Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslendingar vinna stórsigur á Ítalíu: „Þetta er toppurinn“

Íslendingar vinna stórsigur á Ítalíu: „Þetta er toppurinn“

„Ég get ekki sagt annað en að ég sé mjög ánægður með þetta. Þetta er auð­vitað bara topp­ur­inn,“ segir Sigurður Þor­steins­son hjá Design Group Italia sem var að vinna til Compasso d’Oro-verð­laun­anna fyrir Bláa lónið, en Compasso d’Oro þykja virt­ustu og eft­ir­sótt­ustu hönn­un­ar­verð­laun Ítalíu.

„Við höfum unnið til ýmissa verð­launa í gegnum tíð­ina en þetta eru allra virt­ustu verð­launin í hönn­un­ar­heim­inum á Ítalíu og í raun á heims­vísu þannig að ég get ekki sagt annað en að ég sé mjög ánægður með þetta. Þetta er auð­vitað bara topp­ur­inn,“ segir Sigurður Þor­steins­son, „chief design officer“ og annar aðal­eig­enda hönn­un­ar­stof­unnar Design Group Italia, DGI, í Mílanó, spurður hvernig til­finn­ing sé að vinna til þess­ara eft­ir­sóttu verð­launa.

Það eru sam­tök hönn­uða á Ítalíu, Associazione per il Disegno Industri­ale, ADI, sem afhentu Compasso d’Oro, eða Gullsirkil­inn ítalska, eins og verð­launin kall­ast í laus­legri þýð­ingu, við hátíð­lega athöfn í hinu nýja safni ADI í Mílanó. Verð­launin hafa verið veitt á tveggja ára fresti frá árinu 1954 og segir Sigurður ákvörðun sam­tak­ana um að verð­launa DGI fyrir vinn­una með Bláa lón­inu hafa komið skemmti­lega óvart.

„Við höfum unnið til ýmissa verð­launa í gegnum tíð­ina en þetta eru allra virt­ustu verð­launin í hönn­un­ar­heim­inum á Ítalíu og í raun á heims­vísu.“

„Oftast er Compasso d’Oro veittur fyrir áþreif­an­lega hluti eða vörur,“ útskýrir hann. „Það er sjald­gæft að óáþreif­an­leg verk­efni, eins og lang­tíma hönn­un­ar­stefna á borð við þá sem við höfum unnið með Bláa lón­inu, fái þessa við­ur­kenn­ingu. Það gerir verð­launin enn þá sér­stak­ari fyrir okkur.“

Stýrum upplifun fólks

Sigurður gekk til liðs við stof­una árið 1992 og hefur frá byrjun leitt þá vinnu sem hún hefur unnið með Bláa lón­inu. Hann segir að strax í upp­hafi hafi stofan og Bláa lónið komið sér saman um ákveðna hug­mynda­fræði og haft hana að leið­ar­ljósi við mörkun fyr­ir­tæk­is­ins, eða brand­ing eins og það er kallað á ensku. Sú hug­mynda­fræði eigi mik­il­vægan þátt í góðu gengi Bláa lóns­ins.

DGI og Bláa lónið hafa átt í nánu sam­starfi frá árinu 1997. DGI stýrir hönn­un­ar­vinnu fyr­ir­tæk­is­ins og kemur að allt frá hönnun vöru­merkis Bláa lóns­ins upp í við­tæka hönnun á hót­eli þess, Retreat. Mynd / Aðsend

„Hönn­un­ar­stefna Bláa lóns­ins sem þróuð var sam­hliða við­skipta­stefnu fyr­ir­tæk­is­ins, hefur verið mik­il­vægur hlekkur í árangri þess frá 1997,“ segir hann. „Við vinnum með svo­kallað „holistic aproach“ eða heild­ræna nálgun. Með öðrum orðum gengur okkar vinna út á að flétta saman og sam­ræma inn­an­húss­hönnun, umbúða­hönnun og þjón­ustu­hönnun og fleira og ramma inn allt sem Bláa lónið stendur fyrir inn í heild­stæða ímynd, hvort sem það eru ljós­myndir, þjón­usta eða við­mót starfs­fólks, því snertiflet­irnir við Bláa lónið eru svo margir. Við notum hönnun þannig til að auka áhuga á Bláa lón­inu og stýrum mjög með­vitað hvernig fólk upp­lifir og sér það og höfum gert það alveg frá árinu 1997 með góðum árangri.“

Innan úr Retreat hót­eli Bláa Lónsins. Mynd / Aðsend

Merkileg tímamót

Sigurður segir Compasso d’Oro-verð­launin í raun vera við­ur­kenn­ingu á hlut­verki hönn­un­ar­hugs­unar, þ.e. design think­ing, í stefnu­mótun fyr­ir­tækja og á ára­löngu sam­starfi þeirra Gríms Sæmund­sen, stofn­anda og for­stjóra Bláa lóns­ins. Það sé ekki verið að verð­launa DGI og Bláa lónið fyrir eitt­hvað eitt til­tekið verk­efni heldur alla hug­mynda­fræð­ina sem liggur að baki ára­tuga vinnu. Bláa lónið hafi einmitt fengið Hönn­un­ar­verð­laun Íslands fyrir „bestu fjár­fest­ingu í hönnun 2017“ og nú sé Compasso d’Oro að stað­festa mik­il­vægi hönn­un­ar­stefnu í árangri fram­sæk­inna fyr­ir­tækja.

Hér eru Sigurður og nokkrir starfs­menn DGI sama­komnir fyrir framan hið nýja safn ADI í Mílanó þar sem verð­launin voru afhent við hátíð­lega athöfn.

„Margir eiga enn svo­lítið í land með að skilja fylli­lega út á hvað heild­ræn hönn­un­ar­stefna gengur og þann mikla árangur sem hún getur skilað, þótt sumir séu farnir að kveikja á per­unni, og því má líta á ákvörðun sam­taka ítal­skra hönn­uðu um að verð­launa okkur fyrir vinn­una sem við höfum unnið með Bláa lón­inu sem ákveðin tíma­mót, ekki síður en mik­il­væga við­ur­kenn­ingu.

Það er verið að verð­launa okkur fyrir þá ákvörðun að keyra stra­gedíu Bláa lóns­ins áfram út frá hönn­un­ar­stefnu.

Við erum auð­vitað mjög ánægð með að ein­hverjir kunni að meta það og séu í stuttu máli að segja: Gott hjá ykkur,“ segir Sigurður léttur í bragði.

Spurður hvort hann telji að verð­launin opni enn fleiri dyr segir hann að þau mun festa DGI enn betur í sessi og fái von­andi fleiri til opna augun fyrir mik­il­vægi heild­rænnar hönn­un­ar­stefnu. Að hönnun gangi ekki bara út á að hanna áþreif­an­lega hluti heldur skapa stemn­ingu með vöru­merk­inu og vekja ákveðin hug­hrif. „Sam­vinnan við Bláa lónið er einmitt dæmi um vel heppnað sam­starf hönn­uða og fyr­ir­tækis,“ bendir hann á, „og sýnir bara hvað hægt er að ná langt ef sam­starfs­að­ilar eru sam­stiga og með sterka sýn.“

Design Group Italia, DGI er með virt­ustu og elstu hönn­un­ar­stofum á Ítalíu og er með skrif­stofur í Mílanó, New York, Silicon Valley og Reykja­vík. Stofan var stofnuð árið 1968 og hefur unnið með stórum fyr­ir­tækjum og stofn­unum og hlotið ótelj­andi við­ur­kenn­ingar á alþjóð­legum vett­vangi fyrir úrlausnir sínar. Meðal við­skipta­vina sem DGI hefur átt í sam­starfi við með einum eða öðrum hætti má nefna Bláa lónið, Pepsi, Unicef, 3M, Intel, ABB, D-Heart, Vök Baths, Kaffitár og Eiriks­son Brass­erie.

Myndir / Bláa lónið og Design Group Italia

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni