LandiðForstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni Akureyrarbær hefur sagt upp forstöðumanni umhverfis- og sorphirðumála en hún hefur verið í leyfi eftir að ásakanir komu fram um kynferðislega áreiti á árshátíð sem átti sér stað í fyrra. RÚV greinir frá þessu og segir að málið hafi verið í ferli hjá Akureyrarbæ og að fleiri hafi stigið fram og sagt frá vafasamri hegðun forstöðumannsins. Yfirmaður konunnar vildi ekki...
LandiðÓskar fundinn eftir að hafa verið týndur í fimm ár „Tilfinningaþrungin stund og yndisleg“ þegar hann kom aftur heim.
LandiðUndirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST), undirbýr nú stefnu á hendur fyrirtækinu Móglí ehf. á Eskifirði, vegna afar olíumengaðra lóða fyrirtækisins við sjávarsíðuna í bænum. Undanfarna fjóra mánuði hefur Móglí ehf. sætt dagsektum vegna olíumengaðra lóða við sjávarsíðuna á Eskifirði en heildarsektin er komin upp í tæpar 2,5 milljónir króna. Forráðamaður fyrirtækisins hefur hundsað ítrekaðar kröfur um umbætur og ekki sýnt nein viðbrögð...
LandiðHeldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“ Setter-hundarnir Luna og Stitch hurfu þann 11. desember frá umsjónarfólki sínu á Djúpavogi en þeir sáust þann dag á hlaupum inn í Geithellnadal. Hefur ekkert til þeirra spurst síðan. Sjá einnig: Enn er tveggja hunda leitað á Austurlandi: „Það er sem jörðin hafi gleypt þá“ Samkvæmt Austurfrétt hafa fjöldi fólks, vinir, ættingjar og jafnvel ókunnugir, frá þeim tíma svipast um...
LandiðErlendum sjómanni bjargað úr sjálfheldu á Hólmatindi – Þyrla Landhelgisgæslunnar mætti á vettvang Erlendum manni var bjargað úr sjálfheldu hátt í hlíðum Hólmatinds í gærkvöldi. Heljarinnar björgunaraðgerð var framkvæmd í hlíðum Hólmatinds í Eskifirði í gærkvöldi. Austurfrétt segir frá því að björgunarsveitarmenn frá Ársól á Reyðarfirði og Brimrún frá Eskifirði, auk þyrlu Landhelgisgæslunnar hafi í gærkvöldi tekið þátt í að bjargar erlendum manni sem hafði komið sér í sjálfheldu hátt í hlíðum Hólmatinds....
LandiðHelga Vala stuðar landsbyggðarfólk: „Það er verið að bjóða uppá rússneska rúllettu með mannslíf“ Jóhann Harðarson, íbúi á Egilsstöðum, er allt annað en sáttur eftir að hafa horft á Silfrið á RÚV á mánudaginn, og eru margir á landsbyggðinni sammála honum. Í Silfrinu á mánudaginn síðastliðinn var meðal annars rætt við Guðmund Fetram Sigurjónsson, stofnanda og og forstjóra Kerecis, Helgu Völu Helgadóttur, lögmann og fyrrverandi þingmanns Samfylkingarinnar og Má Wolfgang Mixa, dósents við viðskiptafræðideild...
LandiðÓsætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir Undarlegt mál er komið upp á Ísafirði en í síðustu viku kvörtuðu starfsmenn í stjórnsýsluhúsinu í bænum kvörtuðu til lögreglu vegna drónamyndatöku lögmannsins Braga Axelssonar við stjórnsýsluhúsið. Eiginkona Braga er bæjarritari Ísafjarðabæjar og staðgengill bæjarstjóra. Í frétt bb.is staðfestir Bragi Axelsson, lögmaður, að hann sé sá sem var staðinn að verki við drónamyndatöku við stjórnsýsluhúsið á Ísafirði í síðustu viku....
LandiðKarlmaður ákærður fyrir að birta nektarmyndir af barnsmóður sinni á Facebook Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir stórfelldar ærumeiðingar og kynferðisbrot gagnvart barnsmóður sinni en maðurinn deildi nektarmyndum af henni á samfélagsmiðlinum Facebook og Snapchat ásamt niðurlægjandi texta en mbl.is greindi frá málinu. Maðurinn er sagður hafa birt fimm myndir af fyrrverandi sambýliskonu sinni nakinni en krotaði fyrir brjóst og kynfæri hennar. Þá er hann sagður hafa hótað að birta myndirnar á...
LandiðVestfirðir fá mest af byggðarkvótanum – Suðurland rekur lestina Almennum byggðakvóta hefur verið úthlutað til 42 byggðarlaga í 25 sveitarfélögum á fiskveiðiárinu 2024-2025 en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnarráðinu. „Atvinnuvegaráðherra er heimilt að ráðstafa aflamagni í óslægðum botnfiski til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga á aflamarki einstaka tegunda. Heildarráðstöfun byggðakvóta...
LandiðHættustigi aflýst í Neskaupstað: „Verið er skoða stöðuna á Seyðisfirði“ „Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að aflýsa hættustigi á rýmingarsvæðum í Neskaupstað frá klukkan 12:00 í dag,“ segir í tilkynningu sem Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, sendi fyrir stuttu á fjölmiðla en undanfarna daga hefur allt verið í kafi í snjó víðsvegar á Austurlandi. „Öllum rýmingum í Neskaupstað hefur því verið aflétt. Íbúum á rýmingarsvæðum er óhætt að snúa heim...
LandiðAllt á kafi í snjó á Seyðisfirði – LJÓSMYNDIR Á Austurlandi er allt á kafi í snjó en á Seyðisfirði hafa iðnaðarsvæði verið rýmd og í Neskaupstað ein íbúagata, vegna snjóflóðahættu. Seyðfirðingurinn Heimir Eggerz Jóhannsson birti ljósmyndir á Facebook, sem sýna hversu snjóþungt er orðið í hinum fallega bæ. Snjór á SeyðisfirðiMynd: Heimir Eggerz Jóhannsson. Við færsluna skrifaði hann: „Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði . Vegir ófærir innanbæjar Fjarðarheiði...