MannlífiðHrikalega gott og fljótlegt: Tíramísú á 15 mínútum Stundum er ekki nauðsynlegt að standa fyrir framan hrærivélina tímunum til að leggja eftirrétt á borðið. Margir hafa nauman tíma til stefnu eða vilja verja honum í annað. Hér er geggjað tíramísú sem hægt er að gera á aðeins 15 mínútum.
MannlífiðSkúlptúr sem skírskotun til framtíðar Verner Panton þekkja flestir en hann var fæddur í Danmörku árið 1926 og er hans oft minnst sem eins áhrifamesta hönnuðar tuttugustu aldarinnar. Panton var menntaður arkitekt og útskrifaðist hann frá konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn árið 1951.
MannlífiðGeggjaður lax með rjómalagaðri paprikusósu – tekur bara korter að elda Margir elda fiskrétti á mánududögum og er það ýsan sem oftast verður fyrir valinu en gaman er að breyta til og hér er ein alveg dúndurgóð uppskrift sem sló í gegn í tilraunaeldhúsi Gestgjafans, því hún er ekki bara hrikalega bragðgóð heldur líka æðislega einföld og fljótleg. Gott er að bera fram kartöflu- eða blómkálsmús með þessu rétti ásamt fersku salati.
MannlífiðNáttúrulegt og notalegt Náttúran er rauði þráðurinn í gegnum tískustrauma í ár, líka þegar kemur að litum. Allt frá dempuðum grænum og gráum tónum yfir í djúpan bláan lit. Jarðlitatónar á borð við gulbrúnan, brúnan, rústrauðan yfir í muskutóna verða einnig áberandi. Þessi litapalletta minnir okkur á veðurfarið og þróun litaumhverfis okkar hvort sem það er í innanhússhönnun, arkitektúr eða á tískupöllunum. Í...
MannlífiðMeinhollur linsubaunaréttur með eggi Linsubaunir eru hráefni sem býður upp á marga möguleika ásamt því að vera hollar og seðjandi. Hér kemur einn meinhollur og skemmtilegur réttur þar sem linsubaunir eru í aðalhlutverki.
MannlífiðLjúffengar linsubaunabollur með kryddaðri jógúrtídýfu Linsubaunir eru hráefni sem brýtur upp á marga möguleika ásamt því að vera meinhollar og seðjandi. Ólíkt þurrkuðum baunum þarf ekki að láta linsubaunirnar liggja í bleyti. Gott er samt að skola þær fyrst og róta í gegnum þær ef það skyldu leynast smásteinar í pokanum. Linsubaunabollur með kryddaðri jógúrtídýu gerir u.þ.b. 20 bollur 200 g brúnar eða rauðar linsubaunir...
MannlífiðDrifin áfram af innri þrá María Þorleifsdóttir er menntaður félagsráðgjafi frá Óslóarháskóla og útskrifaðist þaðan árið 1981 og hefur starfað sem slíkur síðan en þó með nokkrum hléum. Samhliða því starfi hefur hún sótt fjöldann allan af myndlistarnámskeiðum, bæði hér heima og erlendis. Veturinn 2004-2005 stundaði hún nám við hönnunarbraut Iðnskólans í Reykjavík. Árið 2007 fékk hún inngöngu í Kunsthøjskolen í Sønderborg í Danmörku þar sem hún lærði í eitt ár.
MannlífiðUppskriftir að fallegu heimili Farrow & Ball er málningarfyrirtæki sem stofnað var árið 1946 í Dorset á Englandi en forsprakkar fyrirtækisins voru John Farrow og Richard Ball. Fyrirtækið á sér langa sögu og hefur meðal annars gefið út skemmtilegar bækur sem innihalda ýmsan fróðleik um liti og val á þeim.
Mannlífið„Látum gestina taka þátt í matargerðinni“ Pétur Gautur myndlistarmaður og Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt hafa gaman af því að bjóða fólki heim í mat og drykk og í febrúar fengu þau nokkra góða vini í heimsókn. Gestgjafinn fékk að fylgjast með og afraksturinn má sjá í nýjasta tölublaðinu okkar, 4. tbl. 2020.
MannlífiðFisléttur og fantagóður fiskréttur Fiskur er afar hollur matur sem vert er að hafa á boðstólnum nokkrum sinnum í viku. Hér erum við með uppskrift að rétti sem fékk góðar viðtökur í tilraunaeldhúsi Gestgjafans enda er hann virkilega bragðgóður og einfaldur að gerð.
MannlífiðTóku hamborgarann upp á næsta „level“ Á veitingastaðnum YUZU á Hverfisgötunni er lögð áhersla á góðan og framandi mat með áherslu á hamborgara. Hönnunin er sótt í japanska hugmyndafræði enda er bragðheimurinn að miklu leyti þaðan. Í nýjasta tölublaði Gestgjafans er viðtal við Hauk Má Hauksson yfirmatreiðslumann staðarins. „Við ákváðum að gera hamborgarastað í nýrri útfærslu í fallegu umhverfi,“ segir Haukur Már. „Ég elska hamborgara og...
MannlífiðFróðleikur um tómat eða gulleplið eins og hann er stundum kallaður Tómaturinn (Solanum lycopersicum) er upprunninn í Mexíkó og Mið-Ameríku en fyrstu íslensku tómatarnir voru ræktaðir að Reykjum í Mosfellssveit árið 1913. Tómatar eru misjafnir eftir tegundum að lit, lögun, stærð og bragði. Í dag er hægt að fá nokkur afbrigði, fyrir utan þennan hefðbundna sem flestir þekkja, t.d. plómutómata, kirsuberjatómata, bufftómata og konfekttómata. Tómatar innihalda mikið af mikið af C-vítamíni,...