SlúðurSigurður á engin lausaleiksbörn Sigurður Bogi Sævarsson er einn öflugasti blaðamaður Morgunblaðsins. Hann þykir afar næmur á samfélag sitt, gamansamur og snjall í tilsvörum þar sem það á við. Hann segir frá því á Facebook að stjórnandi frá Innheimtustofnun sveitarfélaga hafi hringt í hann á dögunum út af grein um stofnunina sem birtist í Mogganum. Innheimtustofnun annast meðal annars innheimtu á barnsmeðlögum frá óreiðufólki....
SlúðurBryndís fær samúð Nýjasta áfallið fyrir fjölskyldu Jóns Baldvins Hannibalssonar er sú uppljóstrun sem felst í birtingu dagbóka Þóru heitinnar Hreinsdóttur, þáverandi nemanda við Hagaskóla. Hún átti samkvæmt dagbókunum í ástarsambandi við Jón Baldvin, kennara sinn, Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi ráðherra, er einn þeirra fáu sem stigið fram Jóni Baldvin til varnar en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi samherji Jóns Baldvins, hefur fordæmt framferði hans....
SlúðurGjaldþrot Lindu P. Heilsudrottningin Linda Pétursdóttir hefur slegið í gegn með námskeiðum sínum á netinu sem eru fjölsótt. Linda hefur aldrei verið feimin við að líta um öxl og gera upp fortíð sína sem geymir hæstu tinda jafnt og djúpa dali. Á dögunum var hún verðlaunuð fyrir námskeið sín sem fjöldi kvenna hefur sótt til þess að öðlast nýtt og betra líf. Að...
SlúðurEgill á jötunni Mannaval hjá Ríkisútvarpinu er ekki mikið ef marka má gríðarleg umsvif þess frambærilega Egils Helgasonar sjónvarpsmanns. Egill er hvorki meira né minna en í þremur stórum dagskrárliðum Sjónvarpsins í október. Hann er að vanda með umræðuþáttinn Silfrið og bókmenntaþáttinn Kiljuna. Þá er hann með þætti um uppbyggingu bæjarfélaga á Íslandi. Allir þessir þættir eru bærilegir án þess þó að vera...
SlúðurBreiðsíðuárás Jóns Baldvins á Aldísi Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, er ekki af baki dottinn þótt fjöldi kvenna hafi borið hann sökum um kynferðsbrot eða að hafa stigið yfir mörk sín. Jón Baldvin fær í dag birta næstum heilsíðugrein í Mogganum sem felur í sér breiðsíðuárás á Aldísi Schram, dóttur hans, og suma af fyrirsvarskonum MeToo byltingarinnar. Kveikjan að greininni er birting Stundarinnar á dagbókum...
SlúðurMamma ráðherrans sefur í bíl Arnþrúður Karlsdóttir á Útvarpi Sögu ræddi við konu nokkra í símatíma í vikubyrjun eftir viðtal við vopnabróður sinn, Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra sem stendur í ströngu við að halda óæskilegum útlendingum fjarri landinu og koma upp einangrunarbúðum. Konan í símanum kynnti sig sem Önnu og upplýsti að hún ætti vart til hnífs og skeiðar og hefði sofið í bifreið sinni undanfarna...
SlúðurÓhróður Agnesar Kvennamál Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra, eru víða í kerfinu þessa dagana. Rassastrokumál hans er á leið fyrir Landsdóm þar sem skorið verður úr um meint káf hans í matarboði á Spáni. Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur rekur dóttir Jóns Baldvins, Aldís Schram, mál á hendur þeirri umdeildu og harðskeyttu Agnesi Bragadóttur, fyrrverandi blaðamanni Morgunblaðsins, sem lagðist á árar með Jón Baldvin...
SlúðurSkúli ekki öreigi lengur Skúli Mogenesen, stofnandi hins fallna flugfélags Wow, hefur rétt úr kútnum síðan hann setti flugfélag sitt í þrot með gríðarlegum afleiðingum fyrir íslenskt samfélag. Sumir vorkenndu kappanum á þeim erfiðu tímum en aðrir voru reiðir vegna tjónsins. Skúli var um árabil verið einn mesti spaði viðskiptalífsins, annálaður fyrir að gefast aldrei upp. Nokkru eftir að Wow fór á hausinn lýsti...
Slúður„Æji úps! Það er engin minningargrein“ Átökin um Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, og meintar rassastrokur og misnotkun hans á konum og stúlkun heldur áfram og breiðist út. Seinasta uppnám varð þegar fjölskylda Þorsteins Eggertssonar textahöfundar og barnsmóður Þóru Hreinsdóttur, sendi yfirlýsingu og mótmælti birtingu dagbóka Þóru þar sem lýst var nánum samskiptum hennar, skólastúlkunnar, og kennarans Jóns Baldvins. Það var dóttir Þóru, Valgerður Þorsteinsdóttir sem...
SlúðurAftökulisti Sólveigar Önnu Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var að sögn í skotlínu hinna meintu hryðjuverkamanna sem eru í gæsluvarðhaldi. Annar hinna grunuðu er að sögn hægriöfgamaður en hinn byssumaður. Sólveig hefur lýst þvík áfalli sem hún og fjölskylda hennar urðu fyrir vegna málsins sem óneitanlega er grafalvarlegt. Viðskiptablaðið gerir sér mat úr þess en tekur upp í sömu andrá að sjálf hafi...
SlúðurRasismi í skjóli Katrínar Rithöfundurinn Sjón er ómyrkur í máli þegar hann fjallar um flóttamannabúðir sem Sjálfstæðismenn undir forystur Bryndísar Haraldsdóttur alþingismanns og Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra hafa lýst vilja til að reisa á Suðurnesjum. Sjón segir á samfélagsmiðlum að þarna sé um að ræða „einangrunarbúðir“. Hann lætur Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hafa það óþvegið og leggur út af þeim áhyggjum hennar að hægri öfgahyggja sé...
SlúðurJón vill ekki Guðrúnu Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur farið mikinn undanfarið í málum tengdum útlendingum. Hann á sér þann blauta draum að útiloka sem flesta flóttamenn og aðra útlendinga frá því að koma til lands alsnægtanna. Þannig hefur hann haldið því fram að stjórnleysi ríki í landinu vegna þess fjölda sem streymi hömlulaust inn í landið og ógni þar með samfélaginu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra...