InnlentAldís Fjóla vill að verslanir taki sig á: „Sveitakonan í mér verður alveg lens út af þessu“ Neytandi vikunnar er Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir. Aldísi Fjólu er margt til lista lagt. Hún er tónlistarkona, textahöfundur, söngkennari, viðburðastjóri og þerapisti. Rokkari í hjartanu, sveitakona og náttúrubarn. Árið 2020 gaf hún út plötuna Shadows, sem hefur fengið góðar viðtökur, en lög af henni hafa til að mynda ratað inn á vinsældarlista Rásar 2. Í vor hélt hún síðan loksins...
InnlentFriðrik Þór hættir sem rektor Kvikmyndaskólans – Ætlar að snúa sér aftur að kvikmyndagerð Þann 1. september næstkomandi verður breyting í brúnni hjá Kvikmyndaskóla Íslands en þá stígur Friðrik Þór Friðriksson til hliðar sem rektor skólans og Börkur Gunnarsson tekur tímabundið við. Friðrik Þór FriðrikssonMynd: Aðsend Í tilkynningu frá Kvikmyndaskólanum segir að Friðrik Þór Friðriksson, sem verið hefur rektor Kvikmyndaskóla Íslands síðastliðin fimm ár, muni láta af störfum 1. september næstkomandi. Segir ennfremur í...
InnlentÓlafía sendir frá sér tilfinningaþrungið myndskeið: „Nú er komið að tímamótum í mínu lífi“ Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún segist hætt í golfi. Ólafía Þórunn, sem hefur verið atvinnukylfingur síðustu átta ár, segist ætla að einbeita sér að öðrum verkefnum, í tilfinningaþrungnu myndbandi sem hún sendi frá sér í dag. Ólafía er fyrsti íslenski kylfingurinn sem spilar á LPGA mótaröðinni, sem er stærsta mótaröð heims. Hún hefur...
InnlentKristinn minnist Eiríks Guðmundssonar: „Þó var alltaf stutt í prakkaralegt glottið“ Rithöfundurinn og útvarspmaðurinn dáði, Eiríkur Guðmundsson verður jarðsunginn í dag. Margir vinir og samstarfsmenn hans minnast hans á samfélagsmiðlum í tilefni jarðarfararinnar. Einn þeirra er fyrrum samstarfsmaður hans á Rúv, Kristinn Pálsson. Gaf hann Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta hin fallegu minningarorð hans um Eirík. „Alveg er hún óbærileg sú tilfinning að þurfa að sætta sig við að sá...
InnlentFlosi undir stækkunarglerinu: Dreymir um að fljúga í orrustuþotu Flosi Þorgeirsson er eitthvert það frumlegasta spútnik sem ratað hefur á íslenskan stjörnuhimin. Hlaðvarpið Draugar fortíðar í umsjón Flosa og Ljóta hálfvitans, Baldurs Ragnarssonar, hefur slegið rækilega í gegn og þeim hefur tekist það ómögulega, að gera mannkynssöguna skemmtilega. Draugarnir eru upplýsandi eins og ætla mætti, en vinátta þeirra félaga er annars heims, enda eins og þeir komi hvor úr...
InnlentHjólreiðamaður örmagnaðist á Kili Björgunarsveitin á Blönduósi sinnti útkalli í morgun vegna hjólreiðamanns sem hafði örmagnast. Tilkynning frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu barst rétt fyrir klukkan hálf 11 í morgun, en þá var björgunarsveitarfólk að koma að manninum, sem var kaldur og blautur eftir gærdaginn og nóttina. Maðurinn hafði leitað sér skjóls í hesthúsi við skálann Áfanga, við Kjalveg. Maðurinn var ekki slasaður og björgunarsveitarfólk hugðist...
InnlentLítill fiskibátur í hættu staddur fyrir utan Keflavík – Stefndi vélarvana upp í berg Laust fyrir klukkan níu í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar neyðarkall frá skipstjóra lítils fiskibáts. Fram kemur á heimasíðu Landhelgisgæslunnar að báturinn hafi þá verið vélarvana rétt fyrir utan Keflavík og var við það að reka upp í bergið, norður af smábátahöfninni í Reykjanesbæ. Var einn um borð í bátnum. Þegar í stað var þyrlusveit Gæslunnar kölluð út á mesta forgangi...
InnlentTexas afléttir banni – Leyfa ungmennum nú að bera skammbyssur Alríkisdómari í Texas hefur aflétt banni ríkisins við því að fólk á aldrinum 18 til 20 ára beri skammbyssur. Virðist þetta vera fyrsti stóri dómsúrskurðurinn frá tímamótaúrskurð um vopnarétt í júní síðastliðnum. Lögin sem um ræðir bannaði ungumennum á aldrinum 18-20 ára, sem ekki eru í virkri herþjónustu, að bera skammbyssur á almannafæri. Áskorunin um breytingu laganna var lögð fram...
InnlentOfurölvaður maður grunaður um líkamsárás – Ökuníðingur keyrði á ofsahraða um bæinn Það var á miðnætti þegar lögregla handtók karlmann sem grunaður er um líkamsárás. Maðurinn var mjög ölvaður og var því látinn gista bak við lás og slá í nótt. Þá sinnti lögreglan umferðareftirliti og stöðvaði mann rétt rúmlega fjögur í nótt. Sá var bæði réttindalaus og grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Fyrr um nóttina var ökumaður stöðvaður á hvorki...
InnlentFólskuleg líkamsárás leiddi ungan mann til dauða – Framin af 17 ára pilti og 15 ára stúlku Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík: „Kl. rúmlega sjö á sunnudagsmorgun fannst maður liggjandi í kjallaratröppum baka til við Bankastræti 14. Reyndist maðurinn látinn. Um er að ræða mann, 25-30 ára. Á honum voru áverkar sem ekki er vitað með hvaða hætti hann fékk. RLR rannsakar nú málið.„ Tilkynningin var birt í Morgunblaðinu, þriðjudaginn, 5. mars 1991. Sá látni hét Úlfar...
InnlentVerður þetta gljúfur það vinsælasta á Instagram 2023? „Þangað munu 200.000 manns leggja leið sína“ Hjalti Björnsson, leiðsögumaður og þaulreyndur björgunarsveitamaður, deilir á Facebook-síðu sinni mynd af gljúfri sem hann segir að verði vinsælasti staður Íslands innan skamms. Myndin er tekin á Austurlandi, nánar tiltekið í Múlagljúfri. Hjalti skrifar: „Múlagljúfur verður vinsælasta Instagram myndefnið 2023. Þangað munu 200.000 manns leggja leið sína og pósta þaðan 500.000 myndum. Þið heyrðuð þetta frá mér. #mulagljufur“ Að sjálfsögðu...
InnlentBrynjar tekur Stefán til bæna: „Beinlínis drullar yfir nafngreinda menn“ Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og núverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, hjólar í Stefán Ingvar Vigfússon, meintan grínista, á Facebook. Þó má segja að Stefán hafi byrjað þær deilur því hraunar yfir Brynjar í viðtali við Fréttablaðið í dag. Þar sakar Stefán Brynjar um að leggja fólk í einelti. Brynjar vísar því til föðurhúsana. „Fréttablaðið tók merkilegt viðtal í morgun við uppistandarann knáa,...