Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Brynjar tekur Stefán til bæna: „Beinlínis drullar yfir nafngreinda menn“

Brynjar Níelsson, fyrr­verandi þingmaður og núverandi aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra, hjólar í Stefán Ingvar Vigfússon, meintan grínista, á Facebook. Þó má segja að Stefán hafi byrjað þær deilur því hraunar yfir Brynjar í viðtali við Frétta­blaðið í dag. Þar sakar Stefán Brynjar um að leggja fólk í einelti.

Brynjar vísar því til föðurhúsana. „Frétta­blaðið tók merkilegt viðtal í morgun við uppi­standarann knáa, Stefán Ingvar Vigfússon, sem ætlar að vera með uppistand í Tjarnar­bíói í kvöld. Sjálfsagt góð ókeypis auglýsing en viðtalið fjallaði aðallega um hvað ég væri leiðinlegur og mikið búllí og væri með síðustu mönnum sem hann vildi hitta. Honum þótti samt rétt að taka það fram að hann væri ekki gramur út í mig. Stefán Ingvar er kannski betri uppi­standari en ég hélt,“ segir Brynjar.

Hann segir að Stefán hefði átt að bjóða sér á uppstandið. „Ég áttaði mig ekki alveg á viðtalinu hvort Stefán ætli með uppistandinu í kvöld að afsanna kenningu mína um að gramir menn í ójafnvægi geti ekki verið fyndnir eða hvort hann ætli að sanna að hann sé ekkert gramur og því bráð­fyndinn og skemmtilegur. En þetta kemur væntanlega allt í ljós í kvöld. Mér finnst að Stefán Ingvar hefði átt að vera grand á því að bjóða þessum leiðinlega búllíi á uppi­standið,“ segir Brynjar.

Hann segist enn ekki hafa séð neitt fyndið frá Stefáni. „En það er athyglis­vert að lesa Bakþanka Stefáns Ingvars í Frétta­blaðinu og færslur hans að Tvitter. Þar fá menn það gjarnan óþvegið, beinlínis drullar yfir nafn­greinda menn,  og hét það í gamla daga að vera búllí en heitir víst núna manngæska og barátta fyrir réttlæti. En það er ekki gott að uppi­standari af þessu kaliberi skynji ekki hversu mikill ljúflingur og mannvinur ég er. Hvers manns hugljúfi eins og amma gamla sagði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kröfuhafar fengu ekkert greitt úr fjórum búum þar sem lýstar kröfur námu samtals rúmum 34,2 milljónum króna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta