Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Tvítugi neminn finnst ekki enn

Fjöl­skyldan ótt­ast að henni hafi verið rænt.

Fjöl­skylda týnda háskóla­nem­ans Sudiksha Konanki, frá Pitts­burgh í Banda­ríkj­unum, ótt­ast að henni gæti hafa verið rænt í Dóminíska lýð­veld­inu.

Sjá einnig: Tvítugur nemi í vor­fríi hvarf spor­laust – Sást síð­ast á strönd­inni

Yfirvöld á staðnum hafa gefið til kynna að hinn tví­tugi lækna­nemi hafi lík­lega drukknað eftir að hafa hoppað í sjó­inn snemma á fimmtu­dags­morgun þegar Konanki var í vor­fríi með vinum sínum á Riu Republic Resort í Punta Cana.

Fjöl­skylda hennar efast hins vegar um þá til­gátu. „Það eru liðnir fjórir dagar og ef hún væri í sjónum hefði henni lík­lega skolað á land,“ sagði faðir týnda nem­and­ans, Subb­arayudu Konanki, við wtop.com. Bætti hann við: „Hún finnst ekki, svo við biðjum þá um að kanna aðra mögu­leika, eins og mann­rán eða brott­nám.“

Pabbinn flaug frá heim­ili sínu í Virginíu til Punta Cana með eig­in­konu sinni og tveimur fjöl­skyldu­vinum um leið og hann átt­aði sig á dóttur hans var saknað.

Þau lögðu fram saka­mála­kæru þar sem þau þrýstu á Dóminíska yfir­völd að „gera taf­ar­lausar ráð­staf­anir til að kanna ekki aðeins mögu­leik­ann á drukknun fyrir slysni, heldur einnig mögu­leik­ann á mann­ráni eða glæp­sam­legum verkn­aði,“

„Eigur hennar, þar á meðal per­sónu­legir hlutir eins og sím­inn hennar og veski, voru skildir eftir hjá vinum hennar, sem er óvenju­legt því hún var alltaf með sím­ann sinn með sér,“ sagði í kærunni.

Sudiksha, nokkrir vinir og „nokkrir aðrir strákar sem þau hittu á dval­ar­staðnum“ fóru á strönd­ina um 4:00 eftir að hún sagði vinum sínum að hún væri á leið í partý, sagði faðir hennar við CNN. „Eftir það komu vinir hennar aftur eftir nokkurn tíma og dóttir mín kom ekki aftur, kom ekki af strönd­inni,“ sagði faðir hennar.

Konanki og fleiri sáust á eft­ir­lits­myndum nálægt strönd­inni skömmu áður en hún hvarf.

Emb­ætt­is­menn á dval­ar­staðnum sögðu að vinir hennar hafi til­kynnt hvarf hennar um klukkan 16:00. á fimmtu­dag, um 12 tímum eftir að hún sást síð­ast, þegar hún fannst ekki í her­berg­inu sínu.

„Þeir leit­uðu með þyrlum og eftir öðrum leiðum. Þeir leit­uðu einnig í nær­liggj­andi flóa, runnum og trjám. Þeir fóru marg­sinnis um sömu svæðin,“ sagði faðir hennar við CNN.

Stofn­anir frá heim­ili Konanki í Virginíu, ásamt ind­verska sendi­ráð­inu í Dóminíska lýð­veld­inu, hafa aðstoðað við leit­ina en Konanki er ind­verskur rík­is­borg­ari.

Alrík­is­lög­reglan, DEA, Rann­sókn­ar­menn Heima­varnar (e. Homeland Security Investigations) og lög­reglan í Pitts­burgh-háskóla aðstoða við rann­sókn dóminísku rík­is­lög­regl­unnar, að sögn lög­reglu­stjór­ans í Loudoun-sýslu, Virginia, þaðan sem Konanki er.

Þá hefur Háskól­inn í Pitts­burgh verið í sam­bandi við fjöl­skyldu hennar.

Konanki var á dval­ar­staðnum með fimm öðrum kven­kyns náms­mönnum frá háskól­anum, að sögn lög­reglu­stjór­ans í Loudoun-sýslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram