Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Kristinn minnist Eiríks Guðmundssonar: „Þó var alltaf stutt í prakkaralegt glottið“

Eiríkur Guðmundsson, Mynd/skjáskot: Rúv
Eiríkur Guð­munds­son, Mynd/skjá­skot: Rúv

Rithöfundurinn og útvarspmaðurinn dáði, Eiríkur Guðmundsson verður jarð­sunginn í dag. Margir vinir og samstarfs­menn hans minnast hans á samfélags­miðlum í tilefni jarðar­fararinnar. Einn þeirra er fyrrum samstarfs­maður hans á Rúv, Kristinn Pálsson. Gaf hann Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta hin fallegu minningarorð hans um Eirík.

„Alveg er hún óbærileg sú tilfinning að þurfa að sætta sig við að sá góði drengur og frábæri útvarps­maður Eiríkur Guðmundsson hafi kvatt þessa tilvist allt of snemma en í dag verður hann jarð­sunginn frá Hallgríms­kirkju.

Ég kynntist Eiríki upphaf­lega seint á níunda áratugnum og þá í gegnum sameiginlega vini sem stunduðu nám í bókmennta­fræði við Háskóla Íslands. Eftir að ég hóf störf hjá RUV, á fyrsta áratug þessarar aldar, þá lágu leiðir okkar oftar saman á sérlega gefandi og skemmtilegum vinnustað. Þar var hann t.d. ófeiminn við að hvetja mann áfram og mæra þáttagerð mína fyrir Rás 2 og jafnvel í heyranda hljóði.Eiríkur var einstak­lega yfir­vegaður og hlýr persónu­leiki þar sem þó var alltaf stutt í prakkaralegt glottið. Þessi einkenni skiluðu sér vel í gegnum útvarpið og eru þar hvað minnisstæðstir meitlaðir mónólógarnir eða einræðurnar sem gjarnan hljómuðu við upphafið á Víðsjá á Rás 1. Almennt séð var Eiríkur ekki mikið fyrir að feta troðnar slóðir á öldum ljós­vakans og var sífellt leitandi í ferskum umfjöllunar­efnum sem vörpuðu skýru ljósi á samtímann hjá öllum aldurs­hópum. Hann var t.d. einn af helstu arktektum þess frábæra þáttar Lestarinnar á Rás 1, en þar hafa efnis­tökin þó ósjaldan hrist duglega upp í eldri hlustendum gömlu gufunnar. Eiríkur Guðmundsson bar á vissan hátt með sér fram­sækinn andblæ pönksins inn í þessa rótgrónu ríkis­stofnun enda var hann sein­þreyttur við að leika og fjalla um t.d. tónlistar­flytjendur sem áður þóttu ekki miklir auðfúsu­gestir á Rás 1. Þið hlustendur skiljið vonandi hvað ég meina.

Enginn var eins og Eiríkur Guðmundsson og hvíl í friði, góði maður.“

Eiríkur verður jarð­sunginn í Hallgríms­kirkju í dag klukkan 13.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kröfuhafar fengu ekkert greitt úr fjórum búum þar sem lýstar kröfur námu samtals rúmum 34,2 milljónum króna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta