Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Fólskuleg líkamsárás leiddi ungan mann til dauða – Framin af 17 ára pilti og 15 ára stúlku

Mynd/skjáskot
Mynd/skjá­skot

Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík: „Kl. rúmlega sjö á sunnudags­morgun fannst maður liggjandi í kjallara­tröppum baka til við Banka­stræti 14. Reyndist maðurinn látinn. Um er að ræða mann, 25-30 ára. Á honum voru áverkar sem ekki er vitað með hvaða hætti hann fékk. RLR rannsakar nú málið.„

Tilkynningin var birt í Morgun­blaðinu, þriðjudaginn, 5. mars 1991.

Sá látni hét Úlfar og var 28 ára reyk­víkingur og skildi eftir sig eina dóttur. Hann starfaði sem prentari og ljós­myndari. Honum var minnst sem listrænum, vandvirkum og miklum fagmanni. Úlfar hafði verið úti að skemmta sér með félögum sínum í Þjóðleikhús­kjallaranum en hafði hug á að finna sér eitthvað að borða og haldið einsamall í átt að miðbænum.

Lögreglan töldu árásina tengjast annarri árás

Fyrr sama kvöld hafi verið ráðist að karlmanni að Hverfis­götu 14 í Reykjavík. Fórnar­lambið taldi að 1-2 menn hafa veist að sér og taldi lögreglan miklar líkur að árásar­mennirnir væru þeir sömu. Dánar­orsök Úlfars var talin vera af völdum áverka sem hann var með á höfði. Þó ekki hafi verið Ijóst á frumstigi málsins hvar eða með hvaða hætti hann fékk áverkana.

Í baksíðu­frétt DV, þriðjudaginn 5. mars 1991 sagði: „ Laust fyrir klukkan þrjú aðfara­nótt sunnu­dagsins, skömmu áður en síðast sást til Úlfars heitins, var ráðist með ofbeldi á karlmann í húsasundi við Hverfis­götu 14 og hann rændur. Fórnar­lambið telur að 1-2 menn hafi veist aö sér – það liggur þó ekki ljóst fyrir. Skömmu síðar, eða um klukkan 3.15-3.20, fór Úlfar út úr Þjóðleikhús­kjallaranum við Hverfis­götu en hann er örstutt frá framan­greindum árásar­stað. Kvaddi hann kunningja sína sem töldu hann hafa ætlað að ganga að miðbænum til að fá sér eitthvað að borða. Rannsóknar­lögreglan telur möguleika á að sömu árásar­mennirnir hafi ráðist á báða mennina. RLR biður alla sem telja sig búa yfir upplýsingum um þessi mál að hafa samband.“

Morðsrán framið af 17 ára pilti og 15 ára stúlku

Veski Úlfars heitins fannst nokkurn spöl frá þeim stað þar sem lík hans lá í Banka­stræti. Veskið var peninga­laust. Tók lögreglu­rannsóknin því mið af að um ránsmorð væri að ræða.

Þann 15. mars eða 12 dögum eftir andlát Úlfars birtist frétt í DV þar sem framkemur að lögreglan telji sig hafa upplýst málið og hafi deginum áður, eða 14. mars, handtekið 17 ára pilt og 15 ára gamla stúlku.

„Karlmaður og kona, sem eru innan við tvítugt, voru hand­tekinn í gær grunuð um að hafa átt hlut að máli og orðið völd að dauða mannsins.

Rannsóknar­lögreglan tekur ákvörðun í dag um frekari framgang málsins og hvort krafist verði gæslu­varðhalds­úrskurðar yfir fólkinu. Eins og fram hefur komið fannst veski Úlfars heitins nokkurn spöl frá þeim stað þar sem lík hans lá í Banka­stræti. Veskið var peninga­laust. Því tók lögreglan mið af því við rannsókn málsins að hugsanlega hefði verið um ránsmorð að ræða.“

Síðar kom í ljós að stúlkan hafi lokkað manninn inn í húsasund við Banka­stræti 14 þar sem pilturinn hafi slegið fórnar­lambið með hnúajárni.

Dómurinn

Um það bil sjö mánuðum eftir andlát Úlfars féll dómur yfir ungmennunum. Hlaut pilturinn sex ára dóm en stúlkan, þá orðin 16 ára, þriggja ára dóm. Í umfjöllun DV 15. október 1991 segir: „ Sakadómur Hafnar­fjarðar hefur dæmt 17 ára pilt í sex ára og fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa banað Úlfari […] við bakhúsið að Banka­stræti 14 í Reykjavík og rænt hann aðfara­nótt 3. mars síðastliðins. Hann var einnig sakfelldur fyrir að hafa barið og rænt annan mann við Hverfis­götu sömu nótt. 15 ára stúlka, sem var með honum, var fyrir aðild sína að báðum ránunum dæmd í 24 mánaða varðhald, þar af 21 mánuð skilorðs­bundinn.“

Í greininni kom jafnframt fram að: „Pilturinn viðurkenndi að hafa slegið Úlfar þremur þungum höggum í höfuðið og hafði hann hnúajárn innan í hönskum sínum. Eftir að fórnar­lambið féll við greiddi pilturinn manninn tvö hnefahögg. […]. Sakadómur komst að þeirri niður­stöðu að piltinum hefðu ekki átt að dyljast afleiðingar gerða sinna með árásinni með hnúa­járnunum. Hann var því sakfelldur fyrir manndráp með svokölluðum líkinda­ásetningi. Stúlkan, sem nú er orðin 16 ára, var ákærð fyrir aðild að morðinu og einnig árásina á manninn við Hverfis­götu. Hún var sýknuð af sakar­giftum að beinni aðild að morðinu en sakfelld fyrir aðild sína að ránunum. Eftir að Rannsóknar­lögregla ríkisins handtók ungmennin var stúlkunni komið fyrir í forsjá Barna­verndar­nefndar á unglinga­heimili vegna aldurs hennar. Hún hefur síðan verið vistuð á sveita­heimili. Pilturinn var fyrst vistaður í gæslu­varðhalds­fangelsinu í Síðumúla en hefur að undan­förnu verið í Hegningar­húsinu við Skólavörðu­stíg. Til frádráttar refsingu hans kemur gæslu­varðhalds­vistin sem hófst 15. mars. Máli piltsins verður sjálf­krafa áfrýjað til Hæstaréttar vegna þyngdar refsingarinnar. Uni hins vegar ríkis­saksóknari og stúikan sjálf hennar dómi fer hann ekki til Hæstaréttar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kröfuhafar fengu ekkert greitt úr fjórum búum þar sem lýstar kröfur námu samtals rúmum 34,2 milljónum króna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta