Björgunarsveitin á Blönduósi sinnti útkalli í morgun vegna hjólreiðamanns sem hafði örmagnast.
Tilkynning frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu barst rétt fyrir klukkan hálf 11 í morgun, en þá var björgunarsveitarfólk að koma að manninum, sem var kaldur og blautur eftir gærdaginn og nóttina. Maðurinn hafði leitað sér skjóls í hesthúsi við skálann Áfanga, við Kjalveg.
Maðurinn var ekki slasaður og björgunarsveitarfólk hugðist koma honum strax til byggða.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir