Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Opin blaðlauks- og kartöflubaka sem auðvelt er að gera

Hér kemur upp­skrift að góm­sætri opinni blað­lauks- og kart­öflu­böku. Opnar bökur ganga einnig undir nafn­inu galettur og eru heill­andi sökum þess hversu ein­falt er að búa þær til, því aflag­aðri sem þær eru því fal­legri eru þær þannig að ekki þarf fín­legt hand­bragð til að búa þær til.

Opin blaðlauks- og kartöflubaka sem auðvelt er að gera

Pistasíubotn

25 g pistasíu­hnetur
175 g hveiti
1 tsk. salt
100 g smjör, skorið í ten­inga og kælt
¾ dl ískalt vatn

Fylling

4 blað­laukar, grænu topp­arnir skornir af og ljósi hlut­inn skor­inn í tvennt langsum
2 msk. ólífu­olía
10 g smjör
1 tsk. salt
½ tsk. svartur pipar
125 g geita­ostur
2 hvít­lauks­geirar, saxaðir eða þrýst í gegnum pressu
2 stórar kart­öflur, skornar í þunnar sneiðar
gróft sjáv­ar­salt
20 g blámyglu­ostur
1 msk. timí­an­lauf
1 egg, hrært

Byrjið á því að búa til botn­inn. Setjið pistasíu­hnet­urnar í mat­vinnslu­vél og hakkið. Bætið við hveiti og salti og blandið saman. Bætið kalda smjör­inu saman við og blandið þar til deigið minnir á gróft mjöl.

Hellið ísvatn­inu saman við í smáum skömmtum þar til deigið sam­lag­ast, það gæti þurft aðeins minna eða aðeins meira vatn. Hellið deig­inu úr mat­vinnslu­vél­inni, mótið kúlu og klappið hana síðan niður til að fletja hana aðeins út. Vefjið í plast­filmu og setjið í kæli í u.þ.b. 30-40 mín. Und­ir­búið fyll­ing­una á meðan deigið kólnar. Hitið ofn í 200°C án blást­urs.

Leggið blað­l­auk­inn í lítið eld­fast mót og sáldrið 2 msk. af ólífu­olíu yfir ásamt salti og pipar, leggið smjörið í mótið. Hellið 2-3 msk. af vatni í mótið og hyljið vel með álp­appír. Bakið í miðjum ofni í 20 mín. eða þar til þeir hafa mýkst alveg, takið álp­app­ír­inn af og bakið í 10 mín. til við­bótar eða þar til lauk­ur­inn gyllist.

Setjið til hliðar og látið kólna í svolitla stund, skerið í bita. Leggið deigið á hveitist­ráðan flöt og fletjið út í 30 cm hring. Hrærið geita­ost saman við 1 msk. af ólífu­olíu og saxaðan hvít­lauk og smyrjið því yfir botn­inn á deig­inu, skiljið 3 cm autt svæði við endana.

Setjið 1/3 af blað­lauknum ofan á smyrj­una, raðið helm­ingnum af kart­öflu­sneið­unum yfir, myljið helm­ing­inn af blámyglu­ost­inum ofan á kart­öfl­urnar og sáldrið grófu sjáv­ar­salti yfir. End­ur­takið og endið á síð­asta þriðjungnum af blað­lauknum. Sáldrið ólífu­olíu yfir fyll­ing­una og brettið endana yfir hana. Penslið með hrærðu eggi og bakið í miðjum ofni í 35-45 mín. eða þar til bakan er orðin fal­lega gyllt og stökk.

Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni