InnlentHótaði að drepa nágranna sína16. janúar 2020 Þrír vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ofbeldisbrota. Óskað var eftir var eftir aðstoð lögreglu á ellefta tímanum í gærkvöld vegna manns sem hótaði að drepa nágranna sína í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Var maðurinn í annarlegu ástandi. Lögregla mætti á staðinn, handtók manninn og færði í fangageymslu, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu....
InnlentLíkamsárás í Breiðholti: Ráðist á ungling með kylfu og belti29. ágúst 2019 Tilkynnt var um líkamsárás í Breiðholti í gærkvöldi. Hópur manna réðst á 17 ára dreng með kylfu og belti. Árásarþoli var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Þá var móður hans tilkynnt um málið.
InnlentRáðist á fimmtán ára drengi með rafbyssu28. ágúst 2019 Ráðist var á fimmtán ára drengi með rafbyssu á skólalóð í Kópavogi í gærkvöldi. Drengirnir voru með sjáanlegar áverka og fóru í fylgd foreldra sinna á slysadeild til frekari skoðunar. Árásaraðilarnir, fjórir ungir menn á aldrinum 16-18 ára, flúðu af vettvangi á bifreið.
InnlentOfurölvi og vakti nágranna sína27. ágúst 2019 Tilkynnt var um ofurölvi konu í stigagangi fjölbýlishús í Hafnarfirði í nótt. Hún hafði vakið alla íbúa hússins. Konan var ekki með skilríki né lykla að íbúð sinni. Hún var því handtekin og vistuð í fangageymslu lögreglu sökum ástands.
InnlentÞrjú handtekin í nótt vegna líkamsárása26. ágúst 2019 Tilkynnt var um líkamsárás í gærkvöldi. Árásaraðilar voru tveir menn. Þeir fóru á brott í bifreið en voru handteknir skömmu síðar og vistaðir í fangageymslu lögreglu. Árásarþoli var fluttur á Slysadeild til aðhlynningar.
InnlentStútur undir reiðhjólastýri22. ágúst 2019 Ölvaður og alblóðugur innbrotsþjófur var handtekinn í Mosfellsbæ af lögreglu á miðnætti í gær. Maðurinn er grunaður um innbrot og að fara ekki að fyrirmælum lögreglu meðal annars með því að neita að gefa upp nafn sitt. Þá segir í tilkynningu lögreglu að maðurinn hafi haft í hótunum við lögregluþjóna. Klukkustund fyrir innbrotið hafði yfirvaldið afskipti af manninum er hann hjólaði á ljósastaur.
InnlentKastaði kókflösku og kaffibolla í bifreið þegar bílstjórinn tók fálega í ábendingar um aksturslag21. ágúst 2019 Tilkynnt var um eignaspjöll á Reykjanesbraut á sjötta tímanum í gær. Maður kastaði kaffibolla af bræði í bifreið eftir að hafa gert athugasemdir við aksturslag bílstjórans við litla gleði ökumannsins. Það hafi farið fyrir brjóstið á honum hvernig ökumaðurinn hafi hagað sér í umferðinni. Rifrildið milli ökumannana átti sér stað á rauðu ljósi.
InnlentFarþegi hótaði leigubílstjóra með eggvopni20. ágúst 2019 Leigubílstjóri tilkynnti greiðslusvik og hótanir til lögreglu í nótt. Bílstjórinn hafði ekið karlmanni og konu í Árbæ. Þegar hann óskaði greiðslu brást parið ókvæða við. Maðurinn hótaði bílstjóranum með eggvopni áður en konan hótaði að stinga hann með sprautunál. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
InnlentStöðvaður tvisvar af lögreglu yfr sömu nótt19. ágúst 2019 Lögregla gerði tilraun til að stöðva ökumann um tvö í nótt en ökumaðurinn sinnti stöðvunarmerkjum ekki. Í ljós kom að hann hafði fyrr um kvöldið verið stöðvaður fyrir of hraðan akstur og þá sviptur ökuréttindum.
InnlentÖlvaður hótelgestur í Reykjavík reyndi að stinga lögreglu af á hlaupum15. ágúst 2019 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi um mann í annarlegu ástandi á hóteli í Reykjavík. Þegar lögreglumenn komu á vettvang töldu þeir manninn vera með þýfi í sinni vörslu. Maðurinn reyndi að hlaupa frá þeim en án árangurs. Þá veitti hann mótspyrnu við handtöku. Maðurinn var vistaður í fangaklefa.
InnlentSlagsmál í Breiðholti enduðu með hnífstungu13. ágúst 2019 Tilkynnt var um líkamsárás í Breiðholti í gærkvöldi. Ágreiningur milli tveggja manna endaði í slagsmálum. Annar þeirra var með stungusár á handlegg en vildi enga aðstoð frá lögreglu eða sjúkraliði. Maðurinn sem er grunaður um að hafa veitt áverkann handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu.
InnlentLögregla í útkall vegna leik manns með flugdreka sem truflaði flugumferð12. ágúst 2019 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi sökum þess að leikur manns með flugdreka í Nauthólsvík var sagður trufla flugumferð . Fram kemur í dagbók lögreglu að maðurinn hafi brugðist vel við og lofað að færa sig um stað.