Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Óskar fundinn eftir að hafa verið týndur í fimm ár

„Tilfinninga­þrungin stund og yndisleg“ þegar hann kom aftur heim.

Kötturinn Kölski
Kött­ur­inn Kölski Hét Óskar í fyrra lífi.

Kötturinn Óskar er kominn í faðm fjöl­skyldu sinnar eftir að hafa verið týndur síðastliðinn fimm ár.

Sjálfboða­liða­samtökin Vill­kettir á Suður­landi sagði frá þeim gleði­fréttum í gær að köttur sem samtökin höfðu fundið í fyrra og nefnt Kölska, hafi reynst vera kötturinn Óskar, sem týndist árið 2020. Fjöl­skylda hans hafði leitað hans stans­laust á sínum tíma án árangur og töldu hann dauðann.

Þegar samtökin auglýstu eftir nýjum eiganda fyrir Kölska fengu þau tölvupóst frá fyrri eiganda kattarins sem þekkti hann af veiði­hárunum og sérstökum tám. „Það var tilfinninga­þrungin stund og yndisleg þegar hann hitti fólkið sitt og fékk að fara heim,“ segir í tilkynningu Villikatta Suður­landi á Facebook.

Hér má lesa hina fallegu frétta­tilkynningu samtak­anna:

„Ein gleði­frétt af Suður­landi – þið sem hafið týnt kisunum ykkar. Það er alltaf von, segjum við oft. Í september 2024 náðum við kisu á Hellu sem við gáfum það fallega nafn Kölski. Hann virkaði sem ansi mikill villingur á okkur. Í gær auglýstum við loksins eftir nýju heimili fyrir hann. Enda tekið stór­stígum framförum undan­farið og sýnt allar sínar fegurstu hliðar. Í dag fengum við, okkur að óvörum, póst frá fyrri eiganda. Kölski eða Óskar eins og hann hét áður hafði týnst árið 2020 og var búið að leita stans­laust að honum án árangurs. Hann var talinn af.

Hann þekktist á fallegu veiði­hárunum sínum og sérstökum tásum og saman­burður á myndum leyndu því ekki að þetta var Óskar.

Það var tilfinninga­þrungin stund og yndisleg þegar hann hitti fólkið sitt og fékk að fara heim.

Elsku Kölski þetta gladdi okkur svo mikið. Myndirnar sýna hvernig hann var þegar við fundum hann og önnur sem sýnir hvað hann er orðinn mikið virðu­legur og flottur og mikill kelikarl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp