Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Krabbameinssjúklingur sakar Sjóvá um yfirgang: „Þetta mál hefur valdið mér svefnleysi“

LA Café var staðsett á Laugavegi – Myndin tengist ekki fréttinni.
LA Café var stað­sett á Lauga­vegi – Myndin teng­ist ekki frétt­inni.

Ásgeir Ebenser Þórðarson, eldri borgari, upplifði sára reynslu að morgni 26. apríl síðastliðnum. Hann hafði ekið bifreið sinni niður Laugaveg til móts við Gilbert úrsmið. Hann heyrði þá einskonar blísturs­hljóð ofar í götunni, og sá fyrir aftan bifreiðina ungan mann á rafhlaupahjóli.

Í því að Ásgeir stöðvaði bifreiðina hafði ungi maðurinn kýlt í hliðar­spegil bílsins og látið fúkyrðin flæða. Hann varð hræddur við unga manninn sem ók hjólinu fram fyrir bílinn og á stöpul og datt af hjólinu á gangstéttina. Ásgeir reyndi að koma sér af svæðinu en ungi maðurinn elti hann uppi með fjandsamlegum orða­flaumi og fokk­merkjum.  „Ég var í mjög miklu uppnámi, þetta var harkaleg árás á mig,“ segir Ásgeir í viðtali við Frétta­blaðið.

Hjólamaður kærður

Ungi maðurinn kærði Ásgeir og segir hann hafa ekið í veg fyrir sig og með því valdið fallinu og áverkum mannsins og því að hann braut hjálminn sinn. Þar sem frásögnum Ásgeirs og mannsins bar ekki saman felldi lögreglan málið niður.

Þrátt fyrir misræmið og niður­fellingu málsins hjá lögreglu situr Ásgeir nú, hálfu ári síðar, eftir með tæplega 35 þúsund króna hækkun á bifreiða­tryggingunni sinni hjá Sjóvá. Þetta er honum þungbært.

„Þetta mál hefur valdið mér svefn­leysi. Ég er að bíða eftir uppskurði vegna krabba­meins og fæ þá þetta í fangið,“ segir Ásgeir.

„Trygginga­félagið er enn ekki búið að draga hækkun gjaldanna til baka en ég hef sagt við Sjóvá: Ef þið ætlið að greiða þessum manni bætur fyrir einbeittan brota­vilja hans að svíkja út fé með hjálp lögmanna þá er viðbúið að ógæfumenn sem þurfa að eiga fyrir næsta skammti fari að stunda svona starfsemi og það blossi upp faraldur,“ segir Ásgeir og vill þar með meina að ungi maðurinn hafi náð að sannfæra lögmenn Sjóvá og þeir tekið málið einhliða upp. Fór því Ásgeir sjálfur á stúfana og fann vitni sem stað­festir frásögn hans.

Tryggingar­félagið Sjóvá lítur svo á að um ágreining sé að ræða vegna umferðar­óhapps og vill ekki ræða einstök mál. Þá segir jafnframt í fréttinni: „Viðbótar­gögn, yfir­lýsing nýs vitnis í málinu, eru þó til skoðunar hjá Sjóvá samkvæmt heimildum Frétta­blaðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja