Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Lýsir 70 milljarða hagnaði sínum og varar við veiðigjöldum

For­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar er ósáttur við til­raunir til að hækka veiði­gjöld, eins og hann var árið 2012.

Gunnþór Ingvason
Gunnþór Ingvason For­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar stóð í stafni bar­áttu gegn hærri veiði­gjöldum 2012 og aftur nú rúm­lega 80 millj­örðum króna síðar. Mynd: Síldarvinnslan

„Frá árinu 2014 hefur Síld­ar­vinnslan hagn­ast um 70 millj­arða króna,“ segir Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, í bréfi sínu til hlut­hafa, þar sem hann segir frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um hækkun veiði­gjalda „van­hugs­aðar og illa útfærðar til­lögur um skatta­hækk­anir sem ekki þola skoðun“.

Í bréfi sínu til hlut­hafa sem birt er á Facebook - og er aug­lýst fyrir Íslend­ingum - gerir Gunnþór til­raun til að svara þeim rök­semdum ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki og eig­endur þeirra hafi öðl­ast yfir­ráð yfir stórum hluta íslensks við­skipta- og atvinnu­lífs með hagn­aði af nýt­ingu auð­lind­ar­innar. Frumvarp atvinnu­vega­ráð­herra um breyttan útreikn­ing veiði­gjalda er talið munu tvö­falda veiði­gjöldin sem útgerðir greiða úr 10 millj­örðum króna á ári í 20 millj­arða, ef miðað er við síð­asta ár.

Gunnþór segir að Síld­ar­vinnslan hafi aðeins einu sinni fjár­fest í ótengdum rekstri. Þá hafi félagið verið beðið um að fjár­festa í Sjóvá. Samtals keypti Síld­ar­vinnslan fyrir einn og hálfan millj­arð í trygg­ing­ar­fé­lag­inu, en afhendi síðan eig­endum félags­ins eign­ar­hlut­inn þegar Síld­ar­vinnslan var skráð í Kaup­höll­ina 2021. „Í milli­tíð­inni höfðu kaupin feng­ist til baka í formi arð­greiðslna,“ segir Gunnþór. Þannig fengu eig­end­urnir hlut­inn í Sjóvá upp í hend­urnar án greiðslu.

Gunnþór lýsir því að Síld­ar­vinnslan hafi fjár­fest fyrir 80 millj­arða króna, eða 32 millj­arða króna í afla­heim­ildum og sjáv­ar­út­vegs­fé­lögum, fyrir 14,4 millj­arða í fisk­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish á Vest­fjörðum, 19 millj­arða í skipum og 14,6 millj­arða í fast­eignum og tækja­bún­aði.

Þá hefur Síld­ar­vinnslan lagt 200 millj­ónir króna „í verk­efni í heima­byggð“. Þau eru kaup á Hótel Hildi­brand í Nes­kaup­stað, fast­eigna­fé­lag­inu Miðási og svo kaup á jörð­inni Fann­ar­dal til kolefn­is­jöfn­unar með trjá­rækt.

„Ein­hverra hluta vegna kjósa ráða­menn að fara fram með van­hugs­aðar og illa útfærðar til­lögur um skatta­hækk­anir“
Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar

„Það er háð mikil orra­hríð gegn sjáv­ar­út­vegi nú um stundir. Ein­hverra hluta vegna kjósa ráða­menn að fara fram með van­hugs­aðar og illa útfærðar til­lögur um skatta­hækk­anir sem ekki þola skoðun, í stað rök­stuðn­ings og gagna. Farið er fram með rangar stað­hæf­ingar um afkomu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og fjár­fest­ingar þeirra gerðar tor­tryggi­legar. Má til dæmis nefna full­yrð­ingu atvinnu­vega­ráð­herra nýverið um 100 millj­arða fjár­fest­ingar sjáv­ar­út­vegs í óskyldum atvinnu­rekstri,“ segir Gunnþór. Yfirferð hans náði hins vegar ekki til sjáv­ar­út­vegs­ins í heild sinni heldur ein­göngu Síld­ar­vinnsl­unnar.

Gunnþór Ingvason var einn þeirra sem stóð í stafni gegn til­raunum til að hækka veiði­gjöld árið 2012, hjá rík­is­stjórn Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar. Á borg­ara­fundi í Nes­kaup­stað með Stein­grími J. Sig­fús­syni, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, lýsti hann því að frysti­tog­ari yrði tek­inn úr útgerð og 24 myndu missa vinn­una. „Allir munu tapa. Starfs­menn munu tapa, eig­endur munu tapa, fyr­ir­tæki sem vinna með okkur munu tapa, þjóðin mun tapa,“ sagði hann. Þá birti hann myndir af börnum sínum á skjá á fund­inum. „Gerum þetta þannig að hún færi börn­unum okkar líka fram­tíð,“ sagði hann.

Það árið, 2012, hagn­að­ist Síld­ar­vinnslan um 56 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 7 millj­arða króna. Félagið gerir upp í Banda­ríkja­dal, eins og algengt er með útgerðir. Árið eftir var hagn­að­ur­inn á sjötta millj­arð króna. Sam­an­lagður hagn­aður frá þeim tíma er því um 83 millj­arðar króna að nafn­virði. Stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er útgerð­ar­fé­lagið Samherji, sem á tæp­lega þriðj­ungs­hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Peningar

Peningar

Danskur hag­fræð­ingur segir krón­una hafa verið mis­heppn­aða til­raun í heila öld

Árið 2027 verður öld liðin frá því að Landsbankinn tók við hlutverki seðlabanka. Lars Christensen segir þá sögu ekki vera árangurssögu.
  • Peningar

    „Þetta er nú meiri vikan“

  • Peningar

    Tveir þekktir skyndi­bita­staðir inn­sigl­aðir að beiðni Skatts­ins

  • Peningar

    Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

  • Peningar

    Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

  • Peningar

    Átta félög gjald­þrota og fað­ir­inn gæti fengið atvinnu­rekstr­ar­bann