SlúðurYfirvöld banna ferðir að gosinu – Nokkur hálkuslys – Bjart í morgun Lokað var fyrir ferðir almennings á gosstöðvarnar í Geldingadölum í gær vegna veðurs. Það er Sýslumaðurinn á Suðurnesjum sem tók þá ákvörðun í gærkvöld að meina fólki aðgang að svæðinu vegna veðurs. Gosmökkinn leggur til suðurs. Þúsundir hafa lagt leið sína að að Fagradalsfjalli til að sjá gosið og upplifa þá ógnarkrafta sem þar búi. Lítið hefur verið um slys...
SlúðurKatrín kemst upp með allt Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur sjaldan verið vinsælli á meðal þjóðarinnar. Þrátt fyrir óáran vegna Covid og getuleysi ríkisstjórnarinnar í að útvega bóluefni fyrir þjóðina er henni klappað lof í lófa. Bóluefnakreppan er skrifuð á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og evrópudekur hennar. Vinsældir Katrínar koma glöggt í ljós ef lesinn er leiðari Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu. Kolbrún hefur yfirleitt lítið þol gagnvart...
SlúðurBiskup í bobba vegna yfirgangs Agnes Sigurðardóttir biskup er í bobba vegna reksturs Þjóðkirkjunnar og framkomu í garð starfsfólks. Kirkjan tapaði hátt í 700 milljónum króna á seinasta ári. Ofan á rekstraróstjórn bætist að biskupinn er gagnrýndur fyrir að koma illa fram við undirmenn og ala á ótta þeirra. Séra Skírnir Garðarsson er einn þeirra sem lögsækja biskup vegna brottreksturs í tvígang. Skírnir krefst hárra...
SlúðurGlittir í Jón Ásgeir Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður er ekki af baki dottinn þar sem smásala er annars vegar. Hann er með undirtökin í eigendahópi Skeljungs og er þar stjórnarformaður. Nú heyrist af honum í verslanageiranum. Skeljungur er kominn með undirtökin í netverslanakeðjunni Heimkaup og þar glittir í Jón Ásgeir. Hermt er að stjórnarformaðurinn sýni netbúðinni mikinn áhuga. Víst er að reynsla hans frá...
SlúðurKlíka Egils Einhver mestumtalaða bók þessa árs er Málsvörn, átakasaga Jóns Ásgeirs Jóhannessonar athafnaskálds og útrásarvíkings, sem Einar Kárason samdi. Einar er einn af virtustu rithöfundum þjóðarinnar og þykja það jafnan tíðindi þegar hann sendir frá sér bók. En svo undarlega bregður við að helsti bókmenntaþáttur þjóðarinnar, Kiljan, lætur eins og bókin sé ekki til og ekkert heyrist af henni á þeim...
SlúðurFékk kvíðakast vegna Fréttablaðsins Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fékk kvíðakast í útvarpsviðtali eftir að hafa gengið í gegnum miklar raunir vegna umfjöllunar Fréttablaðsins sem bendlaði hann við veiðiþjófnað. Ragnar Þór sagði frá þessu í viðtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 2. Fréttablaðið með ritstjórann Jón Þórisson í fararbroddi baðst ekki afsökunar á þjófnaðaráburðinum og vísaði til heimilda sinna...
SlúðurBjarni Hafþór berst við vágest Einn allra besti sjónvarpsmaður Íslands er Sigmar Guðmundsson. Viðtalsþáttur hans, Okkar á milli, hefur slegið í gegn. Í síðasta þætti var Bjarni Hafþór Helgason, sjónvarpsmaður og lagasmiður, viðmælandinn. Hann er með Parkinson-sjúkdóminn og sagði frá glímu sinni við þann vágest af einlægni. Það er aðdáunarvert af hve miklu æðruleysi hann tekst á við þann banvæna sjúkdóm. Bjarni Hafþór sagðist aldrei...
SlúðurNeyðarkall frá Katrínu Katrín Jakobsdóttir forsætsráðherra er áhyggjufull vegna þeirrar pattstöðu sem uppi er varðandi breytingar á stjórnarskránni sem hún lofaði fyrir síðustu kosningar. Katrín náði ekki fram samstöðu um breytingar með hinum stjórnnarflokkunum og greip til þess örþrifaráðs að leggja fram þingmannafrumvarp eins og hver annar minnipokaþingmaður. Frumvarp hennar fær blendin viðbrögð, bæði til hægri og vinstri. Öfgahægrið í Sjálfstæðisflokknum er fast...
SlúðurAthygli fyrir Þórð Ásmundur Friðriksson alþingismaður hefur líkt og margir Sjálfstæðismenn mikinn áhuga á rekstri Ríkisútvarpsins og því hverjir komast í matarholurnar. Meðal þeirra sem eru mikið notaðir til álitsgjafar er Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, sem hefur lipran talanda og skoðanir á flestu í samfélaginu. Gagnrýnt hefur verið að meðeigandi Þórðar í Kjarnanum, Fanney Birna Jónsdóttir hafi verið dugleg að kalla Þórð...
SlúðurSigmundur Davíð vill fyrirgefningarbeiðni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, þykir af mörgum vera einn sá frumlegasti í hugsun. Innlegg hans er á stundum stórbrotin en eins og gengur hjá göldnum fola á hann það til að stökkva útundan sér rétt eins og gerðist á Klausturbar þar sem hann og félagar hans misstu sig í drykkjurausi. Eitt af hjartans málum Sigmundar Davíðs er að Geir...
SlúðurSigmundur Ernir tekur stökkið Sú ákvörðun Þórhalls Gunnarssonar, dagskrárstjóra Stöðvar 2, að grafa fréttir stöðvarinnar í myrkri útvarpsins þykir vera vafasöm og líkleg til að skaða fremur en að bjarga bágum fjárhag. Víst er að mjög fækkar í þeim hópi sem vita af tilvist Stöðvar 2 þegar fréttirnar eru lokaðar. En svo eru aðrir sem sjá tækifæri í þessu. Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjónvarpsstjóri Hringbrautar,...
SlúðurMögnuð upprisa Jóa Fel Bakarinn Jói Fel gekk í gegnum mikla erfiðleika þegar bakarískeðja hans varð gjaldþrota með tilheyrandi brauki og bramli. Jói hefur um árabil verið eitt af frægðarmennum Íslands, í senn dáður og dýrkaður. Eftur gjaldþrotið hvarf hann um tíma af sjónarsviðinu og sagði fátt af honum þar til spurðist út að hann væri tekinn til við að mála portretmyndir. Þegar honum...