Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Aðdáendur sungu með þegar Bonnie Tyler var borin til grafar

Meðal þekktustu laga hennar er stór­smellurinn „Total Eclipse of the Heart“

Bonnie Tyler kvödd
Bonnie Tyler kvödd Mikill fjöldi manns mætti. Mynd: JUSTIN TALLIS / AFP

Mikill fjöldi aðdáenda komu saman í Swansea í Wales á mánudag til að kveðja söng­konuna Bonnie Tyler, sem lést í Portúgal í síðasta mánuði, 75 ára að aldri.

Meira en eitt þúsund manns söfnuðust saman fyrir utan Swansea Minster-kirkjuna áður en útförin hófst. Athöfninni var jafnframt streymt í beinni útsendingu fyrir þá sem ekki komust á staðinn.

Viðstaddir klöppuðu þegar líkbíll með hvítri kistu söng­konunnar kom að kirkjunni. Kistan var skreytt hvítum rósum og liljum auk þess sem á hana hafði verið grafið lítið tákn af hendi sem hélt á hljóðnema ásamt G-lykli.

Þegar kistan var borin inn í kirkjuna voru tvö þekkt lög Tyler leikin, „It's a Heartache“ og „If I Sing You A Love Song“. Fjölmargir aðdáendur tóku undir og sungu með.

Tyler, sem var þekkt fyrir hrjúfa og auðþekkjanlega rödd sína, naut mikilla vinsælda á alþjóða­vettvangi. Meðal þekktustu laga hennar er stór­smellurinn „Total Eclipse of the Heart“.

„Hún er velsk goðsögn,“ sagði Bette Richards, 75 ára aðdáandi, við AFP og bætti við að Tyler hefði verið indæl manneskja sem hefði aldrei breyst þrátt fyrir frægðina.

Karlakór flutti einnig lag Simon & Garfunkel, „Bridge Over Troubled Water“, við athöfnina.

John Edwards, sjötugur íbúi Swansea, sagði Tyler hafa verið stór­stjörnu en um leið venjulega manneskju sem heimamenn litu á sem eina af sínum eigin.

„Ég er stoltur. Allir elskuðu hana. Þetta er mikill missir,“ sagði Edwards.

Fjöl­skylda og vinir Tyler fylltu kirkjuna við útförina en fjölmennur hópur aðdáenda fylgdist með fyrir utan og kvaddi eina þekktustu söngkonu sem Wales hefur alið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs