LandiðReykræsta þurfti smíðastofu Egilsstaðaskóla – Snör handtök starfsmanna kom í veg fyrir eldsvoða Slökkvilið Múlaþings var kallað út í Egilsstaðaskóla í hádeginu í gær, eftir að glóð og reykur kom upp í sög í smíðastofu skólans. Starfsfólk skólans brugðust hratt og örugglega við og snör handtök þeirra komu í veg fyrir að glóðin yrðu að miklum eldi. „Við gerðum mest lítið. Það eru bestu útköllin þegar svo er,“ segir Ingvar Birkir Einarsson, varaslökkvistjóri...
LandiðBörn grunuð um íkveikju á Selfossi: „Slökkvistarf tók nokkurn tíma þar sem eldsmatur var mikill“ Lögreglan á Suðurlandi sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem er greitt frá því að eldsvoði sem átti sér stað 9. mars í Hafnarhúsi á Selfossi hafi verið íkveikja og að börn hafi stöðu sakborninga í málinu og hafa barnaverndaryfirvöld verið kölluð að borðinu. Hafnarhúsið átti sér mikla sögu en það var byggt árið 1947 og var kaupfélagið Höfn...
LandiðÖxi opnaði mánuði fyrr en venjulega Vegurinn yfir Öxi var opnaður á föstudaginn en hann hefur sjaldan opnað jafn snemma. Austurfrétt segir frá því að vegurinn yfir Öxi á Austurlandi hafi verið opnaður síðastliðinn föstudag, þann 8. mars. Leita þarf til ársins 2012 til að finna dag þar sem vegurinn var opnaður fyrr en þá var hann opnaður 28. febrúar. Í fyrra opnaði mánuði síðar. Veðurfarið...
LandiðLoðnu loksins landað á Eskifirði: „Það munar öllu að fá líf í húsið að nýju eftir langt hlé“ Fyrsta loðna ársins var landað á Eskifirði á fimmtudagskvöld. Líf færðist aftur í uppsjálvarvinnslu Eskju á Eskifirði, þegar fyrstu loðnu ársins var landað þar á fimmtudagskvöld er norska skipið Hargrun kom til hafnar með um 1100 tonn úr Barentshafinu. Þá kom annar 990 tonna farmur í gærmorgun, af sömu miðum og er þriðja norska skipið einnig á leiðinni. Frá þessu...
LandiðÞórdís hættir sem bæjarstjóri Vesturbyggðar – Vill vera nær börnum sínum Þórdís Sif Sigurðardóttir, hættir sem bæjarstjóri Vesturbyggðar í sumar. Bæjarstjóri Vesturbyggðar, Þórdís Sif Sigurðardóttir, hefur verið ráðin sem bæjarritari og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs hjá Sveitarfélaginu Árborg, að því er fram kemur á vefsíðu Árborgar en bb.is sagði frá málinu í dag. Þórdís mun hefja störf hjá Árborg í júní. Í gær greindi Þórdís frá því að hún hefði tilkynnt...
LandiðSara Elísabet hættir sem sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps – Álagið farið að segja til sín Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps, Sara Elísabet Svansdóttir, hættir störfum í lok vikunnar en hún hefur gengt starfinu síðastliðin fjögur ár. Sara Elísabet Svansdóttir Hreppurinn sendi út tilkynningu á vef sinn í gær þar sem segir að náðst hafi samkomulag um starfslok hennar. Er henni þar þakkað fyrir samstarfið og hún sögð hafa staðið með sveitarstjórn í að leysa fjöldi flókinna mála. Í...
LandiðBjörn með hjartnæma færslu um Grindavík: „Svona atburður leggst eins og illvíg mara á sálina“ Björn Birgisson saknar gamla lífsins í Grindavík. Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson skrifaði hjartnæma Facebook-færslu í gær þar sem hann talar um það sem hann saknar mest frá Grindavík og talar um nýtt tímatal, sem byrjar 10. nóvember 2023. „Nú er komið nýtt tímatal! Alla vega hjá mér.Hef nú ekkert afdrifaríkara að miða við en hamfarirnar 10. nóvember 2023.Þannig að...
LandiðAustfirskur hrafn hvílir sig á hornum hreindýrs Á leið sinni til vinnu í gær náði Unnur Birna Karlsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Austurlandi, ljósmynd af hrafni hvíla sig á hornum hreindýrs. Vakti ljósmynd Unnar Birnu talsverða athygli á samfélagsmiðlum – En ekki er allt sem sýnist. Hreindýrstarfurinn sem hrafninn hvílir sig á er útilistaverk og er staðsett á klettabelti innan bæjarmarka Egilsstaða. Hreindýrastyttan er staðsett á...
LandiðFramsókn slítur meirihlutasamstarfi við Fjarðalistann – Ræðir við Sjálfstæðisflokkinn í dag Framsóknarflokkuirnn í Fjarðabyggð hefur ákveðið að slíta meirihlutasamstarfi hans og Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Tilkynning þess efnis birtist í gærkvöldi og er ástæðan sögð vera trúnaðarbrestur. Í dag hefjast viðræður Framsóknarflokksins við Sjálfstæðisflokkinn um myndun nýs meirihluta. Tilkynningin birtist á Facebook-reikningi Framsóknar í Fjarðabyggð í gærkvöldi en Austurfrétt sagði frá þessu í frétt sinni. Í tilkynningunni kemur fram að ákvörðunin...
LandiðGáfu Hollvinasamtökum SAK milljón: „Ákváðum að gefa frekar peninga í eitthvert gott málefni“ Þeir Markús Gústafsson og Róbert Már Kristinsson færðu Hollvinasamtökum Sjúkrahússins á Akureyri eina milljón króna að gjöf, af því tilefni að þeir hafi nú verið viðskiptafélagar í aldarfjórðung. „Viðskiptasamband okkar hófst í maí árið 1998 í Nætursölunni, stað sem seint mun gleymast, þannig að í fyrra höfðum við unnið saman í 25 ár ,“ segir Markús við Akureyri.net. „Í stað...
LandiðInnangulir ástarpungar tröllríða Vesturbænum Ástarpungarnir í Geirabakaríi eru einhverjir þeir rómuðustu á landinu öllu. Þeir þykja einstaklega bragðgóðir og svo þykir guli liturinn innanvert á pungunum einstaklega seiðandi. Fjölmargir aðdáendur punganna hafa lagt upp í langferð til þess að komast í bakkelsið sem er fyrir löngu orðið eitt af aðalsmerkjum Geirabakarís. Sigurþór Kristjánsson, eigandi Geirabakarís og maðurinn að baki ástarpungunum, staðfestir í orðsendingu til...
LandiðEnginn lyfjafræðingur í apóteki Patreksfjarðar: „Með því hefur þjónusta við íbúa versnað til muna“ Sú óvenjulega staða er komin upp að enginn lyfjgafræðingur starfar nú við apótekið á Patreksfirði. Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps tók fyrir, að frumkvæði Jóhanns Arnar Hreiðarssonar, þá sérkennilegu stöðu að enginn lyfjafræðingur starfi nú við apótekið á Patreksfirði. Bæjarins Besta sagði frá málinu. Sveitarstjórnin ályktaði um málið og bendir á hnignandi þjónustu við íbúa svæðisins. „Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps lýsir alvarlegum áhyggjum yfir þeirri...