MannlífiðBlómkálssteikur – fljótlegur sælkeragrænmetisréttur Þetta góða hráefni býður upp á ótal möguleika í eldamennsku og er að auki hagkvæmt fyrir budduna. Blómkálssteikur er frábær létt aðalmáltíð eða dýrindis meðlæti sem töfra má fram með lítilli fyrirhöfn.
MannlífiðMæðradagsblómið 2020 – Vel valin skilaboð sem koma í ljós þegar kertin eru brennd Annan sunnudag í maí er mæðradagurinn haldinn hátíðlegur á Íslandi og víðar og ber hann upp á 10. maí þetta árið. Sala á Mæðradagsblóminu 2020 er hafin en Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður hannaði kerti sem er mæðradagsblómið í ár.
MannlífiðMæðradagsblómið 2020 – Vel valin skilaboð sem koma í ljós þegar kertin eru brennd Annan sunnudag í maí er mæðradagurinn haldinn hátíðlegur á Íslandi og víðar og ber hann upp á 10. maí þetta árið. Sala á Mæðradagsblóminu 2020 er hafin en Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður hannaði kerti sem er mæðradagsblómið í ár.
MannlífiðGeggjuð sítrónuformkaka með bláberjum sem allir elska með kaffinu og í lautarferðina Fátt er betra en heimalöguð formkaka með kaffinu. Þær hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina og þótt þær séu frábærar á kaffihlaðborð eru þær líka sniðugar til að taka með í ferðalagið. Gott er þá að pakka þeim vel inn í smjörpappír og binda fyrir en formköukr haldast mjúkar og góðar við stofuhita í nokkra daga. Í þessa köku má auðveldlega skipta út bláberjunum fyrir önnur ber, hindber passa sérstaklega vel í uppskriftina en einnig má nota brómber.
MannlífiðGeggjaður nauta-fillet hamborgarasamloka sem gælir við bragðlaukana Hamborgarar eru vinsælir á grillið og þótt úti sé kannski ekki mjög heitt þá er alveg kominn tími til að grilla eitthvað gott. Hér er afar sniðug og svolítið örðuvísi uppskrift að hamborgara. Í stað hefðbundins nautahakks er notað nauta-fillet sem skorið er í þunnar sneiðar og í raun má segja að hamborgarinn sé meira svona hamborgara samloka.
Mannlífið„Almennt fæ ég mér alltaf það skrítnasta á hverjum matseðli“ Alma Dagbjört Möller landlæknir hefur sannarlega verið í sviðsljósinu undanfarnar vikur og framtak þríeykisins í framlínunni vakið athygli á heimsvísu. Alma er fyrsta konan til að gegna embætti landlæknis og fyrra var hún í léttu viðtali í Gestgjafanum um matarminningar og -venjur en hún hefur meðal annars smakkað skordýr, naggrís og krókódíl sem hún segir að sé afbragðsmatur.
MannlífiðEldhúsáhöld sem færa þér vorið Danska hönnunarfyrirtækið Spring Copenhagen er þekkt fyrir skemmtilega hönnun sína á alls kyns skrautmunum fyrir heimilið ásamt líflegum áhöldum og aukahlutum fyrir eldhúsið þar sem leikgleði og húmor eru í aðalhlutverki.
MannlífiðKomdu skipulagi á heimilið með Kristina Dam Studio Danski hönnuðurinn Kristina Dam er mörgum kunn. Einfaldleiki, fágun og notagildi eru einkunnarorð hennar og samstarfsfólksins hjá Kristina Dam Studio. Geymsluboxin frá hönnunarstofunni eru tilvalin til þess að koma góðu skipulagi á heimilið en þau eru í senn falleg og nýtast afskaplega vel.
MannlífiðÆðislegur sinnepskjúklingur með beikoni Kjúklingur og beikon er hráefni sem margir elska og þegar sinnepi er bætt við þá verður blandan enn betri. Hér er afar einfaldur og sniðugur réttur sem gælir við bragðlaukana. Gott er að bera þennan rétt fram t.d. með kartöflumús eða kúskús og einnig er gott að hafa salat með.
MannlífiðCarl Hansen & Søn í samstarfi við Ilse Crawford Í tilefni afmælis Hans J. Wegner hefur danski húsgagnaframleiðandann Carl Hansen & Søn sett á markað sérstaka afmælisútgáfu af Wishbone-stólnum til þess að heiðra minningu hans. Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í þennan glæsilega stól.
MannlífiðÍ höfuðið á blautasta bletti á Íslandi Frumkvöðlastarfsemi heldur áfram sem aldrei fyrr þrátt fyrir ástandið og eigendur Smiðjunnar brugghúss í Vík í Mýrdal hafa þurft að bregðast við ástandinu vegna heimfaraldursins eins og aðrir. Hingað til hafa þau aðeins bruggað bjór sem seldur hefur verið á krana en kynna nú til leiks fjóra nýja dósabjóra. Þau vonast eftir breytingu á lögum til að mega selja þessa nýju afurð út úr húsi hjá sér.
MannlífiðIndverskur kjúklingur á naan-brauði – Frábær og einfaldur réttur á grillið í góðviðrinu Ef ekki er tími til að draga fram grillið í dag þá hvenær? Hér er sniðugur og einfaldur réttur sem hentar vel að henda á grillið með litlum fyrir vara og tilvalið er að borða út á palli, kannski með ullarteppið vafið um sig. Rétturinn er í einskonar götumatarstíl þar sem hægt er að borða hann með höndunum. Með þessum rétti passar vel að drekka góðan bjór eða bara engiferöl. Fyrir þá sem hafa aðeins meiri tíma má líka skella í lítinn fljótlegan eftirrétt eins þessa tiramísú sem tekur bara 15 mínútur að laga og þá er máltíðin fullkomnuð.