LandiðMatarveisla á Djúpavogi: „Móttökurnar hafa verið einstaklega góðar“ Berglind Einarsdóttir hefur opnað nýjan matarvagn og sá er að slá í gegn. Allir sem elska góðan mat ættu að kíkja til Berglindar á Djúpavogi. Sagt er að maturinn hennar sé stórkostlegur og ekki skemmir fyrir að Matarvaginn hennar sé á svona fallegum stað. „Móttökurnar hafa verið einstaklega góðar og þá sérstaklega hjá heimafólki sem kann að meta þessa viðbót...
LandiðHarðmæltur Akureyringur í Hveragerði- Stella stofnar Verahvergi Hveragerði hefur lengi vantað verslun sem uppfyllir tískuóskir kúnna og á sama tíma hugar að umhverfi og sparnaði en sú verslun virtist „Verahvergi“. Ótrúlegt en satt heitir nýja verslun Hveragerðis „Verahvergi.“ Verslunin selur notaðar flíkur og getur almenningur leigt bás og selt eigin flíkur. Einstaklingar bóka sér bás og geta selt hluti sem ekki eru lengur í notkun en eru...
LandiðFrænkur Ásmundar með hlaðvarp um ofbeldi: Ráðherrann og faðir hans sakaðir um innbrot og yfirgang „Undanfarin ár hefur fjölskyldan mín þurft að þola innbrot, yfirgang og stöðug skemmdarverk upp á margar milljónir. Lögreglan á Vesturlandi neitar að bregðast við og mál velkjast í kerfinu í óeðlilega langan tíma á meðan ofbeldið stigmagnast,“ segir Ása Skúladóttir, sem stofnað hefur hlaðvarpið Lömbin þagna ekki ásamt tveimur systrum sínum þar sem fjallað er um áralangar deilur innan fjölskyldu...
LandiðLambinu Ögn bjargað úr Krossneslaug – Fyrst var það kýr sem hafnaði í sundlauginni „Það hlaut að koma að þessu,“ skrifar sundlaugarvörðurinn í Krossneslaug um lambið Ögn sem var bjargað frá drukknun úr þessari hvað frægustu sundlaug landsins.Ögn er þekktasta lamb landsins og fjölmargir sem fylgjast með henni á samfélagsmiðlum. Eins og Mannlíf greindi frá á dögunum hegðar lambið sér frekar eins og hundur eða barn þar sem það fylgir eigendum sínum hvert fótmál....
LandiðKnattspyrnugoðsögn heiðursgestur á leik ÍBV og Fram í kvöld – Lék 53 leiki með landsliði Englands Knattspyrnugoðsögnin David James verður heiðursgestur á leik ÍBV og Fram sem fram fer í dag klukkan 16:00 á Hásteinsvelli. Tilefnið er að nú eru liðin 10 ár frá því að hann stóð í marki ÍBV. Fram kemur í frétt á vefnum Tígull.is að David sé Eyjamönnum vel kunnur en hann lék með ÍBV á tímabilinu 2013 þar sem hann lék...
LandiðSjö manna fjölskylda hætt komin í brennandi bíl Eldur kom upp í bíl upp á Mjóafjarðaheiði frá Fljótdalshéraði í gærkvöldi. Sjö manna fjölskylda var í bílnum en allir sluppu ómeiddir. Samkvæmt frétt Austurfréttar var slökkvilið frá Egilsstöðum og Reyðarfirði kölluð út í gærkvöldi um klukkan hálf sjö vegna elds sem kom upp í bíl sem staddur var á Mjóafjarðarheiði. Sjö manna fjölskylda var í bílnum er eldurinn kom...
LandiðSnævi þaktar lúpínur ofan við Húsavík – Hlýnar aftur í vikunni Hreinn Hjartarson tók hreint út sagt ótrúlega ljósmynd í dag og birti á Facebook en hún hefur vakið verðskuldaða athygli. Ljósmyndin sýnir snævi þaktar lúpínur á Grjótahálsi, rétt ofan við Húsavík. Það furðulega við myndina er sú staðreynd að Hreinn tók myndina í dag, fjórða júlí. Til gamans má geta þess að líkur eru á að hlána taki á Grjótahálsi...
LandiðSjálfboðaliðar söfnuðu rusli á Bolungarvík og fluttu á Ísafjörð með aðstoð Landhelgisgæslunnar Hópur dugnaðarforka safnaði rusli í 24 „saltpoka“ á Bolungarvík á Ströndum um helgina. Á vef Landhelgisgæslunnar má lesa um frábært framtak 20 sjálfboðaliða sem söfnuðu heilmiklu rusli á Bolungarsvík á Ströndum en ruslið var síðan flutt til Ísafjarðar með varðskipinu Freyju. Alls safnaðist í 24 „saltpoka“. Var þetta tíunda hreinsunarferð hópsins sem kallar sig Hreinni Hornstrandir. Lauk ferðinni er varðskipið...
LandiðÍna Berglind frá Fellabæ sigraði söngkeppni Samfés: „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en syngjandi“ Hin Fellbæska Ína Berglind Guðmundsdóttir sigraði á dögunum söngkeppni Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi með frumsömdu lagi. Austurfrétt tók viðtal við hina ungu og efnilegu söngkonu. Fram kemur í viðtalinu að í söngkeppni Samfés syngi unglingar á aldrinum 14 til 16 ára en Ína Berglind var annar tveggja fulltrúa Austurlands í keppninni í ár. Þó að flestir keppendur syngi lög...
LandiðSamherji segir upp öllu starfsfólki Hólmadrangs á Hólmavík: „Hvorki RÚV né Stöð 2 minntust á málið“ Starfsfólk Hólmadrangs á Hólmavík fékk tilkynningu fyrir síðustu helgi um fyrirhugaða lokun hjá fyrirtækinu og að hverjum einasta starfsmanni verði sagt upp störfum frá og með 30. júní næstkomandi. Alls er um að ræða 21 starfsmann í heildina. Fram kemur í frétt Samstöðvarinnar að Hólmadrangi sé búinn að vera burðarliður í atvinnulífi Hólmvíkinga síðustu 58 árin. „Nú lýkur 58 ára...
LandiðPétur Erlendsson á Goslokalagið í ár – Mín Heimaey Goslokalag Vestmannaeyja þetta árið heitir Mín Heimaey og er eftir Pétur Erlendsson. Fyrstu helgina í júlí ár hvert, stendur Vestmannaeyjabær fyrir myndarlegri Goslokahátíð, til minningar um lok eldgossins sumarið 1973. Hátíðin er stútfull af viðburðum og því kjörið að fara með fjölskylduna á þessa skemmtilegu hátíð. Hlusta má á lagið hér fyrir neðan og link á Spotify má finna hér. Myndband
LandiðHelgi Björns mætir í Fjárhúsið: Spáir rjómablíðu á Ströndum Helgi Björns mætir á Strandir um helgina. Hann mun koma fram á kvöldvöku í Fjárhúsinu á Valgeirsstöðum á föstudagskvöldið. Ferðafélag Íslands býður upp á gönguferðir um helgina á Glissu og Urðartind, þátttakendum að kostnaðarlausu., Hátíðin um helgina hefst á fimmtudaginn kl. 17:30 þegar haldið verður í stutta göngu. Á föstudeginum verður síðan gengið á Glissu og farið í sjóbað og...