MannlífiðKökublað Gestgjafans er komið út – gullfallegt og stútfullt af skuggalega góðum kökum Nú geta allir sælkerar landsins tekið gleði sína því glæsilegt kökublað Gestgjafans er komið út. Blaðið er stærra en gengur og gerist, heilar 164 síður, og kennir ýmissa grasa, þar sem lúffengar kökur, tertur og smákökur eru í aðalhlutverki. Fjölbreyttar súkkulaðikökuuppskriftir, allt frá hinni klassísku skúffuköku upp í djöflatertu fyrir lengra komna er að finna í blaðinu. Smákökur eru órjúfanlegur...
MannlífiðGeggjuð gulrótarúlluterta Ertu að leita að hugmynd að góðri tertu? Þessi uppskrift svíkur engan! Gulrótarúlluterta fyrir 10 4 egg, meðalstór 140 g sykur 100 g hveiti ½ tsk. lyftiduft ¼ tsk. salt ½ tsk. kanill 1 tsk. vanilludropar 200 g gulrætur, rifnar fínt Þeytið egg og sykur þar til það er létt og loftkennt. Blandið þurrefnum saman og sigtið út í. Blandið...
MannlífiðHin fullkomna blanda: Nauta-prime-steik ásamt ljúffengu meðlæti Hérna er á ferðinni uppáhaldssteikin mín: Nauta-prime-steik, ásamt nýuppteknum rauðum kartöflum, grillaðri papriku og béarnaise-sósu. Þetta er hin fullkomna blanda, bragðmikið og hæfilega mjúkt kjöt. Auðvitað er þetta ekki jafnmjúkt og lundin en bitinn er bragðmeiri. Hrein unun er að elda svona steik og í þessu tilviki vildi ég ekkert eiga mikið við kjötið því ég vildi að kjötbragðið og...
MannlífiðÚtsjónarsamir Íslendingar: Svona skipuleggja þeir heimilið Í nýjasta tölublaði Húsa og híbýla sýna smekklegir og sniðugir Íslendingar hvernig hægt er skipuleggja heimilið með útsjónarsemi og gott hugmyndaflug að leiðarljósi. „Í takmörkuðu plássi þarf maður stundum að finna frumlegar lausnir við vandamálunum,“ segir íslenskt par sem hefur komið sér fyrir í fallegri íbúð í miðbænum og fór skemmtilegar leiðir þegar það innréttaði hana. „Eldhúsið er mjög lítið...
MannlífiðÍslendingar vinna stórsigur á Ítalíu: „Þetta er toppurinn“ „Ég get ekki sagt annað en að ég sé mjög ánægður með þetta. Þetta er auðvitað bara toppurinn,“ segir Sigurður Þorsteinsson hjá Design Group Italia sem var að vinna til Compasso d’Oro-verðlaunanna fyrir Bláa lónið, en Compasso d’Oro þykja virtustu og eftirsóttustu hönnunarverðlaun Ítalíu. „Við höfum unnið til ýmissa verðlauna í gegnum tíðina en þetta eru allra virtustu verðlaunin í...
MannlífiðBesti bolli dagsins Með auknu álagi vegna ástandsins í samfélaginu getum við fjölgað gæðastundum heima fyrir. Það er hægt að gera með ýmsum hætti en fyrir suma byrjar dagurinn ekki fyrr en hellt hefur verið upp á fyrsta kaffibollann. Við tókum saman nokkrar fallegar kaffikönnur og -vélar sem bæði gleðja augað og byrja með þér daginn. Fyrir þá sem kjósa hæga uppáhellingu. Frá...
MannlífiðFrábærar skipulagslausnir frá Ferm Living Skipulagstaflan frá Ferm Living er stílhrein og auðveldar skipulagið á heimili. Mynd / Ferm Living Hægt er að hengja upp minnismiða, fallegar myndir og allt það sem halda þarf til haga. Taflan er úr korki sem klædd hefur verið fallegu bómullarefni og sett í einfaldan ramma úr aski sem gefur henni fágaðra yfirbragð. Mynd / Ferm Living Taflan hentar í...
MannlífiðKlikkuð kaka með kaffibragði Kökur með kaffibragði eru óneitanlega svolítið notalegar. Maður þarf ekki að vera mikill kaffisvelgur til þess að kunna að meta mokkabragð í hnallþórunum Marens með kaffikaramellu fyrir 6-8 marensbotn 4 eggjahvítur 2 tsk. skyndikaffiduft 200 g sykur salt á hnífsoddi 3 msk. kakó ofan á 2 ½ dl rjómi, þeyttur kaffikaramellukrem (sjá uppskrift neðar) u.þ.b. 50 g pekanhnetur, gjarnan ristaðar...
MannlífiðHló þegar henni var boðið starf blaðamanns Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir, ritstjóri Gestgjafans, er nýjasti gestur Andra Davíðs Péturssonar, barþjóns og framleiðslumeistara, í hinum vikulega hlaðvarpsþætti Happy Hour með The Viceman. Í Happy Hour fær Andri til sín nafntogaða barþjóna og sérfræðinga og áhugafólk um vín, kokteila og bjór á Íslandi og í þættinum segir Hanna meðal annars frá því hvernig kom til að hún varð ritstjóri helsta...
MannlífiðHátíð fyrir sælkera Móðir Jörð og Matarauður Austurlands boða til jarðaeplahátíðar í Vallanesi á laugardag. Í tilefni af uppskerulokum verður efnt til hátíðarhalda í Vallanesi um helgina, nánar tiltekið á laugardag, þar sem fjöldi spennandi viðburða verða í boði. Ræktunarsagan í Vallanesi verður rakin og gefst gestum og gangandi kostur að gæða sér á fjölda kartöfluafbrigða sem eru ræktuð á þessum sama stað...
Mannlífið„Líf ertu að grínast?“ Vefverslun Krabbameinsfélagsins býður upp á fjölbreytt úrval af fallegum og nytsamlegum varningi. Það nýjasta eru veggspjöldin frá Havarí með skírskotun til texta hljómsveitarinnar Prins Póló; „Er of seint að fá sér kaffi núna?“ og „Líf ertu að grínast?“ en við sláum því föstu að það hafi margir spurt sig þeirrar spurningar á okkar fordæmalausu tímum. Veggspjöldin eru litrík og húmorísk...
MannlífiðHunangskaka fyrir helgina – sjúklega góð! Margir sem leggja leið sína í bakarí freistast til að fá sér hunangsköku eins og þessa hér að neðan. Auðvelt er að baka hana heima, hún er sæt og því drjúg og góð og upplagt að skella í eina. Hunangskaka með smjörkremi fyrir 12 330 g hveiti 4 msk. kakó 1 tsk. matarsódi ½ tsk. salt ½ tsk. hjartarsalt ½...