Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Lewis Hamilton krefst þess að hjálpargögn fái að berast til Gasa

„Ísrael verður að standa við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt vopna­hléinu og hleypa hjálp­ar­gögn­unum inn. Engar afsak­anir.“

Við Rafah
Við Rafah Lewis Hamilton heim­sótti landamæra­stöð­ina við Rafah í Egypta­landi og kynnti sér hvernig mann­úð­ar­að­stoð er und­ir­búin fyrir flutn­ing til Gaza. Mynd: Instagram

Breski Formúlu 1-kappakst­urs­mað­ur­inn Sir Lewis Hamilton skorar á Ísra­els­stjórn að hleypa hjálp­ar­gögnum inn á Gaza-svæðið og segir engar afsak­anir rétt­læta að hindra neyð­ar­að­stoð til almennra borg­ara. Þetta kemur fram í færslu hans á Instagram eftir heim­sókn að landamæra­stöð­inni við Rafah í Egypta­landi.

Hamilton, sem hefur sjö sinnum orðið heims­meist­ari í Formúlu 1, heim­sótti landamæra­stöð­ina á þriðju­dag. Þar kynnti hann sér hvernig mann­úð­ar­að­stoð er und­ir­búin og henni komið áleiðis til Gaza. Hann heim­sótti einnig birgða­geymslur egypska Rauða hálf­mán­ans.

Í færslu sinni í gær gagn­rýndi hann harð­lega fram­göngu Ísraels á Gaza-svæð­inu.

„Síðustu þrjú ár af þjóð­ar­morði Ísraels á Gaza eru skelfi­leg. Það er órétt­læti að fólk sé svipt frelsi sínu, öryggi og mann­legri reisn. Enga mann­eskju ætti að með­höndla eins og líf hennar skipti minna máli,“ skrif­aði Hamilton.

Hamilton lýsti því sem hann sá við landamæra­stöð­ina. Þar hefðu vöru­bílar fullir af mat­vælum staðið til­búnir til að fara inn á Gaza en reglu­lega verið stöðv­aðir eða tafðir um langan tíma.

Í vöru­flutn­inga­mið­stöð í nágrenn­inu hefði hann einnig séð að ýmsum hjálp­ar­gögnum var hafnað af því sem hann kall­aði „fárán­legum ástæðum“. Þar á meðal voru svefn­pokar, sjúkra­kassar, lækn­inga­bún­aður, hjóla­stólar og jafn­vel fót­boltar ætl­aðir börnum.

„Ísrael verður að standa við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt vopna­hléinu og hleypa hjálp­ar­gögn­unum inn. Engar afsak­anir,“ skrif­aði hann.

Hann bætti við að hann vildi ekki að fólk venj­ist þján­ingum íbúa Gasa eða líti undan.

Hamilton er 41 árs og hefur látið mann­úð­ar­mál til sín taka um ára­bil. Árið 2021 stofn­aði hann góð­gerð­ar­sam­tökin Mission 44, sem styðja ungt fólk og vinna að auknum tæki­færum þess til mennt­unar og atvinnu.

Hamilton keppir nú fyrir Ferrari í Formúlu 1. Hann er í fjórða sæti í stiga­keppni öku­manna, einu stigi á eftir George Russell í þriðja sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
2
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Mike O'Malley ræddi við Anthony Clark aðeins þremur vikum fyrir andlát hans og minnist hans sem einstaklega fyndins manns.
Heimur

Kynlíf enn eitt öfl­ug­asta vopn leyni­þjón­usta

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt

Heimur

Kona fannst látin í bíl á Fuer­teventura

Heimur

Tveir heið­ursverðir hnigu niður við hlið Macrons í opin­berri mót­töku