Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Gunnar hraunar yfir starfsfólk borgarinnar: „Getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillitssamt“

Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson
Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar Smári Egilsson, forsprakki Sósíalista­flokksins, gagnrýnir harðlega starfs­fólk Reykja­víkurborgar og segist hann ekkert skilja í því hvers vegna miðborgin hafi ekki verið gerð aðgengileg göngu­fólki í vetrartíð undan­farinna daga. „Það er með öllu óskiljanlegt. Fólkið getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillitssamt,“ segir Gunnar Smári ákveðinn.

Gagnrýni sína á borgar­starfsfólk setur sósílaistaforinginn fram í nýjum pistli á Facebook. Þann ritaði Gunnar Smári eftir að hafa reynt sjálfur að ganga um miðbæinn í dag en við illan leik.

„Ég labbaði eftir Lauga­veginum út í bakarí, í eina búð að kaupa gjöf og svo neðst á Skólavörðu­stíginn að kaupa linsu­baunir hjá frökkunum í Hyalin. Allt voru þetta fallegar búðir með góða vöru, kaupmenn glaðir og ræðnir. Færðin á gangstéttum og götum var hins vegar til stórkostlegrar skammar fyrir fólkið sem hefur boðið sig fram til þjónustu við borgarbúa og verið til þess kjörið.

Fyrir mörgum árum kom ég til Péturs­borgar í ríki Pútín. Þar hafði kyngt niður snjó og frost var hart. Sums staðar mátti sjá hrauka af snjó sem hafði verið ýtt eða mokað svo hann væri ekki fyrir fólki. Að öðru leyti voru allar götur og gangstéttir auðar. Ég spurði hvernig borginni væri haldið snjó­lausri. Við mokum snjónum burt og sturtum honum ofan í Nevu, var mér sagt.

Auðvitað er annað loftslag í Péturs­borg en í Reykjavík. Þegar veturinn kemur þar austur frá heldur hann tökum sínum fram til vors. Í Reykjavík eru oft umhleypingar, snjórinn frá helginni getur rignt niður á morgun. En það á ekki við um snjóinn sem féll á föstu­daginn. Þá var vitað að fram undan væri langur frosta­kafli, eiginlega eins langt og hægt væri að spá. Og snjó­komunni var spáð með viku fyrirvara eða svo.

Það er með ólíkindum að fólkið sem mært hefur göngu­göturnar niður í bæ og hinn líflega túrista-miðbæ hafi ekkert gert til að halda götunum göngu­færum á mestu verslunar­dögum ársins og yfir ferðamanna­kúfinn kringum hátíðirnar. Það er með öllu óskiljanlegt. Fólkið getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillitssamt. Helst má ætla að það sé einhver húsasótt í Ráðhúsinu, sem veldur því að allt fólk sem þar starfar sér á eftir krónunum sem fara í að moka snjó og salta, snjó sem myndi hvort sem er rigna niður á morgun. Eða í næstu viku. Eða í næsta mánuði, sem er á næsta ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja