Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Freyju páskaegg hækka mest milli ára

Lægst kíló­verð á Bónus Risaeggi

Páskaegg
Páskaegg Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Hagkaup

Verð á Freyju páska­eggjum hækka um 17 pró­sent milli ára í Bónus og Krónunni, mun meira en páska­egg Góu (13 pró­sent) og Nóa Síríus (9 pró­sent). Þau eru einnig dýr­ari en páska­egg Góu og Nóa í kíló­verðs­sam­an­burði verð­lags­eft­ir­lits­ins. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá ASÍ.

Þar kemur fram að meðla­verð á páska­eggjum hækkar í lág­vöru­verðs­versl­unum um 12-17 pró­sent milli ára. Minnst hækkar verðið í Kram­búð­inni og 10-11 en mest í Extra og Kjör­búð­inni, um 25-27 pró­sent milli ára.

Það var síð­asta laug­ar­dag sem ASÍ fram­kvæmdi könn­un­ina en dag­inn eftir lækk­aði Nettó verð á páska­eggjum um 3,6 pró­sent og eru þau eru þau oft­ast á sama verði og í Krónunni.

Páska­eggin dýr­ust í Iceland, ódýr­ust í Prís

Prís bauð lægsta verðið á öllum 12 páska­eggjum sem þar voru til sölu en fjögur þeirra voru frá Freyju, þrjú frá Góu og sex frá Nóa Síríus. Að jafn­aði var Iceland með hæsta verð á páska­eggjum, en þau kost­uðu að með­al­tali helm­ingi meira í Iceland en þar sem þau voru ódýr­ust.

Skammt undan Prís voru Bónus og Krónan, að með­al­tali aðeins hárs­breidd frá lægsta verði, og voru með mest úrval, eða 45-48 íslensk páska­egg. Alls fund­ust 39 páska­egg í Fjarð­ar­kaupum, að með­al­tali ríf­lega þremur pró­sentum frá lægsta verði.

Frí­höfnin selur þrjár týpur páska­eggja en það er Nóa páska­egg númer 4, sem kost­aði 13 pró­sent meira í Frí­höfn­inni en í Prís, og tvo kassa með fjórum litlum páska­eggjum. Kass­arnir feng­ust báðir ódýr­ari í Bónus en þar mun­aði 5 pró­sentum.

Bestu kaupin í stóru eggj­unum

Páska­eggin eru mis­stór en er kíló­verð eru borin saman sést að Freyju-páska­eggin eru dýr­ust. Nóa- eggin eru næstó­dýr­ust og Góu-eggin ódýr­ust.

„Bestu kaupin – ef planið er að torga kíló­grammi af sæt­indum – er Risa­eggið frá Bónus eða Góu páska­egg nr. 11. Í við­ráð­an­legri stærðum eru sér­fram­leiddu versl­ana­eggin hag­kvæmust. Bónus egg, Krónu egg og Okkar egg í Nettó kosta reyndar 17-20% meira á kílóið, en eru mun smærri,“ segir í frétta­til­kynn­ingu ASÍ.

Þar kemur enn­fremur fram að mjólk­ur­laust Nóa-egg númer 4 kostar um 7 pró­sent meira en egg af svip­aðri stærð frá Nóa sem inni­heldur mjólk­ursúkkulaði og Freyju suðusúkkulaði­egg kostar 17 pró­sent meira, í kíló­verði talið, en Freyju fjöregg, sem er af svip­aðri stærð.

Á heima­síðu verð­lags­eft­ir­lits­ins er hægt að skoða kíló­verð páska­eggja.

Fimm útlagar í Kjör­búð­inni

Í Kjör­búð­inni skýrist mikil hækkun á páska­eggja­verði af fimm páska­eggjum sem hafa hækkað um meira en helm­ing frá því í fyrra;

Góu páska­egg og hraunegg nr. 1 hafa tvö­fald­ast í verði, úr rúmum 150kr í 295kr.

Freyju fjöregg nr. 6 hefur hækkað úr 2.399kr í 4.199kr. Það var í fyrra svipað dýrt og í Bónus en er nú 52 pró­sent dýr­ara.

Nóa ljóst páska­egg nr. 1 hefur hækkað úr 241kr upp yfir 370kr.

Án þess­ara fimm páska­eggja hefur með­al­hækkun á verði páska­eggja í Kjör­búð­inni verið 21 pró­sent.

Aðferða­fræði ASÍ er eft­ir­far­andi:

Borin voru saman með­al­verð mars­mán­aðar 2024 við verð á páska­eggjum á laug­ar­dag­inn síð­ast­lið­inn þegar með­al­töl voru reiknuð. Þegar breyt­ingar á verði stakra páska­eggja voru reikn­aðar var miðað við 25. mars 2024 ann­ars vegar og laug­ar­dag­inn 5. apríl 2025 hins vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Peningar

Peningar

Danskur hag­fræð­ingur segir krón­una hafa verið mis­heppn­aða til­raun í heila öld

Árið 2027 verður öld liðin frá því að Landsbankinn tók við hlutverki seðlabanka. Lars Christensen segir þá sögu ekki vera árangurssögu.
  • Peningar

    „Þetta er nú meiri vikan“

  • Peningar

    Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

  • Peningar

    Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

  • Peningar

    Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

  • Peningar

    Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann