Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Látum gestina taka þátt í matargerðinni“

Pétur Gautur mynd­list­ar­maður og Berglind Guð­munds­dóttir lands­lags­arki­tekt hafa gaman af því að bjóða fólki heim í mat og drykk og í febr­úar fengu þau nokkra góða vini í heim­sókn. Gest­gjaf­inn fékk að fylgj­ast með og afrakst­ur­inn má sjá í nýjasta tölu­blað­inu okkar, 4. tbl. 2020.

„Látum gestina taka þátt í matargerðinni“
Pétur Gautur og Berglind Guð­munds­dóttir. Mynd/Unnur Magna|Í eft­ir­rétt er boðið upp á sæl­ker­a­osta

Afslapp­andi og kósí er að koma heim til þeirra hjóna. Þau taka á móti okkur létt í fasi og við fáum strax strax á til­finn­ing­una að þarna getum við verið eins og heima hjá okkur. Per­sónu­legir hlutir og klass­ísk hús­gögn gefa hlý­legan tón og í eld­hús­inu sést strax að hér eru mat­gæð­ingar á ferð, enda eld­húsið vel búið góðum tækjum og tólum, veg­legar mart­eiðslu­bækur í hillum og sæl­kera­vörur í krukkum og flöskum sýni­legar þar sem vel næst til þeirra. Tveir vinir þeirra, Unnur Sig­urð­ar­dóttir og Örn Jóhanns­son, eru mætt í boðið og eru að hjálpa til í eld­hús­inu.

Glatt er á hjalla og greini­legt að þarna er saman komið hresst fólk sem finnst gaman að lyfta sér upp. Mynd/Unnur Magna

„Við erum oft með veislur en reynum að gera smá­partí úr þeim með því að láta gest­ina taka þátt í mat­ar­gerð­inni, allir koma með eitt­hvað spenn­andi og hóp­ur­inn sam­ein­ast í matseld­inni. Þannig verða oft til góðar og skemmti­legar stundir með vinum í eld­hús­inu. Við höfum yfir­leitt þennan hátt­inn á, allir hjálp­ast að og þannig þarf hús­ráð­andi ekki að standa aleinn og sveittur í eld­hús­inu allan tím­ann. Matseldin er hluti af sam­ver­unni,“ segir Berglind. Þau voru samt búin að und­ir­búa ýmis­legt fyrir fram, búið er að leggja fal­lega á borð og und­ir­búa rétti til að ein­falda elda­mennsk­una.

Ein af upp­skrift­unum er sótt í danska mat­reiðslu­bók sem fylgt hefur þeim hjónum lengi. Hún er keypt á veit­inga­staðnum Pasta Basta sem var upp­á­haldsveit­inga­staður Péturs og Berg­lindar þegar þau bjuggu í Kaup­manna­höfn. „Stað­ur­inn er því miður ekki lengur til,“ segja þau. Mynd/Unnur Magna

„Við höfum alltaf haft áhuga á mat­ar­gerð og erum óhrædd við að bregða á leik í eld­hús­inu og gera alls­konar til­raunir. Hins vegar bjuggum við lengi í Kaup­manna­höfn og var sá tími mjög „insperar­andi“ hvað varðar áhrif í elda­mennsku. Við erum oft til dæmis með hakka­buff og spæ­legg í mat­inn og gerum mikið smörre-brauð. Ítalska eld­húsið er heldur aldrei langt undan,“ segir Pétur þegar hann er spurður út í matseld­ina hjá þeim hjónum.

„Við höfum alltaf haft áhuga á mat­ar­gerð og erum óhrædd við að bregða á leik í eld­hús­inu…“

„En um helgar erum við alltaf með eitt­hvað gott á boðstólum og nokkuð árs­tíða­bundið hvað við veljum. Á sumrin erum við mikið með grill­aðan mat eins og lamb eða fisk, á haustin villi­bráð og á köldum vetr­ar­kvöldum er ekk­ert eins gott og mat­miklar rjúk­andi súpur, Osso Buco, Coq au vin eða eitt­hvað ind­verskt.“

Í eft­ir­rétt er boðið upp á sæl­ker­a­osta, vín­ber og fíkjur ásamt des­ertvíni. Mynd/Unnur Magna

Smám saman tín­ast gest­irnir í hús og greini­legt að hér er á ferð­inni fólk sem kann að gera sér glaðan dag en hóp­ur­inn sam­anstendur af nokkrum æsku­vinum. Auk Unnar og Arnar eru gestir kvölds­ins Birna Björns­dóttir og Elías Ill­uga­son, Óskar Sig­urðs­son, bróðir Unnar, og Rakel Páls­dóttir.

Fyrst buðu þau upp á asp­as­rétt sem þau bjuggu til þegar þau leigðu sér hús á Ítalíu ásamt æsku­vin­konum Berg­lindar fyrir nokkrum árum. Næsti réttur var pasta­réttur sem ætt­aður er frá staðnum Pasta Basta, þeirra upp­á­haldsveit­inga­stað í Kaup­manna­höfn. Í aðal­rétt var síðan spænskætt­aður salt­fisk­réttur og í lokin úrval af sæl­ker­a­ostum, vín­ber og fíkjur sem borið var fram með ítalska des­etvín­inu Dievole Vin Santo.

Ítar­legra við­tal við hjónin er í nýjasta tölu­blaði Gest­gjafans, 4. tbl. 2020. Þar eru líka upp­skriftir að rétt­unum sem Pétur Gautur og Berglind buðu upp á.

Kaupa blað í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni