Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir

Ósætti vegna drónamyndatöku lögmanns við stjórnsýsluhús Ísafjarðar – Sakaður um njósnir
Stjórn­sýslu­húsið á Ísafirði

Und­ar­legt mál er komið upp á Ísafirði en í síð­ustu viku kvört­uðu starfs­menn í stjórn­sýslu­hús­inu í bænum kvört­uðu til lög­reglu vegna dróna­mynda­töku lög­manns­ins Braga Axels­sonar við stjórn­sýslu­húsið. Eig­in­kona Braga er bæj­ar­rit­ari Ísa­fjarða­bæjar og stað­geng­ill bæj­ar­stjóra.

Í frétt bb.is stað­festir Bragi Axelsson, lög­maður, að hann sé sá sem var stað­inn að verki við dróna­mynda­töku við stjórn­sýslu­húsið á Ísafirði í síð­ustu viku. Aðspurður um til­gang­inn sagð­ist hann hafa verið að taka lands­lags­myndir og hvaðst hissa á kvörtun­inni.

„Það var fal­leg birta og ég tók nokkrar lands­lags­myndir sem þó reynd­ust dekkri en ég von­að­ist eftir. Setti drón­ann á loft við inn­gang skrif­stofu minnar. Lög­reglu­maður kom við og sá mynd­irnar og fannst ekk­ert óeðli­legt við það og baðst afsök­unar á að hafa truflað. 

Mér finnst gaman að taka myndir þó ég sé nú ekk­ert sér­stak­lega fær og lang­aði að standa aðeins upp og rétta úr mér og tók því nokkrar myndir. Ég hef tekið þús­undir lands­lags­mynda á drón­ann minn und­an­farin ár án þess að fólk kvarti og með ólík­indum að ákveðnir starfs­menn í Stjórn­sýslu­hús­inu skuli láta svona.

Ég veit ekki betur en að lög­reglu­menn sjálfir taki oft dróna­myndir þarna á svæð­inu auk ann­arra dróna flug­manna. Það er með þetta eins og fleira að það er ekki sama hver er. Gaman að velta fyrir sér mun­inum á því að fljúga dróna þarna og taka bara myndir á far­síma því mun­ur­inn er sára­lít­ill. Þarna krist­all­ast bara óvild til­tek­inna aðila í minn garð.“

Athuga­semdir við frétt bb.is á Facebook halla allar á lög­mann­inn en þar er hann meðal ann­ars sak­aður um að njósna um starfs­fólk Ísa­fjarð­ar­bæjar með dróna.

„

Það vita margir hver þessi ein­stak­lingur er. Er þetta ekki komið gott hjá honum hér í bæ. Farin að njósna um starfs­fólk Ísa­fjarð­ar­bær með dróna. Starfs­fólk Ísa­fjarð­ar­bær á alla mína samúð að þurfa að eiga sam­skipti við þennan litla mann.“

Í annarri frétt bb.is sem birt­ist í dag kemur fram að beðið sé svara frá bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðar, Sigríði Júlíu Bryn­leifs­dóttur, um dróna­flug lög­manns­ins.

Var Sigríður spurð hvort dróna­mynda­takan hefði beinst að því að fylgj­ast með starfs­fólki bæj­ar­skrif­stof­unnar og ef svo væri, hvernig hún hyggð­ist taka á því.

Í yfir­liti sínu um störf sín í síð­ustu viku segir lög­reglan á Vest­fjörðum frá því að á föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn hafi lög­regl­unni borist til­kynn­ing um ein­stak­ling sem væri að fljúga dróna nærri opin­berri bygg­ingu. „Rætt var við ein­stak­ling­inn og honum gert að láta af hátt­sem­inni“ segir lög­reglan í yfir­ferð sinni.

Í frétt­inni kemur fram að eig­in­kona Braga Axels­sonar sé Bryndís Ósk Jóns­dóttir sem er bæj­ar­ritar og stað­geng­ill bæj­ar­stjóra.

Nýjar reglur Evr­ópu­sam­bands­ins um flug ómann­aðra loft­fara (dróna), hafa nú tekið gildi, sam­kvæmt Sam­göngu­stofu og að regl­urnar séu nú þegar komnar til fram­kvæmdar hér á landi. Reglu­gerð 1360/2024 inn­leiðir reglu­gerðir ESB 2019/947 og 2019/945 með breyt­ingum.

Í reglu­gerð­inni eru settar tak­mark­anir á flugi ómann­aðra loft­fara, en þar stendur meðal ann­ars: 

„Óheimilt er að fljúga ómönn­uðum loft­förum innan 150 metra frá við­kvæmum stöðum, svo sem orku­verum, tengi­virkjum, Alþingi, for­seta­bú­stað, ráðu­neytum, sendi­ráðum, lög­reglu­stöðvum, fang­elsum og sjúkra­húsum, nema með heim­ild eig­enda eða umráð­enda.“ og einnig segir að um „flug í grennd við íbúð­ar­hús­næði eða þar sem fólk dvelur gilda reglur um vernd eign­ar­réttar, frið­helgi einka­lífs og per­sónu­vernd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil