Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þrír lögregluþjónar rotuðust í viðureign við þrjá drukkna hnefaleikamenn

Þrír lögregluþjónar rotuðust í viðureign við þrjá drukkna hnefaleikamenn
Lista­manna­skál­inn stóð við Kirkju­stræti

Allt ætl­aði um koll að keyra í lok dans­leiks í Lista­manna­skál­anum í sept­em­ber árið 1943, þegar þrír hnefa­leika­kappar hófu að berja mann og annan.

Þrír félagar úr hnefa­leika­heim­inum í Reykja­vík á stríðs­ár­unum ákváðu að skella sér á dans­leik kvöld eitt í sept­em­ber og tóku með sér flösku af Svarta dauða, sem var bannað að gera á þessum dans­leik. Eftir að til­raun hafði verið gerð til að reka menn­ina út án árang­urs, var hætt við það, enda stutt í lok dans­leiks­ins. En eitt­hvað var einum þeirra, Hrafni Jónssyni laus höndin þetta kvöld en hann barði tvo menn við fata­geymsl­una, nán­ast upp úr þurru.

Fjórir lög­reglu­menn voru sendir á vett­vang eftir að hinir tveir sak­lausu ball­gestir lágu í valnum eftir bar­smíðar hnefa­leika­meist­ar­ans Hrafns Jóns­sonar. Þrír þeirra lágu óvígir eftir að hafa reynt að hand­taka ofbeld­is­menn­ina. Endaði einn þeirra illa slas­aður á Land­spít­al­anum en höf­uð­högg sem sá fékk átti eftir að hafa alvar­legar afleið­ingar fyrir hann en lengi á eftir þjáð­ist hann af höf­uð­kvölum.

Hér má lesa frétt Þjóð­vilj­ans af mál­inu:

Þrír lög­reglu­þjónar slasast í viður­eign við drukkna menn

Einn þeirra liggur nú á Land­spít­al­anum

Rétt eftir mið­nætti í fyrr­inótt voru 3 lög­reglu­þjónar slas­aðir í viður­eign við drukkna menn, sem þeir ætl­uðu að hand­taka. Einn hinna drukknu manna náði kylfu eins lög­reglu­þjóns­ins og barði þá síðan unz þeir lágu óvígir. Lög­reglu­þjón­arnir sem meidd­ust voru þessir: Geir Jón Helgason, Aðal­steinn Jónsson og Kjartan Jónsson. Ölvuðu menn­irnir voru: Hrafn Jónsson. hnefa­leika­meist­ari, Sigurjón Þórð­ar­son og Andrés Bjarna­son — einnig hnefa­leik­arar.

Hrafn og félagar hans voru á dans­leik í Lista­manna­skál­anum í fyrra­kvöld. Þegar kl. var að verða 2 kom kona Hrafns að dyr­unum og var tregða á að hleypa henni inn en þó varð það úr. En rétt á eftir voru Hrafn og félagar hans komnir með svarta dauða­flösku á borðið hjá sér. Jónas Lárusson fór þá til þeirra og sagði þeim að þetta væri ekki leyft þarna inni og bað þá fara út. Lög­reglu­þjónn fór einnig til þeirra og bað þá einnig þess sama, en þeir skeyttu því engu, en þar sem dans­leik­ur­inn var að verða búinn var þetta látið liggja kyrrt. Rétt á eftir fór Andrés Bjarna­son fram í fata­geymslu, var þar fyrir ungur maður og stjak­aði Andrés honum óþyrmi­lega frá sér. Hafði mað­ur­inn orð um það hvað þetta ætti að þýða og fékk  hann þegar hnefa­högg. Maður sem var nær­staddur sagði þá að lög­reglan skipti sér ekk­ert af því þótt hnefa­leik­ar­arnir gengju um og berðu menn — þeir væru lík­lega of sterkir. Var maður þessi þegar sleg­inn svo hann lá. Og lenti nú allt í slags­málum.  Var þá hringt til lög­regl­unnar og voru 4 lög­reglu­þjónar sendir og nokkru síðar aðrir 4. Kjartani Jónssyni lög­reglu­þjóni tókst að hand­sama Sigurjón Þórð­ar­son og hélt hann honum með kylf­unni, — en eng­inn lög­reglu­þjón­anna not­aði kylf­una til að slá með henni. Kom þá Hrafn að og tókst að ná kylf­unni af Kjartani og sló hann síðan í rot. Leik­ur­inn hafði nú borizt út í dimmt portið fyrir utan. Þegar Aðal­steinn Jónsson kom þar að fékk hann högg aftan frá utan úr myrkr­inu, þegar hann snéri sér við fékk hann önnur, unnz hann lá. Geir Jón Helgason sá þá að Kjartan var að rísa á fætur blóð­ugur, og spurði hann: Hver barði þig? Var þá svarað úr skugg­anum: Hann er hér! Og dundu höggin síðan á lög­reglu­þjón­inum. Hákoni Krist­ó­fers­syni tókst þá að ná Hrafni og halda honum og voru þeir félag­arnir allir hand­sam­aðir. Lög­reglu­þjón­arnir þrír voru allir mikið meiddir. Kjartan Jónsson fékk 7 cm. langan skurð á höf­uðið og 1 cm. á breidd, þar sem hann er breið­astur, enn­fremur brákað nef.

Geir Jón Helgason

Aðal­steinn Jónssón fékk þrjá skurði á höf­uðið, einn 7 cm, annan 3 cm. og þann þriðja 2 cm. langan. Enn­fremur hefur hann lík­lega hand­leggs­brotnað. Geir Jón Helgason meidd­ist mest. Fékk hann 2 högg á höf­uðið aft­an­vert og heila­hrist­ing. Er 7 cm. langur skurður á höfði hans. Liggur hann í Land­spít­al­anum illa hald­inn. — Hnefa­leik­ar­arnir voru allir fluttir í fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni