Mannlífið32 spor saumuð eftir líkamsárás í miðbænum: „Sæll, litli tittur“7. nóvember 2024 Maður á þrítugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi árið 2003 fyrir að ráðast á gamlan skólafélaga en DV greindi frá málinu. Líkamsárásin átti sér stað á karlaklósetti á staðnum Glaumbar sem var staðsettur í miðbæ Reykjavíkur árið 2001. Samkvæmt DV hafi þeir verið góðir kunningjar áður fyrr en stirt hafi verið á milli þeirra þegar sá dæmdi heilsaði...
MannlífiðÞrír menn réðust á Hlyn meðan hann svaf og tóku þrjú börn í gíslinu: „Ég varð ofsalega hræddur“6. nóvember 2024 „Ég vaknaði við það að tveir menn réðust á mig í rúminu og gengu í skrokk á mér. Ég náði að komast fram úr og hafa annan þeirra undir en fékk þá hinn á bakið á mér,“ sagði Hlynur Jónsson á Ólafsfirði við DV árið 1996 en þá réðust þrír menn inn til hans meðan hann svaf. Einn þeirra tók...
MannlífiðÁtta ungmenni réðust á Kristján í Njarðvík: „Það er eins og menn vilji sjá blóðið flæða“5. nóvember 2024 Rútubílstjórinn Kristján Gunnarsson lenti í ömurlegri lífsreynslu þegar hann varð fyrir hópárás í Njarðvík árið 1992 en DV greindi frá málinu. Forsaga málsins var að Kristján keyrði hóp af nemendum Fjölbrautarskólans í Ármúla til Njarðvíkur þar sem haldið var ball á Stapanum. Milli 10 til 12 rútur þurfti að ferja alla nemendur til og frá Reykjavík. „Um hálffjögur voru ryskingar...
MannlífiðÓlafur rófubeinsbraut Þróttara með sparki: „Þetta er mjög alvarlegt mál“4. nóvember 2024 Það var heldur betur tekist á í leik Einherja og Þróttar frá Neskaupstað sem fór fram á Vopnafirði árið 1990 en Morgunblaðið greindi frá þessu. Liðin áttust við í gömlu þriðju deildinni í knattspyrnu karla. Fimm mínútum fyrir leikslok komst framherji Einherja einn í gegn og skall markmaður Þróttar á hann. Þegar það gerðist komu fleiri leikmenn og eiga leikmenn...
MannlífiðSjoppueigandi á áttræðisaldri barinn og rændur: „Vona bara að þessi deli náist“1. nóvember 2024 Í fjölmörg ár hafði Ásbjörn Magnússon rekið sjoppu við Suðurgötu án þess að lenda í nokkru slæmu. Það breyttist hins vegar þann mánudagskvöldið 23. október árið 1995. Hinn 71 árs gamli Hafnfirðingur, Ásbjörn Magnússon var að sinna starfi sínu sem sjoppueigandi við Suðurgötu í Hafnarfirði mánudagskvöld eitt í október 1995, þegar hann varð fyrir því að vera rændur og barinn...
MannlífiðLögreglan sagði Áslaugu að taka strætó á spítalann eftir árekstur: „Ég er mjög fúl“30. október 2024 „Mér finnast þetta fáránleg vinnubrögð og ég er mjög fúl út í lögregluna út af þessu. Ég fann mikinn verk í hálsinum og bað lögreglumennina að skutla mér heim eða á spítalann. Þeir sögðust þurfa að fara í annað útkall og ekki hafa tíma til að fara með mig á spítalann. Þeir sögðu við mig að ég gæti bara tekið...
MannlífiðÞrír lögregluþjónar rotuðust í viðureign við þrjá drukkna hnefaleikamenn29. október 2024 Allt ætlaði um koll að keyra í lok dansleiks í Listamannaskálanum í september árið 1943, þegar þrír hnefaleikakappar hófu að berja mann og annan. Þrír félagar úr hnefaleikaheiminum í Reykjavík á stríðsárunum ákváðu að skella sér á dansleik kvöld eitt í september og tóku með sér flösku af Svarta dauða, sem var bannað að gera á þessum dansleik. Eftir að...
MannlífiðKöttur nærri dauður eftir hundaárás í Árbænum: „Ef hann lifir þetta af hefur hann níu líf“28. október 2024 Shäferhundur drap næstum því kött árið 1990 í Elliðaárdalnum en DV fjallaði um málið. „Þegar ég kom heim um miðjan dag í gær kom til mín lítil stelpa í húsinu á móti sem horfði upp á shäferhundinn elta köttinn og króa hann af. Eftir átökin var kötturinn ælandi og það lak úr honum blóðið,“ sagði Guðný Leósdóttir við DV um...
MannlífiðÍslenskir námsmenn ruddust inn í sendiráð Íslands í Svíþjóð: „Hannes Hafstein neitaði að ganga út“27. október 2024 Árið 1970 ruddust 11 vaskir íslenskir námsmenn inn í sendiráðs Íslands í Stokkhólmi og tóku yfir bygginguna. Var meiningin að hefja sósíalístíska byltingu. Sjötti áratugurinn hefur stundum verið kallaður byltingaáratugurinn en mikil ólga var í samfélögum víðs vegar um heim. Má í því samhengi nefna Kúbudeiluna, kalda stríðið, uppgangur kommúnista, morðin á John F. og Robert Kennedy, Malcolm X, Martin...
MannlífiðBréfberar í Keflavík njósnuðu fyrir Magnús forstöðumann: „Við viljum hafa yfirsýn“25. október 2024 Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja bað bréfbera að njósna um hunda árið 2004 en DV fjallaði um málið. Nokkuð furðulegt mál kom upp í Keflavík árið 2004 en þá sendi Magnús Guðmundsson, forstöðumaður Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, bréf til Íslandspósts í Keflavík þar sem bréfberar bæjarsins voru beðnir að skrá niður alla hunda sem þeir kæmu auga á og hvar þeir væru til húsa. „Já,...
MannlífiðUngmennahópur réðst á asíska drengi fyrir utan Héraðsdóm: „Vinur minn var skorinn“24. október 2024 Ráðist var á þrjá asíska drengi fyrir utan Héraðdóm Reykjavíkur 17. júní árið 2001 en Fréttablaðið greindi frá málinu á sínum tíma. Í frásögn blaðsins er sagt frá að mikill hópur ungmenna hafa ráðist á þrjá drengi sem allir eru af asískum uppruna eftir að sést hafi til eins þeirra sveifla kylfu en talið meðlimir hópsins hafi verið á aldrinum...
MannlífiðSigmar rúmfastur eftir líkamsárás í Austurstræti: „Hann var með hnúajárn“23. október 2024 Hinn átján ára Sigmar Hafsteinn Lárusson átti sér einskis ills von þegar hann fór að skemmta sér með nokkrum félögum sínum í miðborg Reykjavíkur eina októberhelgi árið 1990. Átti hann eftir að enda á slysadeild eftir barsmíðar. Sigmar Hafsteinn hafði verið búinn að skemmta sér á Glaumbar og á Fimmunni með félögum sínum en um klukkan fjögur um nóttina áttu...