húsnæði“ „Þessi dómsmálaráðherra tók við embætti fyrir ári síðan,“ ritar Brynjar Níelsson og vísar til myndar af Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Heldur áfram: „Pólitískir andstæðingar mótmæltu hástöfum þeirri skipun sem endaði með undirskriftasöfnun þegar hann réð sér aðstoðarmann. Ástæðan var sú að þetta væru ekki réttu mennirnar til að takast á við kynferðislegt ofbeldi og bæta réttarstöðu brotaþola.“ Brynjar...
InnlentHefur beðið í 7 ár eftir að fá heimilislækni: „Álagið á læknunum er auðvitað algerlega óhóflegt“ Ástandið í heilbrigðismálum á Íslandi er ansi snúið, ansi víða; fyrir norðan hefur helmingur Akureyringa engan heimilislækni. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir við ruv.is að afar illa hafi gengið að ráða lækna að heilsugæslunni. Staðan er því sú að meira en 9 þúsund Akureyringar eru ekki með skráðan heimilislækni, sem er um helmingur þeirra nítján þúsunda bæjarins. Einn þeirra, sem ræddi...
Innlent„Ég er bæði reið og leið“ „Ég er bæði reið og leið yfir þessari ótrúlegu yfirlýsingu Fjölskylduhjálparinnar.“ Þetta segir Oddný Harðardóttir, þingkona Samfylkingarinar, á Facebook en þar vísar hún til yfirlýsingar samtakanna þar sem fullyrt var að Íslendingar fengju fyrst úthlutað aðstoð og því næst „útlendingar með íslenskar kennitölur“. Samtökin fá styrk frá ríkinu en því vill Oddný breyta. „Og við megum ekki láta eins og...
InnlentKrabbameinssjúklingur sakar Sjóvá um yfirgang: „Þetta mál hefur valdið mér svefnleysi“ Ásgeir Ebenser Þórðarson, eldri borgari, upplifði sára reynslu að morgni 26. apríl síðastliðnum. Hann hafði ekið bifreið sinni niður Laugaveg til móts við Gilbert úrsmið. Hann heyrði þá einskonar blísturshljóð ofar í götunni, og sá fyrir aftan bifreiðina ungan mann á rafhlaupahjóli. Í því að Ásgeir stöðvaði bifreiðina hafði ungi maðurinn kýlt í hliðarspegil bílsins og látið fúkyrðin flæða. Hann...
InnlentAllir fengu gott í skóinn nema fjórir – Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti hina rólegustu nótt Samkvæmt dagbók lögreglu er fátt að frétta og nóttin hin tíðindaminnsta. Ætla má að lögprúðir landsmenn hafi allir fengið eitthvað gott í skóinn frá jólasveininum í nótt. Fáar eða engar tilkynningar bárust lögreglu. Þá var einn ökumaður handtekinn um níuleytið í miðborginni vegna ölvunaraksturs. Frá milli klukkan tólf til tvö voru þrír ökumenn handteknir í vesturhluta borgarinnar sökum ölvunar. Vel...
InnlentGunnar hraunar yfir starfsfólk borgarinnar: „Getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillitssamt“ Gunnar Smári Egilsson, forsprakki Sósíalistaflokksins, gagnrýnir harðlega starfsfólk Reykjavíkurborgar og segist hann ekkert skilja í því hvers vegna miðborgin hafi ekki verið gerð aðgengileg göngufólki í vetrartíð undanfarinna daga. „Það er með öllu óskiljanlegt. Fólkið getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillitssamt,“ segir Gunnar Smári ákveðinn. Gagnrýni sína á borgarstarfsfólk setur sósílaistaforinginn fram í nýjum pistli á Facebook. Þann...