Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í höfuðið á blautasta bletti á Íslandi

Frum­kvöðla­starf­semi heldur áfram sem aldrei fyrr þrátt fyrir ástandið og eig­endur Smiðj­unnar brugg­húss í Vík í Mýrdal hafa þurft að bregð­ast við ástand­inu vegna heim­far­ald­urs­ins eins og aðrir. Hingað til hafa þau aðeins bruggað bjór sem seldur hefur verið á krana en kynna nú til leiks fjóra nýja dósa­bjóra. Þau von­ast eftir breyt­ingu á lögum til að mega selja þessa nýju afurð út úr húsi hjá sér.

Í höfuðið á blautasta bletti á Íslandi

„Þeir bjórar sem eru á leið­inni í dósir þessar vik­urnar eru Wet Spot, sem er New England IPA, Stuck at home, sem er Milk Stout, Renslip, sem er pilsner og Er of snemmt að fá sér, sem er India Pale Lager. Við von­umst við til að allir þessir bjórar verði fáan­legir í Vín­búð­unum í maí og von­andi fáum við einnig að selja þá beint úr brugg­hús­inu og í gegnum net­versl­un­ina okkar,“ segir Þórey Richardt Úlf­ars­dóttir, rekstr­ar­að­ili og eig­andi Smiðj­unnar brugg­húss.

Þessi bjór var nefndur eftir blautasta stað á Íslandi. Hönnun dósanna er í höndum Bobby Breið­holt.

„Eins og lögin eru núna megum við bara selja dósa­bjór­inn okkar á eigin stað, ein­göngu til að neyta á staðnum. Við megum ekki selja bjór­inn út úr húsi, í lok­uðum eða opnum umbúðum, til ein­stak­linga sem aldur hafa til, til að neyta heima hjá sér, en okkur er auð­vitað heim­ilt að selja okkar vöru til ann­ara veit­inga­húsa með áfeng­is­leyfi. Ef breyt­ing verður á áfeng­is­lögum, með því frum­varpi sem nú liggur fyrir, þá yrði þetta lög­legt fyrir okkur og myndi hafa mikil áhrif á rekstur smærri brugg­húsa og losa um þau áhrif sem ein­okun ÁTVR hefur á okkar rekstar­um­hverfi. Bjór­ferða­mennska hefur færst í aukanna á Íslandi og margir ferða­menn sem til okkar koma vilja gjarnan versla beint við fram­leið­endur, til að fá vör­una sem fers­kasta og svo er ákveðin upp­lifun að frá smá fræðslu um bjór­inn sem þú verslar en allt okkar starfs­fólk hefur sér­þekk­ingu á bjórnum.“

Þórey Richardt Úlf­ars­dóttir, rekstr­ar­að­ili og eig­andi Smiðj­unnar brugg­húss. Mynd/Eliza Witek

Hvaða breyt­ingar á lögum vilduð þið sjá fara í gegn: „Að leyfi­legt verði að selja beint frá fram­leið­anda til ein­stak­linga sem aldur hafa til. Eins er til umræðu að fá að selja úr net­verslun, en eins og staðan er núna er lög­legt að fá sendan bjór heim að dyrum frá erlendum net­versl­unum, en ekki íslenskum, sem er auð­vitað alveg út í hött. Einnig mætti veita smærri brugg­húsum afslátt af áfeng­is­gjöldum sem myndi gera þau sam­keppn­is­hæf­ari gagn­vart stærri brugg­húsum. Til dæmis þá eru áfeng­is­gjöldin á bjórnum okkar Wet spot rúm­lega 200 kr. á hverja dós. Þetta er að okkar mati löngu tíma­bær breyt­ing og þá sér­stak­lega núna í þessu ástandi sem er í sam­fé­lag­inu öllu.“

Hver nafnbót á sína sögu

Bjór­arnir Wet spot og Stuck at home eru til­búnir og hinir tveir munu fara á dósir í vik­unni. Þórey segir að hver bjór eigi sýna sögu, ekki síst nafn­bótin.

„Við erum með bjór­nafna­nefnd þar sem við köstum hug­myndum á milli og reynum að koma upp með eitt­hvað snið­ugt, helst eitt­hvað tví­rætt og hnyttið. Nafnið á Wet spot er til­komið vegna þess að Vík er blaut­asti blett­ur­inn á Íslandi. Renslip-pilsner­inn okkar fékk sitt nafn þegar loka­frestur var runn­inn út og Vigfús Þór sló því fram í kæru­leysi að hafa nafnið bara pilsner aftur á bak.“

Smiðjan brugg­hús opn­aði 11. apríl 2018 og frá upp­hafi hafa verið fram­leiddar 20 teg­undir á krana og má þar nefna Mango passion­fruit skyr sour, nokkrar teg­undir af IPA og New England IPA, porter, Belgian blond og pilsner. Þórey segir að kost­ur­inn við að reka sam­hliða eigin veit­inga­stað geri þeim auð­velt fyrir að prófa sig áfram.

„Þetta ástand mun líða undir lok og við eigum eftir að taka hell­ings lær­dóm frá þessu sem mun nýt­ast okkur per­sónu­lega og í rekstri..“

„Við rekum veit­inga­stað með áherslu á sæl­kera­ham­borg­ara. Í sam­komu­bann­inu höfum þurft að grípa til sótt­varn­ar­að­gerða hjá okkur eins og auka þrif, fækka borðum, passa vel upp á fjölda­tak­mark­anir og 2 metra regl­una. Við byrj­uðum líka með heim­send­ingar á mat og gerðum grill­pakka fyrir pásk­ana svona „do it your self“. Við settum upp net­verslun með varn­ingi og munum von­andi geta bætt bjórnum þar við. Þetta hefur gengið ótrú­lega vel og við höfum leitað allra leiða til að leysa þau vanda­mál sem fylgja sam­komu­bann­inu. Starfs­fólkið hjá okkur hefur sýnt þessu ástandi ótrú­legan skiln­ing og hafa staðið sig virki­lega vel. En þetta hefur vissu­lega komið niður á rekstr­inum. Í apríl vorum við með 18% af sölu sama mán­aðar í fyrra, ég held að það segi felst það sem segja þarf. Við höfum þurft að end­ur­skoða allan okkar rekstur og hag­ræða. En við fórum í þessa stóru fjár­fest­ingu rétt fyrir Covid-19-far­ald­ur­inn, að kaupa dósa­línu. Við bindum miklar vonir að hún vegi upp á móti þessu falli sem hefur orðið á ferða­manna­straumnum hérna í Vík.“

Hvetja fólk til að kaupa íslenskan handverksbjór

Stuck at home á að sjálf­sögðu nafn sitt að rekja til sam­komu­banns­ins búðið var að setja á þegar þessi dósa­bjór varð til. Hönnun eftir Bobby Breið­holt.

Þórey segir að þau fari inn í sum­arið í tölu­verðri óvissu en ætla að leggja áherslu á að setja bjóra á dósir og halda áfram að leggja metnað í það sem þau gera.

„Sumarið hefur verið tími bjór­há­tíða en núna er búið að aflýsa öllum nema einni, svo mögu­lega er búið að opn­ast fyrir ein­hvern frí­tíma sem við ætlum þá að nýta með fjöl­skyldu og vinum. Þetta ástand mun líða undir lok og við eigum eftir að taka hell­ings lær­dóm frá þessu sem mun nýt­ast okkur per­sónu­lega og í rekstri. Fyrir rekst­ur­inn er þetta auð­vitað mikið högg sem á eftir að taka tíma að jafna sig. Við stefnum á að stækka bæði brugg­hús og veit­inga­stað­inn hjá okkur, en þau plön verða sett á ís eitt­hvað áfram. Við hvetjum svo auð­vitað Íslend­inga til að ferð­ast inn­an­lands í sumar og neyta íslensks hand­verks­bjórs í stað erlendrar vöru. Ísland á mörg frá­bær hand­verks­brugg­hús.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni