InnlentMeðvitundarlaus maður fannst í Elliðaárdal við Stíflu12. júní 2019 Tilkynnt var um meðvitundarlausan mann í Elliðaárdal við Stíflu í gærkvöldi. Sjúkrabíll og lögregla var send á vettvang. Maðurinn reyndist vera í annarlegu ástandi sökum fíkniefna eða áfengis.
InnlentKveikti í rusli á lóðinni sinni og neitaði slökkviliði aðgang11. júní 2019 Lögreglan hafði afskipti af manni í Hafnarfirði í nótt sem var að brenna rusli á lóð sinni. Maðurinn var ósamvinnuþýður og vildi ekki hleypa slökkviliði og lögreglu inn á lóðina. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
InnlentLögregla tók blóðsýni með valdi úr ökumanni undir grun um akstur undir áhrifum10. júní 2019 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt ökumann grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis, annarra fíkniefna og akstur án réttinda. Maðurinn neitaði að hlýta sýnatöku vegna rannsóknar og var því blóðsýni tekið með valdi.
InnlentFannst ölvaður og ósjálfbarga á gangstétt og vistaður í fangageymslu lögreglu6. júní 2019 Lögregla hafði afskipti af ölvuðum manni rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi fundist ósjálfbjarga á gangstétt. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu á meðan hann svaf af sér.
InnlentTalsvert um akstur undir áhrifum undanfarna daga5. júní 2019 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ofurölva manni við Austurvöll síðdegis í gær. Maðurinn fékk gistingu í fangageymslu meðan ástand hans batnar. Þetta kemur fram í dagbók Lögreglu.
InnlentTæplega fimmtíu stútar undir stýri stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina4. júní 2019 Fjörutíu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þrjátíu og fjórir voru stöðvaðir í Reykjavík, fimm í Kópavogi, þrír í Mosfellsbæ og tveir í Hafnarfirði. Lögreglan segir þrjá stöðvaða á föstudag en tuttugu og sex á laugardaginn. Fjórtán á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. „Þetta...
InnlentHeimsótti vinkonu sína og stal fatnaði frá nágrönnum3. júní 2019 Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar á fatnaði, úr þvottahúsi í sameign fjölbýlishúss, í Austurbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Sakborningur, þrítug kona, var stöðvuð utandyra og afhenti fatnaðinn til baka. Hún viðurkenndi brotið og kvaðst hafa verið að koma úr heimsókn frá vinkonu sinni.
Innlent85 útköll hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu30. maí 2019 Næturvakt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu virðist hafa verið nokkuð annasöm. Í tilkynningu lögreglu segir að 85 útköllum hafi veri sinnt í nótt og eftirmiðdegi í gær. Tvær líkamsárásir, ólæti og umferðarslys.
InnlentLögregla fékk útkall vegna ógnandi tilburða með eggvopni og hvalreka28. maí 2019 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðin barst í síðustu nótt tilkynningu um að einstaklingur hafi ógnað öðrum með eggvopni og stolið af honum veski. Hinn grunaði var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
InnlentReykvísk húsmóðir læsti sig úti, skrúfaði í sundur gluggafestingu og festist með rassinn út um glugga27. maí 2019 Kona á höfuðborgarsvæðinu sem læsti sig utan eigin heimilis. Mátti beita óvenjulegri leið til að komast inn á heimilið. Brösulega gekk og endaði konan með að sitja föst í glugga eigin heimilis í nokkra stund. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu deilir skilaboðum sem hún fékk. Konan vildi koma í veg fyrir að lögreglubíll yrði sendur á staðinn ef ske kynni að nágrannar hefðu orðið varir við uppátækið.
InnlentKarlmaður á sjötugsaldri lést af slysförum í Þistilfirði26. maí 2019 Banaslys varð í Þistilfirði um hádegisbil í gær. Karlmaður á sjötugsaldri lést í slysinu. Maðurinn var við störf á fjórhjóli skammt frá sveitabæ í firðinum. Ættingjar mannsins komu að honum.
InnlentPróflausir og undir áhrifum vímuefna20. maí 2019 Lögregla hafði afskipti af þremur ökumönnum í gær og gærkvöld undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda. Fjórði maðurinn var stöðvaður í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.