MannlífiðKjúklingabaunapítsa með sætum kartöflum, jalapeni og beikoni20. september 2019 Þessi kjúklingabaunapítsa með sætum kartöflum, jalapeni og beikoni klikkar ekki. Botninn er án hveitis og einstaklega ljúffengur.
MannlífiðÞarftu smá lax í lífið?18. september 2019 Hér er ótrúlega einföld uppskrift að laxaböku sem lítið mál er að matreiða í miðri viku.
MannlífiðEinfaldur og góður eftirréttur sem slær alltaf í gegn15. september 2019 „Crumble“ er á ensku notað yfir rétti sem þaktir eru einhvers konar mylsnu og hér er einn virkilega gómsætur sem auðvelt er að rigga upp ef gesti ber óvænt að garði.
MannlífiðSeiðandi súkkulaðikaka með mokkakremi1. september 2019 Allir elska súkkulaði, það er bara þannig. Þess vegna er tilvalið að bjóða upp á súkkulaðidásemdir allan ársins hring. Hér er ein verulega góð sem allir ættu að geta hent í og sómir sér vel á hvaða veisluborði sem er eða sem eftirréttur í matarboð.
MannlífiðOpin blaðlauks- og kartöflubaka sem auðvelt er að gera30. ágúst 2019 Hér kemur uppskrift að gómsætri opinni blaðlauks- og kartöfluböku. Opnar bökur ganga einnig undir nafninu galettur og eru heillandi sökum þess hversu einfalt er að búa þær til, því aflagaðri sem þær eru því fallegri eru þær þannig að ekki þarf fínlegt handbragð til að búa þær til.
MannlífiðLitadýrð í veislunni16. ágúst 2019 Þeir sem hafa lagt leið sína til Parísar hafa eflaust tekið eftir því að það þarf ekki að labba lengi um miðborgina til að finna fallegt bakarí sem selur franskar makrónur. Bakaríið Laduré er þar fremst í flokki og hefur séð Parísarbúum fyrir makrónum síðan 1862. Í Frakklandi eru kampavín og makrónur ómissandi við öll tækifæri sem gefast til að halda veislu. Litadýrðin er ómótstæðileg og bragðið … Mmmm … Hvað svo á betur við á Hinsegin dögum en makrónur í öllum regnbogans litum.
MannlífiðÆðisleg rabarbaraskúffukaka með kaffinu25. júlí 2019 Rabarbari eða tröllasúra er grænmeti sem er mjög auðvelt að rækta hér á landi. Það er hægt að gæða sér á nýsprottnum rabarbara strax í byrjun júní og hann er einstaklega ljúffengur einmitt þá. Það er um að gera að nýta sér hann allt sumarið því hann vex jafnóðum aftur. Hér kemur uppskrift að æðislegri rabarbaraskúffuköku sem gaman er að bjóða upp á með kaffinu.
MannlífiðGamaldags brúnkaka með rúsínum og kanil24. júlí 2019 Hér kemur uppskrift að dásamlegri gamaldags brúnköku með rúsínum og kanil sem fyllir húsið af yndislegum ilmi. Brúnkaka með kanil. 12 sneiðar 250 g smjör, mjúkt 320 g púðursykur 2 egg 500 g hveiti 1 tsk. matarsódi 2 tsk. kanill 2 tsk. negull 200 g rúsínur 2 ½ dl mjólk Hitið ofninn í 175°C. Setjið bökunarpappír í botn og upp...
MannlífiðDjúsí pretzel-bitar í nestisboxið15. júlí 2019 Þessir frábæru bitar passa fullkomlega í nestisboxið. Gott er að frysta bitana og skella þeim þannig í nestisboxið, þeir eru fljótir að þiðna. Fullkomnir í fjallgönguna!
MannlífiðHátíðleg marsípanbaka með jarðarberjum11. júlí 2019 Marsípan er alveg ómissandi í veislur, það verður allt einhvern veginn hátíðlegra þegar marsípankakan er komin á borðið. Hér kemur uppskrift að einni ljúffengri marsípanböku þar sem jarðarber eru í aðalhlutverki.
MannlífiðGlæsilegt sumarblað Gestgjafans er komið út10. júlí 2019 Í nýja blaðinu er að finna einstaklega freistandi uppskriftir á sumarlegum og léttum nótum.
MannlífiðGrilluð pítsa með banönum og pekanhnetum26. júní 2019 Það er lítið mál að baka pítsur á grillinu. Það þarf þó að hafa í huga að grillið er miklu heitara en ofninn og því þarf að fylgjast vel með bakstrinum.